Fréttir

true

Skagamenn mæta í Kaplakrikann í kvöld

Karlalið ÍA í knattspyrnu mætir suður í Hafnarfjörð í kvöld og spilar þar við FH-inga klukkan 19:15 í annarri umferð Íslandsmótsins. FH er með einn sigur og því þrjú stig í deildinni en ÍA situr á botninum án stiga og með óhagstæðustu markatöluna. Spáð er prýðilegu veðri og ættu stuðningmenn gulklæddra að fjölmenna á völlinn.  …Lesa meira

true

Davíð Oddsson vill verða forseti Íslands

Davíð Oddsson ritstjóri Morgunblaðsins og fyrrverandi borgarstjóri í Reykjavík og forsætisráðherra hefur ákveðið að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands í kosningunum 25. júní nk. Frá þessu greindi Davíð á útvarpsstöðinni Bylgjunni í morgun. Fram kom í viðtalinu að örfáir dagar eru síðan hann fór að velta því fyrir sér af alvöru að bjóða…Lesa meira

true

Skóflustunga tekin að tveimur blokkum á Akranesi

Síðdegis í dag var fyrsta skóflustungan tekin að tveimur nýjum íbúðablokkum við Asparskóga 27 og 29 á Akranesi. Það er fyrirtækið Uppbygging ehf., í eigu Engilberts Runólfssonar byggingaverktaka, sem reisir húsin. Í hvoru húsi um sig verða 12 íbúðir, þriggja og fjögurra herbergja, 100-125 fermetrar með geymslum. Þær verða seldar fullbúnar með innréttingum og gólfefnum. Þessi…Lesa meira

true

Rafmagn komið á á Akranesi að nýju

Rafmagnslaust varð á Akranesi síðdegis í dag og var bærinn straumlaus í um hálftíma. Búið er að koma rafmagni á að nýju. Að sögn starfsmanna Veitna varð bilun í aðveitustöð og verið að er að finna út úr hvað fór úrskeiðis.Lesa meira

true

Árni Páll hættir við formannsframboð

Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar hefur tilkynnt að hann sé hættur við að gefa kost á sér til endurkjörs í stöðu formanns. Þetta gerði hann í dag, aðeins viku eftir að hann boðaði til blaðamannafundar til að tilkynna formlega um framboð fyrir landsfund sem haldinn verður í sumar. Í bréfi til flokksfélaga sinna sagði formaðurinn…Lesa meira

true

Vestlendingar sópa til sín verðlaunum

Snemma á fjórða tímanum í dag var gert upp tímabilið í Domino‘s deildum karla og kvenna í körfuknattleik, sem og 1. deildum karla og kvenna. Skemmst er frá því að segja að Vestlendingar sópuðu til sín verðlaunum. Íslandsmeistararnir með fjölda viðurkenninga Úrvalslið Domino‘s deildar kvenna skipa Gunnhildur Gunnarsdóttir og Bryndís Guðmundsdóttir úr Snæfelli, Borgnesingurinn Sigrún…Lesa meira

true

Bylting í búsetuskilyrðum

Í Sjónvarpi Skessuhorns er í dag rætt við Harald Benediktsson bónda og alþingismann og formann starfshóps um Ísland ljóstengt. Nú hefur Fjarskiptasjóður útdeilt fyrstu styrkjum til að ljósleiðaravæða heimili í dreifbýli. Gjörbylting búsetuskilyrða fæst með ljósleiðaraverkefni. Áskell Þórisson ræðir hér við Harald í Sjónvarpi Skessuhorns.Lesa meira

true

Hefja tengingu húsa á Akranesi við nýja aðveitustöð

Starfsfólk Veitna mun á tímabilinu 9. til 20. maí tengja nýja aðveitustöð rafmagns við rafdreifikerfið á Akranesi. Húsin í bænum verða rafmagnslaus tímabundið meðan spennustöðvar og strengir verða tengdir við nýju aðveitustöðina. Rafmagnslaust getur orðið frá hálfri klukkustund upp í tvo tíma hjá hverjum viðskiptavini. Tengingarnar verða gerðar í um 50 áföngum og afmarkað svæði…Lesa meira

true

Eva Hlín ráðin verkefnastjóri Unglingalandsmóts

  Eva Hlín Alfreðsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri Unglingalandsmóts UMFÍ sem fram fer í Borgarnesi um verslunarmannahelgina. Hún mun vinna að skipulagningu mótsins með Ómari Braga Stefánssyni, landsfulltrúa og framkvæmdastjóra landsmóta UMFÍ. Eva Hlín er á heimavelli í Borgarnesi en hefur búið í Borgarbyggð undanfarinn áratug. Hún lauk námi í viðskiptafræði við Háskólann á Bifröst…Lesa meira

true

VS Tölvuþjónusta á Akranesi fær alþjóðlega vottun

VS Tölvuþjónusta ehf. á Akranesi fékk nýverið staðfesta alþjóðlega upplýsingaöryggisvottun á starfsemi sína á Íslandi samkvæmt staðlinum ISO 27001. Um er að ræða alþjóðlegan staðal frá vottunarstofunni BSI og felur vottunin í sér að fyrirtækið uppfyllir fyrirfram staðlaðar kröfur sem byggja á árlegum úttektum á fyrirtækinu. VS Tölvuþjónusta hefur verið starfandi frá því í júlí…Lesa meira