Fréttir

true

Hurðir skreyttar í Grunnskóla Grundarfjarðar

Samkeppnir um best skreyttu deildir, jólahurðir eða kaffistofur hafa notið vaxandi hylli á undanförnum árum. Í Grunnskóla Grundarfjarðar var nú blásið til jólahurðasamkeppni þar sem nemendur og kennarar gáfu hugmyndafluginu lausan tauminn í hurðarskreytingum. Fjöldinn allur af hurðum var skreyttur og mátti sjá fjölbreyttar útgáfur af jólaskreytingum. Þar á meðal voru hurðir skreyttar með þjóðsögum…Lesa meira

true

Sigurjón Einarsson áhugaljósmyndari er sagnaritari samtímans

Áhugaljósmyndarar eru víða og fer þeim fjölgandi eftir að stafræn ljósmyndatækni gerði slíkt áhugamál í senn auðveldara og ódýrara en þegar framkalla þurfti filmur. Þeir eru þó ekki margir sem taka þetta áhugamál svo alvarlega að ljósmyndunin sé framar flestu öðru sem þeir taka sér fyrir hendur. Mjög víða stunda áhugaljósmyndarar ómetanlega samtímaskráningu fyrir sín…Lesa meira

true

Valdís Þóra tryggði sér keppnisrétt á Evrópumótaröðinni

Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, spilaði frábært golf á lokahring lokaúrtökumóts LET Evrópumótaraðarinnar í Marokkó í dag. Hún lék síðasta hringinn á 68 höggum, eða fjórum höggum undir pari og er sem stendur í öðru sæti og hefur tryggt sér keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni, sterkustu mótaröð Evrópu. Er árangur Valdísar sá besti sem…Lesa meira

true

„Heimurinn er svo lítill núna“

Guðbjörg Rós Guðnadóttir heillaðist af flugi skömmu eftir stúdentspróf. Hún er alin upp í Tungu í Svínadal, gekk í Heiðarskóla og kláraði stúdentspróf úr Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi í lok árs 2009. Í dag hefur hún flogið um allan heim með Air Atlanta og bíður eftir að hefja störf sem flugmaður hjá Icelandair. „Þegar ég…Lesa meira

true

Mokstursbíll fór út af

Snjómokstursbíll Vegagerðarinnar lenti utanvegar milli Kolgrafafjarðar og Grundarfjarðar í morgun þegar unnið var við mokstur. Nokkur hálka var á veginum og snjór. Enginn slys urðu á fólki né skemmdir á tækjum og var bílnum komið upp á veg aftur nokkru síðar með aðstoð beltagröfu.Lesa meira

true

Glæsilegar kaffistofur í Grundaskóla

Árleg kaffistofukeppni kennara í Grundaskóla á Akranesi var haldin síðasta föstudag í níunda sinn. Starfsfólk skólans keppir um hverjir eiga best skreyttu deildarkaffistofuna í skólanum og hvert stig skreytti sína deild eftir ákveðnu þema. Líkt og undanfarin ár var mikill metnaður lagður í skreytingarnar og mikið fjör í skólanum. Yngsta stigið var skreytt eftir þemanu…Lesa meira

true

Smyglaði þremur bandarískum drengjum frá Írak

Birna G. Hjaltadóttir fæddist í heimahúsi á Bakkatúni 22 á Akranesi árið 1948. Mamma hennar var Sigríður Einarsdóttir á Bakka. Birna hefur alla tíð haft sterk tengsl við Akranes og þegar hún gengur um götur æskuslóðanna flæða frá henni sögurnar af gömlum tímum um sögur húsanna og fyrri íbúa þeirra. Hún fór í framhaldsnám í…Lesa meira

true

Gestir skoðuðu fjósin á Erpsstöðum

Rjómabúið á Erpsstöðum í Dölum var með opið fjós á fjórða sunnudegi í aðventu. Boðið var upp á kynnisferðir um sali Rjómabúsins og leiðsögn. Einnig gat fólk skoðað gamla fjósið á Erpsstöðum sem nýlega hefur farið í gegnum miklar endurbætur en þar hafa verið endurnýjaðar innréttingar og gerðir legubásar fyrir geldneyti. Rúmar gamla fjósið nú…Lesa meira

true

Jólablað Skessuhorns er komið út

Hið árlega Jólablað Skessuhorns er komið út og er nú í dreifingu til áskrifenda og á lausasölustaði. Blaðið er 104 síður að þessu sinni og stappfullt af efni. Meðal efnis er fréttaannáll ársins, viðtöl við fjölda fólks, kveðjur úr héraði, sagnaritari samtímans sóttur heim, farið yfir væntingar til jóla og minningar frá hátíðinni, sögulegt efni,…Lesa meira

true

Jólakrossgáta og -myndagáta í Skessuhorni

Sem fyrr birtir Skessuhorn hátíðarútgáfu af krossgátu í Jólablaði Skessuhorns. Lesendur geta nú glímt við að leysa hana yfir hátíðirnar og sent inn lausn. Þá geta lesendur einnig spreytt sig á að leysa jólamyndagátu og tekið þátt í skemmtilegum leik. Réttar lausnir fyrir myndagátuna berist Skessuhorni, merkt; “Myndagáta,” Kirkjubraut 56, 300 Akranesi. Einnig má senda…Lesa meira