Fréttir

true

Háskólalestin kom við í Búðardal

Háskólalestin mætti í Auðarskóla í Búðardal á föstudaginn og bauð upp á valin námskeið úr Háskóla unga fólksins fyrir unglingadeildirnar í Auðarskóla og á Reykhólum. Unnið var í stöðvum en alls voru sjö kennslustofur nýttar í stöðvavinnuna. Á laugardaginn var svo vísindaveisla í félagsheimilinu Dalabúð þar sem almenningi bauðst að spreyta sig á hinum ýmsu…Lesa meira

true

Kynningarfundur um skipulagslýsingu Sementsreits

Í kvöld er fyrirhugaður opinn kynningarfundur á Akranesi um skipulagslýsingu Sementsreits. Fundurinn fer fram að Mánabraut 20 og hefst klukkan 18:00. Skipulags- og umhverfisráð kynnir þar skipulagslýsinguna  fyrir íbúum og öðrum hagsmunaðilum.Lesa meira

true

Árlegri hjálmagjöf Kiwanis tekið fagnandi

Kiwanisklúbburinn Þyrill á Akranesi færir á hverju ári börnum í fyrsta bekk grunnskóla að gjöf reiðhjólahjálma í samvinnu við Eimskip. Börnin sem njóta eru í Borgarnesi, Hvalfjarðarsveit og á Akranesi, alls 132 að þessu sinni. Eimskip styður fjárhagslega og flutningalega við verkefnið og sýnir með því framtaki mikla samfélagslega ábyrgð. Félagar í Kiwanisklúbbum landsins sjá…Lesa meira

true

Styrkjum úthlutað til atvinnumála kvenna

Nýlega var úthlutað ríkisstyrkjum að upphæð 32 milljónir króna til atvinnumála kvenna. Alls hlutu 33 verkefni styrk í samræmi við niðurstöðu ráðgjafarnefndar sem vann fyrir félagsmálaráðuneytið, en nefndin mat umsóknirnar. Alls bárust 219 umsóknir um styrki til verkefna hvaðanæva af landinu. Í tilkynningu frá ráðuneytinu kemur fram að verkefnin voru fjölbreytt að venju. Má þar…Lesa meira

true

Áttu stutt stopp í Grundarfirði

Frystitogarinn Brimnes RE-27 átti viðkomu í Grundarfirði á uppstigningardag. Skipið gerði þó stutt stopp en það var einungis að sækja umbúðir sem biðu á höfninni. Skipið sem var smíðað árið 2002 er gert út af Brimi hf og er með heimahöfn í Reykjavík. Það hefur verið að landa rækju, gulllaxi og grálúðu svo eitthvað sé…Lesa meira

true

Gráskinna á fjalir Sögulofts Landnámssetursins

Í Landnámssetrinu í Borgarnesi eru nú hafnar sýningar á nýju íslensku leikverki sem flutt verður á ensku og er fyrst og fremst hugsað fyrir ferðamenn sem leið eiga um. Verkið nefnist Gráskinna og ber undirtitilinn „The Saga of Black Magic in Iceland.“ Höfundur og jafnframt flytjandi er Borgnesingurinn Geir Konráð Theódórsson hugmyndahönnuður. Leikstjóri er faðir…Lesa meira

true

Jákvæður rekstur og betra skuldahlutfall

Ársreikningur Stykkishólmsbæjar fyrir árið 2015 var til fyrri umræðu á fundi sveitarstjórnar í gær. Rekstrarniðurstaða er jákvæð. Tekjur sveitarfélagsins á árinu námu 1.151 milljón króna samkvæmt samanteknum ársreikningi fyrir A og B hluta, þar sem A – hluti stendur fyrir bæjarsjóð en B – hluti fyrir stofnanir og fyrirtæki. Þar af námu rekstrartekjur bæjarsjóðs 1.066…Lesa meira

true

Höfundarverk Snorra Sturlusonar á málstofu

  Málstofa um höfundarverk Snorra Sturlusonar og viðtökur verka hans (Snorri Sturluson‘s Authorship and Afterlife) verður haldin á vegum Stofnunar Árna Magnússonar og Snorrastofu  í hátíðarsal gamla Héraðsskólans í Reykholti annan dag hvítasunnu – mánudaginn 16. maí 2016 kl. 10-16. Málstofan er öllum opin og er allt áhugafólk um Snorra velkomið, en til hagræðis væri…Lesa meira

true

Bleikar heyrúllur til stuðnings Krabbameinsfélaginu

  Í sumar munu bleikar heyrúllur prýða tún bænda um allt land í fyrsta sinn. Þetta uppátæki tengist átaki bænda, dreifingaraðila og framleiðanda heyrúlluplasts um að minna á árvekni um brjóstakrabbamein og styrkja Krabbameinsfélagið á sama tíma. Framleiðandinn Trioplast, innlendir dreifingaraðilar og bændur, leggja hver fram andvirði einnar evru hver eða samtals 425 krónur af…Lesa meira

true

Bergdís og Fríða gerðu gott mót í Finnlandi

Bergdís Fanney Einarsdóttir og Fríða Halldórsdóttir úr ÍA hafa verið við keppni með U17 ára landsliði Íslands í Finnlandi. Mótið fór fram dagana 6.-10. maí, endaði í dag. Þær komu báðar inn á þegar um hálftími var eftir af fyrsta leiknum gegn Svíum en þurftu að sætta sig við 3-1 tap. Í næsta leik, gegn…Lesa meira