Fréttir

true

Hefja tengingu húsa á Akranesi við nýja aðveitustöð

Starfsfólk Veitna mun á tímabilinu 9. til 20. maí tengja nýja aðveitustöð rafmagns við rafdreifikerfið á Akranesi. Húsin í bænum verða rafmagnslaus tímabundið meðan spennustöðvar og strengir verða tengdir við nýju aðveitustöðina. Rafmagnslaust getur orðið frá hálfri klukkustund upp í tvo tíma hjá hverjum viðskiptavini. Tengingarnar verða gerðar í um 50 áföngum og afmarkað svæði…Lesa meira

true

Eva Hlín ráðin verkefnastjóri Unglingalandsmóts

  Eva Hlín Alfreðsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri Unglingalandsmóts UMFÍ sem fram fer í Borgarnesi um verslunarmannahelgina. Hún mun vinna að skipulagningu mótsins með Ómari Braga Stefánssyni, landsfulltrúa og framkvæmdastjóra landsmóta UMFÍ. Eva Hlín er á heimavelli í Borgarnesi en hefur búið í Borgarbyggð undanfarinn áratug. Hún lauk námi í viðskiptafræði við Háskólann á Bifröst…Lesa meira

true

VS Tölvuþjónusta á Akranesi fær alþjóðlega vottun

VS Tölvuþjónusta ehf. á Akranesi fékk nýverið staðfesta alþjóðlega upplýsingaöryggisvottun á starfsemi sína á Íslandi samkvæmt staðlinum ISO 27001. Um er að ræða alþjóðlegan staðal frá vottunarstofunni BSI og felur vottunin í sér að fyrirtækið uppfyllir fyrirfram staðlaðar kröfur sem byggja á árlegum úttektum á fyrirtækinu. VS Tölvuþjónusta hefur verið starfandi frá því í júlí…Lesa meira

true

Vilja lækka komugjöld til geðlækna

Stjórn Geðhjálpar hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem skorað er á heilbrigðisráðherra að lækka komugjöld til geðlækna í fyrirliggjandi frumvarpi um sjúktratryggingar. „Ef frumvarpið verður að lögum hækkar meðalkostnaður öryrkja við geðlæknisþjónustu úr um 20.000 kr. í 63.500 kr. eða um 43.000 kr. á ári. Stjórnin lítur svo á að stefna beri að því…Lesa meira

true

Spurt í þaula

Fyrra undanúrslitakvöld í spurningakeppni Snæfellsbæjar fór fram í Röst á Hellissandi síðasta föstudagskvöld. Að venju voru það Lionskonur í Þernunni sem stóðu fyrir kvöldinu. Fjögur lið af sex sem komust í undanúrslit tóku þátt, lið Valafells keppti á móti liði GSNB Ólafsvík og lið Átthagastofu keppti á móti GSNB Hellissandi – skvísur. Búið var að…Lesa meira

true

Sigurfari óskar stuðningsaðila

Fyrir utan hefðbundið félagsstarf í Sigurfara – Sjósportsfélagi Akraness er markmið félagsins að starfrækja siglingaskóla fyrir börn og unglinga á sumrin. „Til þess þarf t.d. kænur, kajaka, árabáta og gúmmíbát með utanborðsmótor. Bátana er hægt að merkja áberandi með nafni styrktaraðila, þannig að á ferðinni sé lifandi auglýsing fyrir utan Langasandinn,“ segir í tilkynningu frá…Lesa meira

true

Nýr snjalltækjavænn vefur Skessuhorns í loftið

Nýr vefur Skessuhorns fór í loftið í dag. Vera kann að meðan færsla hans stendur yfir geti komið rof um tíma, eða gamli vefurinn komið upp aftur. Lesendur eru beðnir að sýna því biðlund. Nýr vefur byggir á Open source forritun og er um margt ólíkur eldri fréttaveitum Vesturlands. Vefurinn er forritaður og gerður hjá…Lesa meira

true

Fyrstir í land með strandveiðiskammt vorsins

  Segja má að strandveiðarnar hafi byrjað með látum í Grundarfirði á mánudaginn, fyrsta strandveiðidegi  ársins. 25 bátar fóru til strandveiða og náðu þeir allir dagsskammtinum. Bræðurnir Ásgeir Þór og Heimir Þór Ásgeirssynir voru fyrstir í land á bátnum Petru ST-20 en þeir lögðu af stað rétt fyrir klukkan fjögur um morguninn. „Við fórum snemma…Lesa meira

true

Kiwanis gaf hjartahnoðtæki í þyrlur Landhelgisgæslunnar

Styrktarsjóður Kiwanisumdæmisins Ísland/Færeyjar og kiwanisklúbbarnir Elliði, Eldey, Esja, Hekla og Dyngja gáfu fyrr í vikunni Lucas2 hjartahnoðtæki til notkunar í þyrlum Landhelgisgæslunnar. Fór afhendingin fram á þyrlupallinum við Landspítalann í Fossvogi. Georg Kristinn Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar veitti tækinu viðtöku fyrir hönd Landhelgisgæslunnar ásamt áhöfnum þyrla Landhelgisgæslunnar. Tækið sem Kiwanis gaf mun skipta sköpum í umönnun…Lesa meira

true

Knattspyrnusumarið hafið hjá yngri flokkunum

Nú er vorið klárlega komið og sumarið rétt handan við hornið. Þá fara fyrstu fótboltamótin að detta í gang. Snæfellsnessamstarfið hefur undanfarnar tvær helgar sent lið á TM mót Stjörnunnar í Garðabæ og hafa liðin staðið sig vel og gleðin verið í fyrirrúmi. Þessir kátu drengir voru að ljúka keppni um hádegisbil síðastliðinn sunnudag þegar…Lesa meira