Fréttir

true

Hvasst í dag og kólnar í veðri

Fram undir hádegi verður sunnan hvassviðri og úrkoma.  Snýst síðan í vestan- og suðvestan storm um og fyrir miðjan daginn og hiti fellur hratt niður undir frostmark með éljum og tilheyrandi hálku á vegum um landið vestanvert. Samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni er að mestu greiðfært á Suður- og Vesturlandi en hálkublettir eru á Holtavörðuheiði og…Lesa meira

true

Þróunarfélag Snæfellinga veitti FSN veglegan styrk

Við útskriftarhátíð í Fjölbrautaskóla Snæfellinga skömmu fyrir jól var skólanum veittur styrkur að upphæð 2,5 milljónir króna frá Þróunarfélagi Snæfellinga. Er hann ætlaður til að efla kennslu og þróunarstarf sem stuðlað getur að aukinni menntun og fleiri atvinnutækifærum í sjávarútvegi á Snæfellsnesi. Það var Sturla Böðvarsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi og framkvæmdastjóri Þróunarfélagsins, sem tilkynnti við…Lesa meira

true

Styrkja Hestamannafélagið Dreyra

Akraneskaupstað barst nýverið erindi frá Hestamannafélaginu Dreyra þar sem óskað var eftir styrk til lokafrágangs við keppnisvöll félagsins við Æðarodda. Fyrir nokkrum árum var ákveðið að breyta keppnisvellinum þar sem hann var ólöglegur sem keppnisvöllur og erfiður yfirferðar í blautu veðri. Eftir framkvæmdir á vellinum kom í ljós að aðstæður voru ekki góðar á vellinum…Lesa meira

true

Stígamót taka upp þjónustu á Vesturlandi

Stígamót hafa ákveðið að hefja reglubundna þjónustu á Vesturlandi á tveggja vikna fresti. Starfsemin verður í Borgarnesi og í boði verða gjaldfrjáls viðtöl við félagsráðgjafa fyrir fólk af öllu Vesturlandi. Nú í þriðju viku janúar stendur til að samtökin haldi kynningarfundi víðsvegar um landshlutann og kynni þar bæði þjónustuna sem til stendur að veita og…Lesa meira

true

Gert ráð fyrir snörpum vindkviðum undir Hafnarfjalli

Í tilkynningu frá Vegagerðinni er varað við stormi í fyrramálið, fimmtudaginn 5. janúar. Gera ráð fyrir snörpum vindhviðum undir Hafnarfjalli, allt að 30-35 m/s, milli kl. 7:00 og 9:00 og ekki síður á Borgarfjarðarbraut norðan Hafnarfjalls. Þegar þessi orð eru rituð eru hálkublettir á fjallvegum víða á Vesturlandi; á Fróðárheiði, Vatnaleið, Bröttubrekku og Holtavörðuheiði en…Lesa meira

true

Leigubílstjóri tekur til starfa í Borgarnesi

Á morgun, fimmtudaginn 5. janúar, verður í fyrsta sinn í mörg ár hægt að panta far með leigubíl í Borgarnesi þegar Taxi Borgarnesi tekur til starfa. Að rekstri leigubílsins stendur Jón Kr. Kristjánsson leigubílstjóri. „Ég er kominn með leyfi og allt til alls og því ekkert annað að gera en að byrja. Ég ætla að…Lesa meira

true

Stærsta leikverkið sett upp í Frystiklefanum

Síðastliðinn föstudag var frumsýnt í Frystiklefanum í Rifi sýningin Journey to the centre of the Earth. Sýningin er sú stærsta sem sett hefur verið upp í Frystiklefanum frá upphafi en að verkinu kemur stórt lið alþjóðlegra listamanna, ásamt tæplega 20 börnum af Snæfellsnesi sem þreyta frumraun sína á stóra sviðinu í Rifi. Í sýningunni er…Lesa meira

true

„Ég held að þetta sé besta golf sem ég hef spilað“

Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi tryggði sér sem kunnugt er keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni, sterkustu mótaröð Evrópu, með glæsibrag eftir góða spilamennsku á úrtökumótum í Marokkó fyrir jólin. Hafnaði hún í 2. sæti á úrtökumótinu á samtals 15 höggum undir pari. Er það besti árangur sem íslenskur kylfingur hefur náð á…Lesa meira

true

Gott veður, forsetar, barnalán, hlaupagikkir og fleira kemur við sögu

Nú þegar árið 2017 er gengið í garð er vel við hæfi að líta til baka og velta fyrir sér árinu sem var að ljúka. Líkt og undanfarin ár leitaði Skessuhorn til nokkurra valinkunnra Vestlendinga víðsvegar um landshlutann og spurði þá spurninga um árið sem leið. Var fólk spurt að því hvað stóð upp úr…Lesa meira

true

Hálka á fjallvegum

Á fjallvegum á Vesturlandi og Vestfjörðum er víða hálka eða hálkublettir. Flughált er eins og er á Fróðárheiði, Kleifaheiði, Mikladal og Hálfdán. Ófært er á Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði.Lesa meira