
Á lofti Halldórsfjóss á Hvanneyri er Bókaloftið rekið en það er góðgerðamarkaður með notaðar bækur. Frumkvöðullinn að verkefninu og umsjónamaður þess er Ásdís B. Geirdal, einnig þekkt sem Dísa í Lækjartúni. Þann 17. september síðastliðinn átti Bókaloftið eins árs afmæli og af því tilefni gaf Dísa allan ágóða síðasta árs, 120.000 krónur, til Ungmennafélagsins Íslendings.…Lesa meira








