Fréttir

true

Blóði safnað í dag á Akranesi

Hinn fagurrauði bíll Blóðbanka Íslands er í dag, þriðjudag klukkan 10-18, staðsettur á bílaplani Ráðhússins við Stillholt 16-18 á Akranesi. Starfsfólk Blóðbankans hvetur Skagamenn og nærsveitunga til að mæta og gefa blóð. Lífsnauðsynlegt er að fá a.m.k. 70 blóðgjafa á dag til að viðhalda lágmarksbirgðum í landinu.Lesa meira

true

Skallagrímur féll úr bikarnum eftir spennandi lokamínútur

Skallagrímur mætti 1. deildar liði Vals í 16 liða úrslitum Maltbikars karla í gærkvöldi. Leikið var á Hlíðarenda og voru það heimamenn sem héldu áfram bikarævintýri sínu. Þeir sigruðu nokkuð óvænt, 108-103 og slógu þar með annað úrvalsdeildarliðið út úr bikarnum, en í fyrstu umferð lögðu þeir Snæfell. Mikið jafnræði var með liðunum í upphafi…Lesa meira

true

Jóna Alla komin áfram í The Voice

Skagamærin Jóna Alla Axelsdóttir heldur áfram þátttöku sinni í þættinum The Voice Iceland sem sýndur er á sjónvarpi Símans. Það var mikil spenna sem ríkti í þættinum síðastliðið föstudagskvöld þegar Jóna Alla háði einvígi á móti Alexöndru Dögg Einarsdóttur, en þær eru tvær af yngstu keppendum ársins. Stúlkurnar grættu feður sína og þjálfarann sinn, Sölku…Lesa meira

true

Hanna Jónsdóttir tilnefnd til hvatningarverðlauna ÖBÍ

Hvatningaverðlaun Öryrkjabandalags Íslands voru veitt í Hörpu um liðna helgi. Athöfnin var hátíðleg en þetta var í tíunda sinn sem verðlaunin voru veitt. Tilgangur þeirra er að varpa ljósi á þá sem hafa á jákvæðan hátt stuðlað að einu samfélagi fyrir alla. Veitt voru verðlaun í þremur flokkum; flokki einstaklinga, flokki fyrirtækja/stofnana og flokki umfjöllunar/kynningar.…Lesa meira

true

Segja lögregluna vanta fimm milljarða

Lögreglustjórafélag Íslands sendi í gær frá sér yfirlýsingu til nýs þings, sem kemur saman í dag, þar sem lögreglustjórar landsins kveðast binda vonir við auknar fjárheimildir til lögreglunnar í nýju fjárlagafrumvarpi. „Starfandi lögreglumönnum við lögregluembætti og hjá Lögregluskóla ríkisins fækkaði um 70 á tímabilinu febrúar 2007 til febrúar 2016 og þeim fer enn fækkandi. Samkvæmt…Lesa meira

true

N1 fékk Ljósberann afhentan

Eins og komið hefur fram í Skessuhorni var viðurkenningin Ljósberi afhent á Sauðamessu sem fram fór í Borgarnesi 1. október síðastliðinn. Viðurkenningin er afhent þeim fyrirtækjum og stofnunum í Borgarbyggð sem veita einstaklingum með fötlun atvinnu. Alls voru það sex fyrirtæki sem fengu viðurkenningu þetta árið. Eitt þeirra var N1 í Borgarnesi.  Herdís Jónsdóttir, stöðvarstjóri…Lesa meira

true

Biskup afléttir búsetuskyldu sóknarprests á Staðastað

Þorvaldur Víðisson biskupsritari ritaði nýverið formönnum sóknarnefnda í Staðastaðarprestakalli á Snæfellsnesi bréf þar sem tilkynnt var um ákvörðun Agnesar Sigurðardóttur biskups um að aflétta búsetuskyldu sóknarprests á kirkjustaðnum Staðastað. Samkvæmt heimildum Skessuhorns er prestsbústaðurinn talinn óíbúðarhæfur sökum myglusvepps. Í bréfi biskupsritara kemur ekki fram hvort ákvörðun þessi er varanleg eða til skamms tíma. Séra Þorvaldur…Lesa meira

true

Nýr kennsluvefur í skák kominn í loftið

Friðrik Ólafsson stórmeistari í skák opnaði í dag formlega nýja vefsíðu, http://skakkennsla.is  Á henni er að finna fjölbreytt úrval kennslumyndbanda í skák.  Markmiðið með gerð vefsíðunnar er að auðvelda aðgengi að náms- og kynningarefni á íslensku um skák sem einkum nýtist börnum sem eru að læra að tefla, skákkennurum í skólum og foreldrum sem vilja…Lesa meira

true

Fjórir sækja um stöðu forstjóra HVE

Fjórir umsækjendur eru um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vesturlands sem velferðarráðuneytið auglýsti laust til umsóknar í byrjun nóvember síðastliðnum. Umsækjendur eru Birkir Már Kristinsson sjúkraþjálfari, Erna Einarsdóttir hjúkrunarfræðingur, Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir hjúkrunarfræðingur og Jóhannes Finnur Halldórsson viðskiptafræðingur. Þriggja manna nefnd sem skipuð er af heilbrigðisráðherra í samræmi við lög um heilbrigðisþjónustu metur hæfni umsækjenda um stöður…Lesa meira

true

Akraneskaupstaður veitir FVA milljón til tækjakaupa

Bæjarráð Akraneskaupstaðar tók fyrir á fundi sínum 24. nóvember síðastliðinn erindi frá skólameistara Fjölbrautaskóla Vesturlands, Ágústu Elínu Ingþórsdóttur. Í erindinu var óskað eftir fjárstuðningi til tækjakaupa við skólann. Vísað er til þess að þau sveitarfélög sem eiga aðild að samningi um FVA hafi tekið þátt í kostnaði við tækjakaup fyrir skólann og er þakkaður sá…Lesa meira