Fréttir

true

Ölvun um áramót

Áramótagleði Vestlendinga fór að langmestu leyti vel fram, að því er fram kemur í dagbók Lögreglunnar á Vesturlandi. Þó kom lögregla alloft til aðstoðar vegna ýmiss konar vandræðagangs sem oftar en ekki tengdist ölvun. Á milli jóla og nýárs var ungur maður stöðvaður í akstri á Akranesi, grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Reyndist hann…Lesa meira

true

Reykhólahreppur fær styrk vegna hleðslustöðvar

Iðnaðar- og viðskiptaráðherra staðfesti á föstudag tillögur ráðgjafanefndar Orkusjóðs um veitingu styrkja til uppbyggingar innviða fyrir rafbíla á landsvísu til að tryggja aðgengi sem flestra landsmanna að loftslagsvænum samgöngumáta. Er verkefnið hluti af sóknaráætlun Íslands í loftslagsmálum, sem sett var fram í tengslum við 21. fund aðildarríkja lofslagssamningsins í París. Til ráðstöfunar úr Orkusjóði voru 67…Lesa meira

true

Lestrarátak til að búa til nýja bókaorma

Nú um áramótin hófst að nýju lestrarátak Ævars vísindamanns. Átakið hefur verið haldið tvisvar sinnum áður með þeim árangri að yfir 114 þúsund bækur voru lesnar. Því þótti Ævari Þór, leikara og rithöfundi, ærin ástæða til að halda áfram. Átakið stendur til 1. mars 2017 og er fyrir alla krakka í 1.-7. bekk. Í lok…Lesa meira

true

Vinnuhópur fjalli um hæfi ökumanna

Heilbrigðisráðherra hefur falið landlækni að skipa vinnuhóp til að fjalla um ökuleyfi og veikindi og breytt og bætt skipulag hvað þessi mál varðar. Ákvörðun ráðherra er í samræmi við tillögu Rannsóknarnefndar samgönguslysa til heilbrigðisráðherra sem fram kemur í nýrri skýrslu nefndarinnar. Í skýrslunni segir að það sé mat Rannsóknarnefndar samgönguslysa að ekki hafi tekist nægilega…Lesa meira

true

Smábátarnir komust loks á sjó

Smábátar frá Snæfellsnesi komust loks á sjó á föstudaginn eftir mikla ótíð frá því fyrir jól. Afli bátanna var góður og að sögn Friðbjörns Ásbjörnssonar framkvæmdastjóra Fiskmarkaðs Snæfellsbæjar var tekið á móti 21,3 tonni af fiski á föstudag. Gott verð fékkst fyrir aflann vegna verkfalls sjómanna á stærri skipum og reyndist meðalverð á þorski þennan…Lesa meira

true

Guðmundur Steinn aftur í raðir Víkings

Knattspyrnudeild Víkings Ólafsvík og Guðmundur Steinn Hafsteinsson hafa undirritað samning út keppnistímabilið 2017. Guðmundur lék með Víkingi á árunum 2011-2013 og spilaði á þeim tíma 79 leiki og skoraði 35 mörk. „Það er stjórn Víkings mikið ánægjuefni að skrifa undir samning við Guðmund Stein og fá þennan fyrrverandi leikmann í sínar raðir aftur,“ segir Jónas…Lesa meira

true

Vestanátt í kortunum

Spáð er allhvassri en síðar hvassri vestanátt, jafnvel verður stormur norðanlands og það hlánar smám saman í byggð. Á fjallvegum á Vestfjörðum og Norðurlandi má gera ráð fyrir að skafrenningur geti orðið til leiðinda og dregið úr skyggni þar sem laus snjór er fyrir, meðal annars á Holtavörðuheiði og Steingrímsfjarðarheiði. Á Öxnadalsheiði má þannig reikna…Lesa meira

true

Hafa stofnað söfnunarreikning vegna tjóns Færeyinga

Búið er að stofna söfnunarreikning þar sem Íslendingar geta lagt frændum sínum Færeyingum lið eftir tjón sem varð í hamfaraveðri um jólin. Facebooksíða söfnunarinnar heitir: „Færeyingar og Íslendingar eru frændur.“ Þá hefur verið opnaður söfnunarreikningur í Sparisjóði Strandamanna fyrir landssöfnunina (sjá mynd með upplýsingum). Búið er að hafa samband við færeyska ræðismanninn hér á landi…Lesa meira

true

Heiðursborgari jarðsettur í dag

Í dag verður borinn til grafar í Stykkishólmi Ágúst Guðmundur Bjartmars heiðursborgari Stykkishólmsbæjar. Ágúst var fæddur í Stykkishólmi 13. janúar 1924 og bjó þar alla tíð. Hann lést á Dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi 17. desember sl. þar sem hann dvaldi síðustu æviár sín. Ágúst var húsasmiður að mennt, var kvæntur Maggý Lárentsínusdóttur og eignuðust þau…Lesa meira