Fréttir

true

Engin millilending spóans frá Íslandi til Vestur-Afríku

Nú hefur ráðgátan um flug íslenska spóans verið leyst. Vísindamenn Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Suðurlandi hafa ásamt samstarfsfólki sýnt fram á að spóinn flýgur án viðkomu frá Íslandi alla leið til Vestur-Afríku. Spóinn flýgur í allt að fimm sólarhringa samfellt og leggur að baki hátt á sjötta þúsund kílómetra í beinu flugi. Niðurstöðurnar byggja á…Lesa meira

true

Fagnaður á laugardaginn í tilefni 100 ára afmælis Skallagríms

Ungmennafélagið Skallagrímur í Borgarnesi fagnar 100 ára afmæli á þessu ári. Laugardaginn 3. desember næstkomandi verður íbúum Borgarbyggðar boðið í afmæliskaffi í Hjálmakletti klukkan 14, þar sem þessara tímamóta í sögu Skallagríms verður fagnað. Þar verða rifjaðir upp ýmsir eftirminnilegir þættir úr sögu félagsins og leikdeild Skallagríms slær á létta strengi.  Íbúar eru hvattir til…Lesa meira

true

Aðgæsla nauðsynleg á vettvangi óhappa

Vörubílstjóri sem var að fjarlægja bíl á Holtavörðuheiði, sem hafði farið þar útaf og verið var að ná aftur upp á veginn, kvartaði sáran yfir óaðgæslu og hraðakstri ökumanna.  Sagði maðurinn í samtali við lögreglu að hann hefði verið með öll tilheyrandi blikkljós og aðvörunarljós í gangi en margir ökumenn hefðu ekkert slegið af þegar…Lesa meira

true

Garðar Gunnlaugs og Ólafur Valur framlengja við ÍA

Markahrókurinn Garðar Gunnlaugsson hefur framlengt samning sinn við ÍA um tvö ár og mun því leika með liðinu út leiktímabilið 2018. Garðar gekk til liðs við ÍA á nýjan leik árið 2012 þegar hann sneri heim úr atvinnumennsku.  Hefur hann síðan þá upplifað tímana tvenna með ÍA en undanfarin þrjú ár hefur liðið átt prýðilegu…Lesa meira

true

Talsvert um óhöpp en öll án alvarlega slysa

Alls urðu fimm umferðaróhöpp í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku. Ökumaður fólksbíls missti bíl sinn útaf veginum í hálku á Bröttubrekku á laugardaginn og valt bíllinn síðan heilan hring og hafnaði á hjólunum. Tvennt var í bílnum og voru bæði í öryggisbeltum. Slapp fólkið með minniháttar skrámur. Þá varð árekstur tveggja bíla á…Lesa meira

true

Berg er ræktunarbú Snæfellings 2016

Uppskeruhátið hestamannafélagsins Snæfellings fór fram í Klifi í Ólafsvík á laugardagskvöldið. Þar voru veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur á árinu, bæði í keppni og ræktun. Öll börn, unglingar og ungmenni sem höfðu keppt á árinu fengu viðurkenningu. Hestaíþróttamaður ársins hjá Snæfellingi var Siguroddur Pétursson og Þotuskjöldinn fékk Nadine E. Walter fyrir æskulýðsstarf. Ræktunarbú ársins hjá…Lesa meira

true

Afhenda öllum sveitarfélögum hraðhleðslustöðvar

Fyrirtækið Orkustöðin ehf. mun fyrir árslok afhenda öllum sveitarfélögum landsins hraðhleðslustöðvar fyrir rafbíla. Er það liður í átaki fyrirtækisins til að bæta aðgengi eigenda rafmagnsbíla að hleðslustöðvum og hvetja á þann hátt til notkunar rafmagnsbíla. Um miðjan þennan mánuð var nokkrum sveitarfélögum á Vesturlandi afhentar slíkar stöðvar, meðal annars í Borgarbyggð. Á fundi byggðarráðs í…Lesa meira

true

Ungt fólk sér fjölda tækifæra í heimabyggð

Nýverið boðaði svæðisskipulagsnefnd fyrir landssvæði Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar til opins fundar í húsnæði Alta við Ármúla í Reykjavík. Bar fundurinn yfirskriftina „Heimahagarnir og hamingjan“ og var sérstaklega ætlaður ungu fólki, 30 ára og yngri, sem kemur frá sveitarfélögunum þremur en er búsett á höfuðborgarsvæðinu eða í nágrenni þess. Skipulagsráðgjafar Alta kynntu vinnu við gerð…Lesa meira

true

Spenna fram á síðasta spil

Aðaltvímenningskeppni Briddsfélags Borgarfjarðar lauk í gær. Fimmtán pör tóku þátt á mótinu og dreifðist keppnin á fimm kvöldum. Sjaldan í sögu félagsins hefur spennan verið jafn mikil, en úrslit réðust ekki fyrr en í lokaspili. Úrslit urðu þau að Jón Eyjólfsson og Baldur Björnsson höfðu sigur, með 56,2% skori, hársbreidd á undan þeim Jóni Einarssyni…Lesa meira

true

Fordæma slæman aðbúnað varphænsna hjá Brúneggjum

Í Kastljósi Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi var fjallað um málefni eggjaframleiðandans Brúneggja ehf. sem reka bú á Kjalarnesi og í Borgarfirði. Þar kom meðal annars fram að fyrirtækið hefur ekki sinnt aðfinnslum Matvælastofnunar með fullnægjandi hætti vegna athugasemda um aðbúnað dýra. Skort hefur á viðeigandi ráðstafanir til að mæta kröfum sem gerðar eru til eggjaframleiðenda. Auk…Lesa meira