Fréttir

true

Leikið í Pepsi deild karla í kvöld

Fimm leikir fara fram í Pepsi deild karla í knattspyrnu í kvöld. Víkingur Ó. mætir ÍBV á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum. Sá leikur hefst kl. 18:00. Ólafsvíkingar hafa fullt hús stiga eftir tvo leiki en Eyjamenn hafa unnið einn og tapað einum. ÍA mætir Fjölni á Akranesvelli í fyrsta heimaleik sumarsins. Hefst hann kl. 19:15. Skagamenn…Lesa meira

true

Blómasetrið – Kaffi kyrrð fagnar tíu ára afmæli

Óhætt er að segja að Borgnesingurinn Unnsteinn Arason bæti það upp ef hann á það til að gleyma merkilegum dögum. Konudaginn árið 2005 kom það einmitt fyrir að hann gleymdi að kaupa blóm fyrir konuna sína, Svövu Víglundsdóttur. „Ég gerði þau mistök ekki aftur og gaf henni heila blómabúð árið eftir,“ segir Unnsteinn og hlær.…Lesa meira

true

“Að vestan” vikulega til allra landsmanna á N4

“Við hjá N4 höfum á undanförnum misserum fært markvisst út kvíarnar. Stafræn upplýsingatækni gerir það að verkum að stöðin nær nú til svo að segja allra heimila landsins. Hryggjarstykkið í okkar dagskrárgerð eru þættirnir með forskeytið “Að” og okkar stefna er að þessir þættir séu framleiddir af fólki sem býr á viðkomandi svæðum. Þátturinn “Að…Lesa meira

true

Sýning á verkum Fríðu opnuð í Átthagastofunni

Sýning á verkum eftir Hallfríði Eiðsdóttur var opnuð í Átthagastofu Snæfellsbæjar 4. maí síðastliðinn. Það er Félag eldri borgara í Snæfellsbæ sem stendur fyrir sýningunni. Guðrún Tryggvadóttir bauð gesti velkomna og opnaði sýninguna. Í ræðu sinni fór hún yfir það hvernig það kom til að félagið eignaðist þessa muni og af hverju sýningin er haldin.…Lesa meira

true

Segir starf skólans hafa verið farsælt og vel staðið á bakvið það

Lárus Sighvatsson lætur af störfum sem skólastjóri Tónlistarskólans á Akranesi þegar kennslu lýkur nú í vor. Hann hefur gegnt stöðunni í rúmlega þrjá áratugi. „Ég flutti á Akranes 1981 og fór að kenna í tónlistarskólanum, þangað sem ég var ráðinn sem blásarakennari. Ég tók síðan við af Jóni Karli Einarssyni sem skólastjóri fjórum árum síðar,“…Lesa meira

true

Fjórlembt hjá frístundabóndanum Guðmundi

Sauðburður stendur nú víða yfir í fjárhúsum landsins, er hann af mörgum talinn skemmtilegasti tími ársins og hinn sanni vorboði, þótt veðrið láti misjafnlega. Ljósmyndari Skessuhorns kíkti við í húsunum hjá Guðmundi Ólafssyni tómstundabónda í Ólafsvík í vikunni sem leið. Guðmundur er með 33 ær á húsi sem hafa heldur betur verið frjósamar í ár.…Lesa meira

true

Ferðablaðið Travel West 2016 komið í dreifingu

Þá á vel við að Hilmar Sigvaldason vitavörður á Akranesi fengi fyrstu eintökin afhent af nýju Ferðablaði Vesturlands þegar þau komu úr prentun í morgun. Hilmar stendur vakt alla daga vikunnar í Akranesvita og mætir auk þess ef hann er beðinn að opna vitann og leiðsegir gestum um svæðið. Hann er auk þess óþreytandi að…Lesa meira

true

Grunnur að hóteli og íbúðum í miðbæ Borgarness

Starfsmenn Borgarverks í Borgarnesi er nú langt komnir með að moka grunn fyrir húsin sem reisa á við Borgarbraut 57-59 í Borgarnesi. Eins og fram hefur komið í fréttum Skessuhorns verður annars vegar byggt 85 herbergja, fjögurra stjörnu hótel og hins vegar 26 þjónustuíbúðir fyrir aldraða. Á jarðhæð verður þjónusturými og bílageymsla verða undir hluta…Lesa meira

true

Nýir rekstraraðilar opna Garðakaffi á næstu dögum

Á næstu dögum verður Garðakaffi á Akranesi opnað á nýjan leik. Hjónin Auður Líndal og Baldur Ólafsson hafa tekið við sem nýir rekstraraðilar kaffihússins. Að sögn Auðar er allt á fullu í undirbúningi og stefna þau á að opna sem allra fyrst. Garðakaffi verður rekið með breyttu sniði frá því sem áður var. „Ég vona…Lesa meira