Fréttir

true

Fjölbreytt aðventudagskrá í Stykkishólmi

Stykkishólmur er ekki frábrugðinn öðrum stórborgum í aðdraganda jóla. Þar eru jólatónleikar og markaðir af ýmsu tagi.  Í Stykkishólmskirkju skemmtu söngsveitin Blær og karlakórinn Kári áheyrendum með söng sínum undir stjórn Hólmfríðar Friðjónsdóttur. Það er gaman að segja frá því að söngsveitin Blær flutti meðal annars þekkt lög við texta eftir Hólmarann Ægi Breiðfjörð Jóhannsson.…Lesa meira

true

Hefur mikinn tölvuáhuga og nýtir tæknina

Hún er fædd í desember 1935 og uppalin í Dalsmynni í Eyjahreppi á Snæfellsnesi þar til hún náði 12 ára aldri. Þá selja foreldrar hennar jörðina og flytja í Kópavog þar sem þau eru meðal frumbyggja í bæ sem rétt er að byrja að verða til í sveitinni við voginn. Hún var í hópi fyrstu…Lesa meira

true

Auður Íris hætt í bili

Auður Íris Ólafsdóttir, sem leikið hefur með Skallagrími í Domino‘s deild kvenna það sem af er vetri, er hætt körfuknattleiksiðkun um sinni. Mun hún því ekki leika meira með Borgarnesliðinu á yfirstandandi keppnistímabili. Í frétt á karfan.is er haft eftir Auði Írisi að ákvörðun hennar sé ekki tilkomin vegna óánægju með spilatíma eða neins í…Lesa meira

true

Brotist inn í hótelafgreiðslu

Aðfararnótt sunnudagsins síðasta var farið inn í afgreiðslu Hótel Bifrastar og stolið þar nokkrum munum og lítilræði af peningum. Að sögn lögreglu hafðist upp á þjófunum sem reyndust tveir saman. Við yfirheyrslur játuðu þeir verknaðinn. Þýfinu höfðu þeir skipt á milli sín en það fannst á heimilum þeirra og var því komið til skila.Lesa meira

true

Opna samvinnurýmið „Coworking Akranes“ um áramótin

Félagarnir Heiðar Mar Björnsson og Heimir Berg Vilhjálmsson hafa undanfarið unnið hörðum höndum að því að setja upp vinnurými við Ægisbraut 30 á Akranesi. Um er að ræða svokallað samvinnurými þar sem fólk getur leigt sér vinnuaðstöðu í skapandi umhverfi. Báðir eru þeir tiltölulega nýfluttir í bæinn og fannst þeim vanta slíka aðstöðu á Skaganum.…Lesa meira

true

Valdís Þóra í 4.-.6 sæti fyrir lokahringinn

Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi, lék fjórða hringinn á lokaúrtökumótinu fyrir LET Evrópumótaröðina, sterkustu mótaröð Evrópu, á 65 höggum eða samtals sjö höggum undir pari. Samanlagt er hún því á ellefu höggum undir pari. Er Valdís í 4.-6. sæti fyrir lokahring mótsins og því því örugg áfram á sem ein þeirra 60 kylfinga…Lesa meira

true

Tvö snæfellsk sjávarútvegsfyrirtæki vinna mál gegn Landsbankanum

Hæstiréttur kvað í dag upp tvo dóma í sambærilegum málum sem snerta snæfellsk sjávarútvegsfyrirtæki. Annars vegar Hraðfrystihús Hellissands í Rifi og hins vegar Guðmund Runólfsson hf. í Grundarfirði. Í báðum tilfellum sneri Hæstiréttur við niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur frá 8. janúar 2016 og dæmdi sjávarútvegsfyrirtækjunum í hag. Landsbankinn var dæmdur til að greiða Hraðfrystihúsi Hellissands 1,16…Lesa meira

true

Tók þátt í teiknisamkeppni þrátt fyrir handleggsbrot

Að venju var góð þátttaka í jólamyndasamkeppni grunnskólanema, sem Skessuhorn heldur á ári hverju. Hundruð teikninga bárust í keppnina frá börnum á aldrinum sex til tólf ára. Á flestum teikninganna má sjá að börnin vanda sig mikið og leggja mörg þeirra mikla vinnu í að skila inn sem flottastri mynd. Sumir eru þó tilbúnir að…Lesa meira

true

Veðrið mun versna síðdegis og í kvöld

Mjög djúp lægð er nú skammt vestur af landinu. Sunnan lægðarmiðjunnar er vindstrengur með vestan stormi. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að útlit sé fyrir að vindstrengurinn komi inn á suðvestanvert landið síðdegis og yfir suðvesturhornið með allt að 18-23 m/s með hríðarveðri og á köflum litlu skyggni. Síðdegis færist síðan veðrið norður með vestanverðu…Lesa meira

true

Borgnesingur sigraði í Draumaliðsdeild Azazo

Nýverið kom í ljós að sigurvegari draumaliðsdeildar Azazo 2016 er Óliver Kristján Fjeldsted, ungur Borgnesingur. Fékk hann að launum glæsilegan síma. Önnur verðlaun, sex mánaða áskrift af Sportpakka 365, fóru til Vöndu Sigurgeirsdóttur fyrrverandi landsliðskonu og fjölskyldu hennar en þau mynduðu saman eitt lið. Bjarki Hvannberg hlaut svo gjafabréf í þriðju verðlaun en aðeins örfá…Lesa meira