
Umferðaróhapp varð á Skagabraut á Akranesi eftir hádegi í dag. Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að hann ók utan í tvo kyrrstæða og mannlausa bíla sem lagt hafði verið í götunni. Tildrög óhappsins eru ókunn og ekki urðu slys á fólki. Ökumanninum, sem var einn í bílnum, var þó komið undir læknishendur…Lesa meira








