Fréttir

true

Valdís Þóra er Íþróttamaður Akraness 2016

Kjöri Íþróttamanns Akraness 2016 var lýst í kvöld við hátíðlega athöfn í Íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum að aflokinni þrettándabrennu og flugeldasýningu á Þyrlupallinum. Íþróttamaður Akraness árið 2016 er Valdís Þóra Jónsdóttir kylfingur í Golfklúbbnum Leyni. Í öðru sæti varð sundmaðurinn Ágúst Júlíusson og í þriðja sæti Einar Örn Guðnason kraftlyftingamaður. Þetta frækna íþróttafólk á það allt…Lesa meira

true

Nýir eigendur opnuðu í morgun Lesbókina Café

Lesbókin Café, nýtt kaffihús við Akratorg á Akranesi, var opnað fyrsta sinni fyrir gestum og gangandi fyrir hádegi í dag. Að rekstri kaffihússins standa Christel Björg Rudolfsdóttir Clothier og Guðleifur Rafn Einarsson. Um miðjan desembermánuð keyptu þau rekstur Skökkin Café, sem áður var rekið í sama húsnæði, af Hafdísi Bergsdóttur og Hildi Björnsdóttur. Síðan þá…Lesa meira

true

Björn kosinn forseti bæjarstjórnar

Á fundi bæjarstjórnar Snæfellsbæjar í gær tók við nýr forseti bæjarstjórnar, en Kristín Björg Árnadóttir fráfarandi forseti er flutt úr sveitarfélaginu og sat sinn síðast fund í desember. Björn Haraldur Hilmarsson tekur nú við sem forseti en hann hefur að aðalstarfi að vera umboðsmaður Olís í Ólafsvík. Björn kom inn í sveitarstjórn Snæfellsbæjar við síðustu…Lesa meira

true

Skagamenn hófu nýja árið á sigri

  ÍA tók á móti botnliði Ármanns í 1. deild karla í körfuknattleik í gær þegar deildin fór aftur af stað eftir jólafrí. Skemmst er frá því að segja að Skagamenn voru miklu betri allan leikinn gegn afar slöku liði Ármenninga. Skagamenn unnu enda þægilegan sigur, 90-62. Ármenningar skoruðu fyrstu tvö stig leiksins af vítalínunni…Lesa meira

true

Tap hjá Snæfelli í fyrsta leik eftir jólafrí

Snæfell tók á móti ÍR í gærkvöldi þegar keppni hófst að nýju í Domino‘s deild karla í körfuknattleik eftir jólafrí. ÍR-ingar voru nánast allan leikinn en leikur Snæfells var nokkuð kaflaskiptur. Náðu þeir aldrei að gera alvöru atlögu að sigrinum og að lokum fór svo að ÍR hafði betur með 98 stigum gegn 82. Nokkuð…Lesa meira

true

Mikil aukning var í símenntun árið 2015

Árið 2015 varð mikil aukning í símenntun en þá sóttu 27,5% landsmanna á aldrinum 25-64 ára sér fræðslu, annað hvort í skóla eða aðra fræðslu með leiðbeinanda, eða 45.700 manns. Í samantekt frá Hagstofunni kemur fram að fjölgað hafi um 3.600 manns, 1,9 prósentustig, frá árinu 2014, þeim sem stunduðu símenntun. Frá árinu 2003 hefur…Lesa meira

true

Sjómannaverkfall nýtt til að auka hæfni í fiskvinnslu

Fisktækniskóli Íslands er með námskeið í Samkomuhúsi Grundarfjarðar þessa dagana. Námskeiðið er haldið að frumkvæði G.Run hf. sem er með 40 starfsmenn á svæðinu. Námskeiðið tekur fyrir helstu þætti fiskvinnslu allt frá örverum upp í frágang og útflutning. Runólfur Guðmundsson framleiðslustjóri fyrirtækisins sagði að starfsmenn fyrirtækisins sýni þessu mikinn áhuga og taki vel eftir. „Við…Lesa meira

true

ASÍ segir ríkið vera að endurtaka hagstjórnarmistök

„Fjárlög voru samþykkt fyrir jól við óvenjulegar aðstæður í íslenskum stjórnmálum. Nýrrar ríkisstjórnar bíða stórar áskoranir við að tryggja að stjórn ríkisfjármála styðji við hinn efnahagslega stöðugleika og stuðli að félagslegri velferð og auknum jöfnuði. Sú forgangsröðun sem birtist í nýsamþykktum fjárlögum mun ekki skapa þann grundvöll,“ segir í yfirlýsingu frá Alþýðusambandi Íslands. „Á alla…Lesa meira

true

Tryggðu sér sigurinn á lokasekúndunni

Í gærkvöldi hófst keppni í Domino‘s deild karla að nýju eftir jólafrí. Í Borgarnesi tók Skallagrímur á móti Haukum í hádramatískum leik. Úrslitin réðust ekki fyrr en á lokasekúndum framlengingar þegar Skallagrímsmenn skoruðu úrslitastigin og tryggðu sér tveggja stiga sigur, 104-102. Borgnesingar byrjuðu af miklum krafti og náðu ellefu stiga forystu seint í fyrsta leikhluta. Þá…Lesa meira

true

Örfáir miðar eftir á Þorrablót Skagamanna

Forsala á Þorrablót Skagamanna hófst í Íslandsbanka í morgun við opnun bankans. Löng biðröð var komin hálftíma áður og var gestum boðið inn í hlýjuna og kaffi þar til miðasala hófst. Klukkan tíu voru einungis um 30 miðar óseldir og því var létt yfir félögum í Club-71, sem skipuleggur samkomuna, þegar blaðamaður Skessuhorns hitti hópinn…Lesa meira