Fréttir

true

Breytingar á aðventudagskrá á Akranesi

Menningar- og safnanefnd Akraneskaupstaðar hefur kynnt dagskrá fyrir aðventusamkomur sem framundan eru í bæjarfélaginu. Bryddað er upp á nýbreytni og breytingum í dagskrá frá því sem íbúar hafa vanist. Meðal annars verða ljósin á jólatrénu á Akratorgi tendruð mánudagsmorguninn 28. nóvember kl. 10:00, í stað þess að halda þá samkomu fyrstu helgina í aðventu eins…Lesa meira

true

Íbúafundur um aðalskipulag í Grundarfirði

Mánudaginn 21. nóvember næstkomandi er ráðgert að í Grundarfirði verði haldinn opinn íbúafundur í tengslum við endurskoðun aðalskipulags Grundarfjarðarbæjar. Á fundinum á að kynna grunnvinna sem farið hefur fram við endurskoðun aðalskipulagsins og leitað til íbúanna um ýmis atriði sem snerta daglegt líf þeirra og framtíðaruppbyggingu svæðisins. Bæjarstjórn Grundarfjarðar samþykkti í október 2014 að farið…Lesa meira

true

Borgarbyggð uppfyllir nú skilyrði eftirlitsnefndar

Fjárhagsáætlun Borgarbyggðar fyrir næsta ár sem og þriggja ára áætlun var lögð fram á fundi sveitarstjórnar í síðustu viku og samþykkt til síðari umræðu. Geirlaug Jóhannsdóttir fulltrúi meirihlutans fylgdi áætluninni úr hlaði. Þar kemur fram að gert er ráð fyrir að rekstrarafgangur verði 130,7 milljónir króna fyrir A og B hluta sveitarsjóðs og að veltufé…Lesa meira

true

Samningar hafa nú náðst við alla sjómenn

Nú hafa öll félög sjómanna og vélstjóra samið við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi um nýja kjarasamninga. Öllum verkföllum sjómanna hefur því verið frestað. Kynningar á gerðum kjarasamningum og atkvæðagreiðslur fara nú fram. Verkfalli þeirra sem síðast sömdu lýkur formlega klukkan 14 í dag. Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur og Sjómannafélag Íslands undirrituðu nýjan kjarasamning í gær…Lesa meira

true

Íslensk heimili efla varnir gegn eldsvoðum

Íslendingar auka eldvarnir á heimilum sínum jafnt og þétt samkvæmt rannsóknum sem Gallup hefur gert fyrir Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Eldvarnabandalagið á undanförnum tíu árum. Nýjasta rannsókn Gallup sýnir að nú eru allt í senn reykskynjarar, eldvarnateppi og slökkvitæki á yfir helmingi íslenskra heimila í fyrsta sinn frá því mælingar hófust. Heimilum sem eiga…Lesa meira

true

Opinn fundur um þjóðlendumál í Borgarnesi

Sem kunnugt er felldi óbyggðanefnd úrskurð sinn í umfjöllun um þjóðlendumál innan Borgarbyggðar í lok septembermánaðar. Nú hefur verið boðað til opins fundar í Borgarnesi um þessa niðurstöðu nefndarinnar. Fer hann fram í Hjálmakletti í kvöld, miðvikudaginn 16. nóvember og hefst kl. 20:00. Til fundarins mæta Friðbjörn Garðarsson lögmaður, en hann fór með þann hluta…Lesa meira

true

Dagur nýsköpunar á Vesturlandi framundan

Dagur nýsköpunar og úthlutunarhátíð Uppbyggingasjóðs Vesturlands verður haldin í Landnámssetrinu í Borgarnesi miðvikudaginn 23. nóvember næstkomandi. Úthlutað verður styrkjum úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands til nýsköpunar í atvinnulífi, en úthlutað er úr sjóðnum til nýsköpunar tvisvar á ári. Síðast var úthlutað í lok marsmánaðar og er því um seinni úthlutun þessa árs að ræða. Bjarni Már Gylfason…Lesa meira

true

Innlend fataverslun nýtur ekki góðs af vaxandi einkaneyslu

Flestir geirar íslenskrar verslunar njóta góðs af auknum kaupmætti og vaxandi einkaneyslu. Jafnframt er ljóst að aukinn straumur erlendra ferðamanna hefur talsverð áhrif á verslun. Í október síðastliðnum var heildargreiðslukortavelta erlendra ferðamanna 17,5 milljarðar króna sem er 67,1% hærri upphæð en í október í fyrra. En þessara áhrifa gætir ekki á öllum sviðum. Samkvæmt nýrri…Lesa meira

true

Tvímenningsmót hálfnað hjá BB

Aðaltvímenningur Briddsfélags Borgarfjarðar er nú í fullum gangi, en keppnin stendur yfir í fimm vikur og að vanda er spilað á mánudögum í Logalandi. Til leiks mættu 15 pör og er því yfirseta í mótinu en hún reynist mönnum oft á tíðum vel til stigasöfnunar. Sveinn Hallgrímsson hefur farið mikinn í mótinu og leitt það…Lesa meira

true

Dóp fannst við húsleit

Ætlað amfetamín, kannabis og læknadóp fannst við húsleit í kjallaraíbúð á Akranesi um liðna helgi. Fjórir piltar voru handteknir og færðir til yfirheyrslu hjá Lögrelunni á Vesturlandi. Tveir piltanna voru undir lögaldri.Lesa meira