Fréttir

true

Samstarf Skallagríms og Fram skilar fyrsta titlinum

Sameiginlegt lið Skallagríms og Fram varð í síðustu viku Reykjavíkurmeistari í 3. flokki drengja í keppni B liða. Sigruðu þeir Víking R. með þremur mörkum gegn engu í lokaleik mótsins og luku keppni með fullt hús stiga. Þeir unnu alla fimm leiki sína, skoruðu 30 mörk en fengu aðeins á sig fimm. Þetta kemur fram…Lesa meira

true

Sala á SÁÁ álfinum hefst í dag

Árleg álfasala SÁÁ hefst um land allt í dag, 10. maí og stendur fram á sunnudaginn 15. maí.  Hún er nú haldin í 27. skipti. Álfasalan er stærsta fjáröflunarverkefni SÁÁ ár hvert. Allur ágóði af sölunni rennur til að greiða fyrir þjónustu SÁÁ við ungt fólk, bæði afeitrun og meðferð, sálfræðiþjónustu barna eða aðra þjónustu…Lesa meira

true

Rafmagnslaust á hluta Akraness í dag

Vegna gangsetningar nýrrar aðveitustöðvar á Akranesi verðu rafmagnslaust í eftirtöldum götum þriðjudaginn 10. maí. „Ekki verður rafmagnslaust nema í ca 30 til 40 mínútur á hverjum stað,“ segir í tilkynningu á heimasíðu Veitna.   Milli kl. 09:00 og 12:00 Baugalundur 28 Skógarflöt 1 til 29 og 2 til 26 Míluskápur Tindaflöt 1 til 5 og…Lesa meira

true

Fjórir í framboði til formanns Samfylkingarinnar

Framboðsfrestur vegna formannskjörs Samfylkingarinnar rann út á hádegi síðastliðinn laugardag og verða fjórir í kjöri. Eins og fram kom í fréttum daginn áður, dró núverandi formaður; Árni Páll Árnason, framboð sitt til baka. Í framboði til formanns Samfylkingar verða: Guðmundur Ari Sigurjónsson æskulýðsfulltrúi og bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Seltjarnarnesi, Helgi Hjörvar þingflokksformaður Samfylkingarinnar, Magnús Orri Scram…Lesa meira

true

Helga Sjöfn kjörin formaður ÍA fyrst kvenna

Afmælisþing Íþróttabandalags Akraness fór fram þriðjudaginn 3. maí síðastliðinn. Þingið var vel sótt en um var að ræða 72. ársþing ÍA. Á þinginu var Helga Sjöfn Jóhannesdóttir kjörin formaður ÍA og er hún fyrsta konan í 70 ára sögu félagsins til að gegna því embætti. Helga Sjöfn er fædd árið 1985, hún er Skagamaður í…Lesa meira

true

Útlit fyrir gott sumar í Bjarkalundi

Hótel Bjarkalundur í Reykhólasveit var formlega opnað um mánaðamótin og munu dyr hótelsins standa gestum opnar út októbermánuð. „Við opnuðum formlega 1. maí en vorum þá reyndar búin að taka á móti gestum frá því á sumardaginn fyrsta. Verðum við með opið fyrir almenna gistingu og veitingar út október,“ segir Logi Guðjónsson hótelstjóri í samtali…Lesa meira

true

Sóttu vélarvana bát

Sjóflokkur Björgunarfélags Akraness fékk útkall um klukkan 6 í morgun með beiðni um að koma vélarvana strandveiðibát til aðstoðar. Trillan var stödd 12 mílur vestan við Akranes við svokallað Hraun. Farið var á björgunarbátnum Margréti Guðbrandsdóttur, dráttartóg komið í bátinn og hann dreginn í land. Að sögn Jóns Gunnars Ingibergssonar félaga í sjóflokki BA gekk…Lesa meira

true

Landmælingar Íslands sextíu ára

Í tilefni þess að Landmælinga Íslands eiga 60 ára afmæli á þessu ári býður stofnunin til afmælisráðstefnu föstudaginn 20. maí næstkomandi á Akranesi. Hún verður haldinn í Tónbergi frá klukkan 9 til 12. Þar verður lögð áherslu á notendur gagna og þjónustu Landmælinga Íslands og fjölbreytt dagskrá í boði (sjá nánar í auglýsingum í þessari…Lesa meira

true

Ólafur Ragnar hættir við framboð

Ólafur Ragnar Grímsson mun ekki gefa kost á sér til endurkjörs til forseta Íslands í komandi kosningum. Þetta kom fram í yfirlýsingu frá forsetanum sem send var fjölmiðlum rétt í þessu. Ólafur hafði í nýársávarpi sínu til íslensku þjóðarinnar 1. janúar tilkynnt að hann myndi ekki gefa kost á sér til endurkjörs, en breytti þeirri…Lesa meira

true

Sigur í fyrsta heimaleik Víkings

Víkingur Ólafsvík lék fyrsta heimaleik sinn í Pepsi deild karla í gær þegar Valur kom í heimsókn. Jafnræði var með liðunum fyrstu 20 mínútur leiksins þar til Víkingur komst yfir á 24. mínútu eftir mistök í vörn Vals. Cristian Liberato átti langa spyrnu frá marki sínu. Ingvar Kale, markvörður gestanna, kallaði hátt og snjallt að varnarmenn…Lesa meira