Fréttir

true

„Trúi því statt og stöðugt að þetta muni bera ávöxt“

Æðarsetur Íslands í Stykkishólmi var opnað með lítilli sýningu í Norska húsinu árið 2011 og var þar opið í tvö ár þangað til það var flutt í núverandi húsnæði, sem byggt var undir starfsemina. Setrið er hugarfóstur Erlu Friðriksdóttur og föður hennar Friðriks Jónssonar. Skessuhorn hitti Erlu að máli og ræddi við hana um æðarfuglinn…Lesa meira

true

Vilja taka myndir innan úr norðurljósunum

Samúel Þór Guðjónsson kallar sjálfan sig radíóamatör, en hann hefur frá unga aldri haft brennandi áhuga á fjarskiptum og raftækjum. Hann segir að flestir innan radíóamatörabransans hafi bent á hann árið 2012 þegar tveir Bandaríkjamenn voru að leita sér að samstarfsmanni til að senda upp loftbelg á Íslandi. Þeir komust í samband við Samúel í…Lesa meira

true

Vísnagerð Jakobs Jónssonar frá Varmalæk – hundrað ára minning

Í Jólablaði Skessuhorns er hefð fyrir því að kynna einn hagyrðing. Að þessu sinni er vísnahorn Dagbjartar Dagbjartssonar helgað vísnagerð Jakobs Jónssonar frá Varmalæk, sem hefði orðið hundrað ára fyrr í mánuðinum hefði hann lifað en hann var fæddur 7. desember 1916. Kannske mætti giska á að lífshlaup hans hefði ekki verið fjölbreytt því á…Lesa meira

true

Borgarfjarðardætur með jólatónleika

Sönghópurinn Borgarfjarðardætur mun halda tvenna jólatónleika á milli jóla og nýárs. Fyrri tónleikarnir verða haldnir í Reykholtskirkju miðvikudaginn 28. desember kl. 20:30 en þeir síðari í Hallgrímskirkju í Saurbæ fimmtudaginn 29. desember, einnig kl. 20:30. Sönghópinn skipa fimm ungar og efnilegar tónlistardömur úr Borgarfirði, sem allar eru menntaðar í klassískum söng eða píanóleik. Þær eru…Lesa meira

true

Banaslys í umferðinni

Banaslys varð á Holtavörðuheiði klukkan 14:30 í dag. Tildrög slyssins voru þau að fólksbifreið á norðurleið og jepplingur á suðurleið lentu í árekstri með þeim afleiðingum að ökumaður fólksbifreiðarinnar lést. Farþegi og ökumaður jepplingsins sluppu með lítil meiðsli en voru fluttir með þyrlu á slysadeild í Fossvogi til skoðunar og aðhlynningar. Að sögn lögreglu voru…Lesa meira

true

Umferðarslys í Norðurárdal

Tveggja bíla árekstur varð á sunnanverðri Holtavörðuheiði, ekki langt frá Fornahvammi, á þriðja tímanum í dag. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð á svæðið til að flytja slasaða af vettvangi. Þyrlan er nú á fimmta tímanum í þann mund að komast til Reykjavíkur með hina slösuðu. Veðuraðstæður voru slæmar í Norðurárdal þegar slysið varð.Lesa meira

true

Lögreglan varar við hálku á Vesturlandsvegi

Mikil hálka er núna á Vesturlandsvegi og eru ökumenn beðnir að sýna ýtrustu varkárni við aksturinn og ekki leggja í ferðalög á vanbúnum bílum. Í dag hafa orðið tvær bílveltur á veginum milli Akraness og Borgarness en sem betur fer hefur enginn slasast alvarlega, að sögn lögreglu.Lesa meira

true

Baneitruðum eiturefnasprengjum var varpað í Faxaflóann

Sementsverksmiðjan er ekki lengur vinnustaður sem iðar af lífi, þar sem hundruðir höfðu atvinnu. Í dag stendur verksmiðjan að mestu leyti auð þótt þar sé geymt og afgreitt innflutt sement. Minningarnar um vinnustaðinn lifa þó enn með þeim sem vörðu fjölmörgum árum ævi sinnar innan veggja verksmiðjunnar. Og sumar minningar eru eftirminnilegri en aðrar. Á…Lesa meira

true

„Það er frábært að starfa við sauðfjárbúskap“

Á bænum Kringlu í Mið-Dölum hóf nýverið búskap ungt par, Arnar Freyr Þorbjarnarson og Fjóla Mikaelsdóttir. Skessuhorn tók hús á þeim Arnari og Fjólu á dögunum og ræddi við þau um búskapinn og lífið í sveitinni. Fyrst leikur blaðamanni forvitni á að vita hvort þau eigi tengsl í Dalina. Kemur þá á daginn að Arnar…Lesa meira

true

Tekið á móti Valdísi Þóru

Golfklúbburinn Leynir á Akranesi, Golfsamband Íslands og Forskot afrekssjóður ætla að taka vel á móti Valdísi Þóru Jónsdóttur kylfingi með móttöku í golfskála Leynis við Garðavöll á Akranesi í kvöld, fimmtudaginn 22. desember. Athöfnin hefst kl. 20.30 og eru allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir, segir í fréttatilkynningu.Lesa meira