
Á Sauðamessu sem fram fór í Borgarnesi síðastliðinn laugardag voru árlegar umhverfisviðurkenningar Borgarbyggðar afhentar. Kallað var eftir tilnefningum og er það umhverfis,- skipulags- og landbúnaðarnefnd sem annast framkvæmdina. Jónína Erna Arnardóttir formaður nefndarinnar afhenti verðlaunin ásamt Gunnlaugi A Júlíussyni sveitarstjóra. Að þessu sinni var snyrtilegasta bændabýlið Ölvaldsstaðir 4 í Borgarbyggð þar sem Guðrún Fjeldsted býr…Lesa meira








