Fréttir

true

Námskeið um borgfirskar skáldkonur og Próna-bóka-kaffi Snorrastofu

Að venju hefjast viðburðir vetrarins í Snorrastofu og víðar um sveitir fyrir alvöru þegar október færist yfir. Fyrst á dagskránni er námskeið um borgfirskar skáldkonur þriðjudaginn 4. október í Landnámssetrinu Borgarnesi og fyrsta prjóna-bóka-kaffi bókhlöðunnar verður á sínum stað í Reykholti fimmtudaginn 6. október. Báðir viðburðirnir hefjast kl. 20. Helga Kress bókmenntafræðingur og prófessor emeritus…Lesa meira

true

Íbúðalánasjóði gert að endurgreiða Borgarbyggð ofgreidda vexti

Í gær var staðfest í Hæstarétti niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Borgarbyggðar gegn Íbúðalánasjóði þar sem sjóðnum var gert að endurgreiða oftekna dráttarvexti af framkvæmdaláni sem Borgarbyggð tók hjá sjóðnum vegna byggingar hjúkrunarálmunnar við Brákarhlíð í Borgarnesi. Þegar lánið var greitt upp við lok framkvæmdanna kom upp ágreiningur milli sveitarfélagsins og sjóðsins um gjalddaga lánsins og…Lesa meira

true

Hey Iceland er nýtt vörumerki Ferðaþjónusta bænda

„Hey Iceland“ er nafn á nýju vörumerki Ferðaþjónustu bænda sem kemur í stað vörumerkisins Icelandic Farm Holidays sem félagið hefur fram til þessa notað í sölu- og markaðsstarfi sínu erlendis. „Nýja vörumerkið Hey Iceland er afrakstur viðamikillar stefnumótunar sem hefur átt sér stað undanfarin misseri hjá okkur en það hafa lengi verið vísbendingar uppi um…Lesa meira

true

Pálína í Snæfell og Berglind framlengir

Snæfell hefur samið við landsliðskonuna Pálínu Maríu Gunnlaugsdóttur um að leika með liðinu í Domino‘s deild kvenna á komandi vetri. Pálína er 29 ára gömul og leikur stöðu bakvarðar. Hún lék með Haukum á síðasta tímabili, skoraði 10,9 stig að meðaltali í leik og hefur verið einn besti leikmaður landsins undanfarin ár. Sem leikmaður Hauka…Lesa meira

true

Stúdentar vilja að lokið verði við lagasetningu um námslán og styrki

Forsvarmenn stúdentafélaga við HÍ, HA, HR og Tækniskólann hafa sent frá sér ályktun þar sem skorað er á þingmenn stjórnarflokkanna jafnt sem stjórnarandstöðunnar að klára frumvarp um námslán og námsstyrki á þessu þingi.  „Stúdentar munu ekki una því að bíða til næsta kjörtímabils eftir endurbótum á námsaðstoðarkerfinu. Ekki er hægt að horfa fram hjá því…Lesa meira

true

Bleika slaufan til stuðnings endurnýjun leitartækja

Líkt og undanfarinn  áratug tileinkar Krabbameinsfélagið októbermánuð baráttunni gegn krabbameini í konum undir merkjum Bleiku slaufunnar. Í ár er sjónum beint að algengasta krabbameini íslenskra kvenna – brjóstakrabbameini. Hér á landi greinist kona með brjóstakrabbamein á um 40 klukkustunda fresti árið um kring. „Margt hefur áunnist í baráttunni gegn brjóstakrabbameini á undanförnum árum. Lífslíkur hafa…Lesa meira

true

Halda áfram með byggingu hótelhlutans í miðbæ Borgarness

Eins og fram kom í frétt Skessuhorns í byrjun vikunnar felldi Úrskurðarnefnd um umhverfis- og auðlindamál úr gildi breytingu Borgarbyggðar á deiliskipulagi fyrir Borgarbraut 57-59 í Borgarnesi. Er deiliskipulagið ekki talið samrýmast gildandi aðalskipulagi. Jarðvegsframkvæmdir og sökkulvinna var þá byrjuð á svæðinu þar sem reisa átti hótel, þjónusturými og íbúðablokk fyrir eldri borgara. Þegar úrskurðurinn…Lesa meira

true

Skóli án aðgreiningar fyrir börn og fullorðna

Menntastefnan „skóli án aðgreiningar“ var innleidd í grunnskóla landsins fyrir allnokkrum árum. Stefnunni hefur verið fylgt eftir innan stjórnkerfis menntamála og hafa ýmis sérúrræði, svo sem sérskólar af ýmsu tagi, víðast hvar verið lögð niður. Almennir grunnskólar eru með mun breiðari hóp nemenda en áður var og einn af þeim skólum er Grundaskóli á Akranesi.…Lesa meira

true

Lýsa áhyggjum yfir slæmri fjárhagsstöðu framhaldsskólanna

Stjórn Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra, lýsir yfir áhyggjum af fjárhagsstöðu framhaldsskóla í landinu. „Fram hefur komið að framlög til framhaldsskóla dugi ekki til og eru margir þeirra í greiðsluvanda. Vandinn er ekki nýr af nálinni en árið 2013 var einnig rætt um að framhaldsskólar ættu í erfiðleikum með að ná endum saman þar…Lesa meira

true

Nýtt markaðstorg fyrir lambakjöt verður opnað á hádegi

Kjötborðið, nýtt markaðstorg á netinu fyrir íslenskt lambakjöt, verður opnað á hádegi í dag, fimmtudaginn 29. september, á slóðinni www.kjotbordid.is  Þar selja bændur vöru sína beint til neytenda og geta verðlagt hana eftir eðli og gæðum. Sauðfjárbændur sem vilja selja kjöt í gegnum Kjötborðið gera það með því að stofna aðgang og skrá viðeigandi upplýsingar.…Lesa meira