Fréttir

true

Ingvar Þór Kale til liðs við ÍA

Knattspyrnufélag ÍA hefur samið við markvörðinn Ingvar Þór Kale til eins leiktímabils. Mun hann því standa á milli stanganna með Skagamönnum í Pepsi deild karla í knattspyrnu á sumri komanda. Leysir Ingvar markvörðinn Árna Snæ Ólafsson af, en hann sleit krossband í hné í byrjun nóvember og fór í uppskurð rétt fyrir jól. Verður hann…Lesa meira

true

Þingmenn VG verða á ferðinni

Á morgun, þriðjudaginn 10. janúar, verða þrír þingmenn Vinstri hreifingarinnar græns framboðs á ferðinni á Vesturlandi, þau Katrín Jakobsdóttir, Andrés Ingi Jónsson og Lilja Rafney Magnúsdóttir, ásamt varaþingmanni NV-kjördæmis, Bjarna Jónssyni. Verða þau á ferð og flugi um Akranes og Borgarnes. Farið verður í heimsóknir í Ráðhúsið, Landmælingar og Höfða á Akranesi að deginum og…Lesa meira

true

Lokað fyrir rafmagn til GMR

RARIK hefur lokað fyrir rafmagns til fyrirtækisins GMR á Grundartanga vegna vangoldinna rafmagnsreikninga. Vísir greinir frá. GMR starfar sem kunnugt er á sviði málmendurvinnslu. Starfsmenn fyrirtækisins eru um 20 talsins. Óvissa ríkir um áframhaldandi rekstur fyrirtækisins, sem hefur verið strembinn alveg frá byrjun. Á Vísi er haft eftir Daða Jóhannessyni að bakslag hafi komið í…Lesa meira

true

Öruggur sigur Skallagríms

Keppni í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik hófst að nýju eftir jólafrí á laugardaginn. Í Borgarnesi tók Skallagrímur á móti Val og vann öruggan sigur, þó lokatölur gefi til kynna að leikurinn hafi verið heldur jafnari en hann var. Það var ekki fyrr en á lokamínútunum að gestirnir tóku að minnka öruggt forskot Skallagrímskvenna sem…Lesa meira

true

Reynslusigur Snæfells í framlengdum leik

Snæfell heimsótti Keflavík í stórleik Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik síðasta laugardag. Fyrir leikinn voru Íslandsmeistarar Snæfells í 2. sæti deildarinnar en Keflavíkurkonur á toppnum. Eftir jafnan síðari hálfleik þar sem liðin skiptust á að leiða þurfti að framlengja til að knýja fram sigurvegara. Í framlengingunni voru Snæfellskonur betri og unnu að lokum sjö stiga…Lesa meira

true

Bændafundir framundan

Bændasamtök Íslands halda fundi með bændum víða um land dagana 9. til 11. janúar. Fundarefnið er tvíþætt. Annars vegar verður rætt um áhrif niðurfellingar búnaðargjalds og upptöku félagsgjalda og hins vegar nýjar reglugerðir sem taka gildi samhliða nýjum búvörusamningum. Á Vesturlandi verða fundirnir sem hér segir: Ásgarður í Kjós, þriðjudaginn 10. janúar kl. 12.00 Hótel…Lesa meira

true

Afli og aflaverðmæti skipa HB Granda dróst saman milli ára

Samkvæmt upplýsingum frá HB Granda, var afli skipa félagsins 141.867 tonn árið 2016 og var aflaverðmætið tæpir 14 milljarðar króna. Þetta er samdráttur í afla upp á rúm 19% milli ára en aflaverðmætið á sama tíma dróst saman um 16%. Í tölum um afla og aflaverðmæti skipa félagsins má lesa að uppsjávarskipin tvö, Venus NS…Lesa meira

true

Fresta innleiðingu laga um greiðsluþátttökukerfi vegna heilbrigðisþjónustu

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að fresta innleiðingu á nýju greiðsluþátttökukerfi vegna heilbrigðisþjónustu til 1. maí næstkomandi. Ákvörðunin byggist á því að meiri tíma þurfi til að undirbúa kerfisbreytinguna, fyrst og fremst vegna ýmissa tæknilegra örðugleika við útfærslu hennar. Alþingi samþykkti 2. júní síðastliðinn breytingu á lögum um sjúkratryggingar þar sem kveðið var á um grundvallarbreytingar á…Lesa meira

true

Samþykkja yfirlýsingu um ábyrga ferðaþjónustu

Á morgun munu yfir hundrað fyrirtæki hér á landi taka höndum saman og skrifa undir yfirlýsingu um ábyrga ferðaþjónustu. Verndari verkefnisins verður Guðni Th. Jóhannesson forseti. Það eru Festa – miðstöð um samfélagsábyrgð og Íslenski ferðaklasinn sem standa að verkefninu í samstarfi við Ferðamálastofu, SAF, Íslandsstofu, Stjórnstöð ferðamála, Markaðsstofur landshlutanna, Höfuðborgarstofu og Safetravel. Ábyrg ferðaþjónusta…Lesa meira

true

Þæfingsfærð og snjómugga á fjallvegum

Nú er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á vegum á Vesturlandi, víða éljagangur og töluverður skafrenningur á Holtavörðuheiði. Þæfingsfærð er á Bröttubrekku. Versnandi veðri er spáð á landinu, einkum í kvöld. Á láglendi suðvestanlands verður slydda og rigning en snjómugga á fjallvegum. Á Vestfjörðum verður hríðarverður og vont skyggni einkum eftir kl. 21.  Um svipað leyti…Lesa meira