Fréttir

true

Samfleytt á sólarhringsvakt í næstum fjörtíu ár

Ingibjörg Kristjánsdóttir, iðulega kennd við bæinn Garpsdal við Gilsfjörð, hefur reynt ýmislegt á sinni starfsævi. Hún var heilsugæsluhjúkrunarfræðingur þar sem nú heitir Reykhólahreppur í rúma þrjá áratugi og síðar hjúkrunarforstjóri Silfurtúns í Búðardal. Auk þess var hún ein af forgöngumönnum sem börðust fyrir uppbyggingu Barmahlíðar á Reykhólum. Má segja að í starfi sínu hafi Ingibjörg…Lesa meira

true

„Ef maður vill að það sé líf í samfélaginu, þá verður maður sjálfur að taka þátt“

Hún er sveitakona af lífi og sál. Hún býr í Ausu í Andakíl þar sem hún sinnir sínum hobbýbúskap, starfar á Hvanneyri og tekur virkan þátt í ýmsu félagsstarfi í sínu héraði. Ragnhildur Helga Jónsdóttir er brautarstjóri náttúru- og umhverfisbrautar Landbúnaðarháskóla Íslands og kennir bæði við háskóla- og bændadeild skólans. Hún ber mikla virðingu fyrir…Lesa meira

true

„Við Snæfellingar áttum að spila með í kvótakerfinu en ekki hlusta á Vestfirðinga“

„Aðkoma fjölskyldunnar að þessu fyrirtæki nær lengra aftur en aldur minn segir til um,“ segir Ólafur Rögnvaldsson framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss Hellissands þegar rætt er við hann um fyrirtækið sem nú má segja að sé dæmigert fjölskyldufyrirtæki. „Þannig var að pabbi, Rögnvaldur Ólafsson, var fæddur á Brimilsvöllum hér rétt innan við og hafði um árabil komið að…Lesa meira

true

Grunnskólanemendur í Snæfellsbæ starfræktu útvarpsstöð

Nú á aðventunni var í fyrsta sinn rekið útvarp á vegum Grunnskóla Snæfellsbæjar. Sent var út á tíðninni 103,5 og náðust útsendingar í Ólafsvík, Rifi, Hellissandi og í Grundarfirði. Jafnframt var sent út á netinu. „Við höfum haft spurnir af hlustendum víða um heim. Útsendingartíminn var 32 klukkustundir. Ýmist var sent út í beinni eða…Lesa meira

true

„Man eftir því þegar Stasi-menn bönkuðu upp á hjá okkur“

Christiane Klee fæddist 16. febrúar árið 1975 í Magdeburg í Þýska alþýðulýðveldinu, sem í daglegu tali Íslendinga var á sínum tíma einfaldlega þekkt sem Austur-Þýskaland. Þannig er raunar enn vísað til hins fallna ríkis þegar það ber á góma. Austur-Þýskaland var sem kunnugt er stofnað á hernámssvæði Sovétríkjanna eftir síðari heimsstyrjöldina og hafist var handa…Lesa meira

true

Óhöpp án slysa

Einn ökumaður var tekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna í vikunni sem leið. Að sögn lögreglu voru fimm umferðaróhöpp í umdæmi LVL í vikunni, en öll voru þau án teljandi meiðsla að því best er vitað og allir með öryggisbeltin spennt. Talið er að ökumaðurinn hafi sofnað undir stýri er bíll fór útaf Akrafjallsvegi…Lesa meira

true

Kveðjur úr héraði

Það er gamall og góður siður að senda jólabréf, en þau voru fyrr á dögum hugsuð sem nokkurs konar ítarefni með jólakveðjum. Í jólabréfum voru, auk þess að senda kveðju til heimilisfólks, sagðar fréttir úr sveitinni. Í upphafi aðventu leitaði Skessuhorn til tíu valinkunnra kvenna af Vesturlandi og voru þær beðnar að senda lesendum Skessuhorns…Lesa meira

true

Hurðir skreyttar í Grunnskóla Grundarfjarðar

Samkeppnir um best skreyttu deildir, jólahurðir eða kaffistofur hafa notið vaxandi hylli á undanförnum árum. Í Grunnskóla Grundarfjarðar var nú blásið til jólahurðasamkeppni þar sem nemendur og kennarar gáfu hugmyndafluginu lausan tauminn í hurðarskreytingum. Fjöldinn allur af hurðum var skreyttur og mátti sjá fjölbreyttar útgáfur af jólaskreytingum. Þar á meðal voru hurðir skreyttar með þjóðsögum…Lesa meira

true

Sigurjón Einarsson áhugaljósmyndari er sagnaritari samtímans

Áhugaljósmyndarar eru víða og fer þeim fjölgandi eftir að stafræn ljósmyndatækni gerði slíkt áhugamál í senn auðveldara og ódýrara en þegar framkalla þurfti filmur. Þeir eru þó ekki margir sem taka þetta áhugamál svo alvarlega að ljósmyndunin sé framar flestu öðru sem þeir taka sér fyrir hendur. Mjög víða stunda áhugaljósmyndarar ómetanlega samtímaskráningu fyrir sín…Lesa meira

true

Valdís Þóra tryggði sér keppnisrétt á Evrópumótaröðinni

Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, spilaði frábært golf á lokahring lokaúrtökumóts LET Evrópumótaraðarinnar í Marokkó í dag. Hún lék síðasta hringinn á 68 höggum, eða fjórum höggum undir pari og er sem stendur í öðru sæti og hefur tryggt sér keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni, sterkustu mótaröð Evrópu. Er árangur Valdísar sá besti sem…Lesa meira