Fréttir

true

Fjögur ungmenni sluppu úr brennandi bíl

Eldur kviknaði í bíl rétt við bæinn Brautarholt í Dölum á sjöunda tímanum í gærkveldi. Fjögur ungmenni voru í bílnum og komust þau sjálf út þegar eldsins varð vart og sakaði ekki. Slökkvilið Dalabyggðar fór á staðinn og slökkti eldinn en bíllinn er gjörónýtur. Þetta er annað skiptið í desember sem slökkviliðið er kallað út…Lesa meira

true

Northern Wave hlaut samfélagsstyrk

Samfélagssjóður Landsbankans úthlutaði nýverið samfélagsstyrkjum að upphæð 15 milljónum króna. Alls hlutu 32 verkefni styrki að þessu sinni. Öll eru þau fjölbreytt en eiga það sameiginlegt að gagnast fólki á öllum aldri og víða um land. Samfélagsstyrkjum Landsbankans er ætlað að styðja mannúðar- og líknarmál, menntamál, rannsóknir og vísindi, forvarnar- og æskulýðsstarf, sértæka útgáfustarfsemi og…Lesa meira

true

Vakt vegna frétta og tilkynninga á vef

Jólablað Skessuhorns var jafnframt síðasta blað ársins. Næst kemur blaðið út miðvikudaginn 4. janúar 2017. Starfsfólk Skessuhorns undirbýr vinnslu nýársblaðs dagana 28., 29. og 30. desember, sem og 2. og 3. janúar. Ef fólk þarf að koma áríðandi tilkynningum á vef Skessuhorns í dag er bent á að senda tölvupóst á netfangið magnus@skessuhorn.is eða hringja…Lesa meira

true

Asahláku og roki spáð í fyrramálið og framan af degi

Búist er við sunnan stormi eða roki á morgun með talsverðri rigningu og asahláku. Fólk er því hvatt til að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón. Í og við fjalllendi er hætt við vatnsaga og krapa- og aurflóðum úr giljum og rásum. Einnig má búast við talsverðum vatnavöxtum í ám sunnan- og vestantil á…Lesa meira

true

Snjóþekja og hálka á vegum

Í dag verður víða þokkalegasta veður fram eftir degi en vaxandi suðaustanátt með slyddu og síðan rigningu er spáð á sunnan- og vestanverðu landinu síðdegis. Búast má við snjókomu á Hellisheiði, Lyngdalsheiði og Mosfellsheiði síðdegis og fram á kvöld, einnig á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku, en úrkoman færist yfir í slyddu og síðan rigningu þegar líður á kvöldið.…Lesa meira

true

Gleðileg jól!

Skessuhorn – Fréttaveita Vesturlands, sendir lesendum sínum til sjávar og sveita ósk um gleðileg, friðsöm og falleg jól.Lesa meira

true

Úrslit í ljósmyndasamkeppni Skessuhorns

Ljósmyndasamkeppni Skessuhorns meðal grunnskólanema í 8. – 10. bekk skóla á Vesturlandi var haldin í fyrsta sinn nú í desember. Gátu þátttakendur sent inn ljósmyndir í gegnum tölvupóst eða samfélagsmiðilinn Instagram undir myllumerkinu #skessujól. Þema myndanna var „aðventan“ og barst fjöldi skemmtilegra mynda í keppnina. Vinningshafi í keppninni er Unndís Ida Ingvarsdóttir, 13 ára nemandi…Lesa meira

true

Gagnleg ráð og ábendingar vegna eldvarna og slysahættu um hátíðirnar

Kannanir hafa sýnt að eldvarnir eru ófullnægjandi á mörgum heimilum og íbúarnir því berskjaldaðir fyrir eldsvoðum. Hættan er mest þegar líður að jólum þegar skreytingum fjölgar. Svo um sjálfar hátíðirnar þarf að passa upp á enn fleira, svo sem raforkunotkun, ástand reykskynjara, logandi kerti og margt fleira. Í ljósi þess að nú gengur í garð…Lesa meira

true

Valdís Þóra fékk konunglegar móttökur

Í gærkvöldi stóðu Golfklúbburinn Leynir, Golfsamband Íslands og Forskot afrekssjóður fyrir móttöku í golfskálanum við Garðavöll á Akranesi þar sem Valdís Þóra Jónsdóttir kylfingur var boðin velkomin heim eftir frækilega ferð til Marokko. Tilefnið var að Valdís Þóra tryggði sér keppnisrétt á Evrópumótaröðinni í golfi 2017 en úrtökumótinu lauk fyrr í vikunni. Hún fékk fjölmargar…Lesa meira

true

Helgihald á Vesturlandi um jól og áramót

Líkt og hefð er fyrir birtist listi yfir helgihald á Vesturlandi um hátíðirnar í Jólablaði Skessuhorns. Hér má sjá þann lista í heild sinni eftir prestaköllum. Athugið að hann er birtur með fyrirvara um breytingar i dagskrá og aðra dagskrárliði sem ekki var kunnugt um þegar Skessuhorn var sent í prentun.   Garðaprestakall á Akranesi…Lesa meira