Fréttir

true

Óvissustigi lýst yfir vegna Kötlu

Ríkislögreglustjórinn, í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi, ákvað um helgina að virkja „Viðbragðsáætlun vegna eldgoss undir Mýrdalsjökli“ á óvissustigi. Jarðskjálftahrina hófst um hádegisbilið 29. september og stóð um helgina enn yfir. „Vísindaráð almannavarna telur líklegt að hrinan stafi af kvikuhreyfingum í Kötlu, en enn hafa engin merki um gosóróa mælst. Eftirfarandi atburðarrásir eru taldar líklegastar: …Lesa meira

true

Rauði krossinn búinn að opna búð í gamla pósthúsinu

Það fór vel á því að á Sauðamessu í Borgarnesi síðastliðinn laugardag væri fyrsti opnunardagur í nýrri verslun Borgarfjarðardeildar Rauða kross Íslands. Fjölmenni var statt í Borgarnesi og margir sem gerðu sér ferð í nýju búðina til að skoða og gera góð kaup. Þau Kiddi Jói, Sesselja og Kjartan formaður stóðu vaktina þennan fyrsta opnunardag…Lesa meira

true

Nýr bátur til heimahafnar í Rifi

Útgerðarfélagið Hjallasandur ehf. á Hellissandi hefur fest kaup á nýjum báti, Sandvík EA frá Árskógsströnd. Var bátnum siglt til hafnar í Rifi síðastliðinn miðvikudag. Sandvík er 43 brúttótonna bátur, smíðaður árið 1996 á Ísafirði. Fyrir á Hjallasandur minni bát sem verður seldur. Mun Sandvíkin fá nafnið Bára SH og er Örn Arnarson skipstjóri. Báturinn verður…Lesa meira

true

Sigurður Ingi kjörinn formaður Framsóknarflokksins

Nú rétt í þessu voru kynnt í Háskólabíói úrslit í formannskosningu Framsóknarflokksins. Alls kusu 703. Úrslit urðu þau að Sigurður Ingi Jóhannsson forstætisráðherra var kjörinn formaður með 52,6%, hlaut 370 atkvæði. Lilja Alfreðsdóttir hlaut þrjú atkvæði, en auður og/eða ógildur seðill var einn. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fráfarandi formaður hlaut 46,8%, eða 329 atkvæði. Í kjölfar…Lesa meira

true

Víkingur og ÍA áfram í deild þeirra bestu – Garðar fékk gullskóinn

Lokaumferð Pepsí deildar karla í knattspyrnu var spiluð í gær. Fyrir þessa umferð gat það orðið hlutskipti Víkings Ólafsvík eða Fylkis að falla í Inkassó deildina, þ.e. 1. deild. Þrátt fyrir 4:1 tap Víkings gegn Stjörnunni heldur liðið áfram í Pepsí deild þar sem Fylkir tapaði á sama tíma á útivelli 3-0 fyrir KR. Það…Lesa meira

true

Höfnuðu út í Hraunhafnará

Síðdegis á föstudaginn varð útafkeyrsla við Hraunhafnará í Staðarsveit á Snæfellsnesi. Missti ökumaður stjórn á bílnum sem hafnaði í ánni. Fjórar japanskar stúlkur voru í bifreiðinni og sakaði þær ekki. Brostu þær og veifaðu til fréttaritara sem átti þarna leið hjá. Voru þær í óðaönn að mynda bílinn. Var bifreiðin svo flutt suður til Reykjavíkur…Lesa meira

true

Hvalur strandaður á leirunum við Borgarnes

Um sjö metra löng hrefna sást í morgun strönduð á leirunum í Borgarvogi, skammt norðan við leikskólann Klettaborg í Borgarnesi. Nú skömmu fyrir hádegi var enn lífsmark með hvalnum, en lögregla hefur lokað svæðinu til að fólk fari sér ekki að voða við að komast of nærri. Dýrið er sært og því er talið líklegt…Lesa meira

true

Meistarar meistaranna spila á morgun

Á morgun, sunnudaginn 2. október, er komið að hinum árlegu leikjum Íslandsmeistara og bikarmeistara karla og kvenna í körfu, frá síðasta keppnistímabili. Leikið verður að þessu sinni á heimavelli Íslandsmeistara karla og fara leikirnir því fram í DHL-höll KR-inga. Í báðum tilfellum eru Íslandsmeistarar síðasta árs, KR hjá körlum og Snæfell hjá konum, tvöfaldir meistarar,…Lesa meira

true

Leikmenn Víkings og stuðningsmenn leggja allt undir

Gríðarleg stemning er meðal stuðningsmanna knattspyrnuliðs Víkings í Ólafsvík fyrir síðustu umferðina. Lokaleikur mótsins verður spilaður á morgun, laugardag þegar Víkingur mætir Stjörnunni á Samsung vellinum í Garðabæ klukkan 14. Víkingsliðið er í fallhættu og í harðri baráttu við Fylki sem mætir KR á sama tíma í Frostaskjólinu. Stuðningsmenn Víkings ætla að fjölmenna á leikinn…Lesa meira

true

Fækkun snertir einnig útibúin á Vesturlandi

Arion banki sagði fyrir mánaðamótin upp 46 starfsmönnum á landsvísu. 27 þeirra störfuðu í höfuðstöðvum bankans í Reykjavík en 19 í útibúum og ýmissi bakvinnslu. Uppsagnirnar snerta öll starfssvæði bankans og þar með talið Vesturland en fækkað var um þrjú stöðugildi á svæðinu við þessi mánaðamót. Bernhard Þór Bernhardsson, svæðisstjóri Arionbanka á Vesturlandi, segir að…Lesa meira