Fréttir

true

Hrútaskráin er komin út

Hrútaskrá sauðfjársæðingastöðvanna 2016-2017 er nú aðgengileg á vef Rannsóknarmiðstöðvar landbúnaðarins, www.rml.is og er einnig komin út í prentútgáfunni. Hrútaskráin er 52 síður, litprentuð í A4-broti og þar er að finna upplýsingar um 48 hrúta sem notaðir verða til sæðinga í vetur, auk ljósmynda af hrútunum. „Hrútakosturinn er að venju gríðarlega öflugur, blanda af reynsluboltum sæðingastöðvanna…Lesa meira

true

Ljós og náttúra Vesturlands – ný sýning í Safnahúsinu í Borgarnesi

Næstkomandi sunnudag, þann 27. nóvember, verður opnuð ný sýning í Hallsteinssal í Safnahúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi. Þar sýnir Jón R. Hilmarsson ljósmyndir sem hann hefur tekið á Vesturlandi. Myndefnið er birtan sem slær landslagið töfrum og framkallar liti sem linsan nær að fanga. Jón býr ásamt fjölskyldu sinni í Melahverfi sunnan Skarðsheiðar. Hann hefur stundað…Lesa meira

true

Verulega dregur úr atvinnuleysi

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 197.600 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í október 2016, sem jafngildir 82,5% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 192.200 starfandi og 5.400 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 80,2% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 2,7%. Samanburður mælinga fyrir október 2015 og 2016 sýnir…Lesa meira

true

Hljómsveitin Þrír á Spotify

Fyrsta plata hljómsveitarinnar Þrír er nú aðgengileg á Spotify. Platan ber titilinn „Allt er þegar Þrír er“ og skartar ellefu frumsömdum lögum. Hljómsveitarmeðlimir eru þrír en tveir þeirra eru frá Stykkishólmi. Hljómsveitin hefur oft komið fram í Stykkishólmi og nágrenni og er því Hólmurum vel kunn. Jón Torfi Arason, gítarleikari og söngvari sveitarinnar, segir plötuna…Lesa meira

true

Opnað fyrir umsóknir um húsnæðisbætur

Vinnumálastofnun opnaði 21. nóvember sl. Greiðslustofu húsnæðisbóta og upplýsinga- og umsóknarvefinn www.husbot.is. Þar geta leigjendur sótt um húsnæðisbætur samkvæmt nýjum lögum um húsnæðisbætur sem taka gildi 1. janúar næstkomandi. Lög nr. 75/2006 um húsnæðisbætur voru samþykkt á Alþingi sl. sumar og taka gildi 1. janúar 2017. Á sama tíma falla úr gildi lög um húsaleigubætur…Lesa meira

true

Jólabingó kvenfélagsins 19. júní er á föstudaginn

Hið árlega jólabingó Kvenfélagsins 19. júní verður haldið í matsal Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri föstudaginn 25. nóvember kl. 20:00. Ágóðinn rennur til líknarmála innan héraðs. Í tilkynningu frá félaginu segir að veglegir vinningar séu að vanda í boði, en spjaldið er selt á 1000 krónur (enginn posi er á staðnum).Lesa meira

true

Útvarp Akraness senn í loftið

Segja má að jólaundirbúningurinn hjá Skagamönnum hefjist á því að Útvarp Akranes fer í loftið fyrstu helgina í aðventu. Sundfélag Akraness hefur staðið fyrir útvarpinu í 28 ár og safnar fjármunum fyrir starfseminni með seldum auglýsingum. Að venju er útvarpað á FM 95,0 og hefst útsending hefst næsta föstudag klukkan 13 með því að Óli…Lesa meira

true

Skora á fjarskiptafyrirtæki að bæta farsímasamband

Bæjarstjórn Snæfellsbæjar skorar á fjarskiptafyrirtæki að bæta farsímasamband í sunnanverðu sveitarfélaginu, eða í Staðarsveit og Breiðuvíkurhreppi. Þar er GSM samband slæmt og nokkrir bæir sem varla hafa farsímasamband að nokkru ráði. Þetta kemur fram í ályktun bæjarstjórnar þar sem bæjarstjórn lýsir yfir þungum áhyggjum af slæmu GSM, 3G og 4G farsímasambandi. Í ályktuninni segir að…Lesa meira

true

Viðbúnaður vegna neyðarblyss

Talsverður viðbúnaður var vegna neyðarblyss sem sást á lofti utan við Rifshöfn á Snæfellsnesi um klukkan 7:30 í morgun. Björgunarbáturinn Björg, bátar á svæðinu, björgunarsveitarmenn og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kölluð út til leitar. Nú hefur leit verið afturkölluð enda er ekki kunnugt um að báts sé saknað. Gott veður er á Snæfellsnesi. Jafnvel er talið…Lesa meira

true

Fáklæddir á göngu

Tilkynnt var í tvígang um nakta eða fáklædda menn á gangi utandyra á Akranesi í liðinni viku. Annar þeirra fannst á röltinu og var honum komið til aðstoðar en hinn er ófundinn. Sá var að vísu bara ber að ofan. „Höfðu menn á orði að þarna væru hraustmenni á ferð þar sem hitastigið var með…Lesa meira