Fréttir

true

Lunddælskar kindur fá ærlegt hlutverk

„Sauðamessunefndinni hefur borist þau frábæru tíðindi að frægasti liður Sauðamessu verður ekki tekinn af dagskrá,“ segir í tilkynningu frá þeim Hlédísi Sveinsdóttur og Rúnari Gíslasyni sem eru í forsvari fyrir Sauðamessu í Borgarnesi næsta laugardag. „Það hefur reynst erfitt að fá kindur í ár vegna anna hjá bændum, en um næstu helgi verða flestir sem…Lesa meira

true

Sýningin Sjávarútvegur 2016 stendur nú yfir

Sýningin Sjávarútvegur 2016/Iceland Fiskhing Expo, stendur nú yfir í Laugardalshöllinni í Reykjavík. Var hún sett í gær og formlega opnuð af forsetahjónunum Guðna Th Jóhannessyni og Elízu Reid. Sýningin verður opin í dag og á morgun. Við opnunina í gær fluttu ávörp þeir Gunnar Bragi Sveinsson sjávarútvegsráðherra og Ólafur M Jóhannesson framkvæmdastjóri sýningarinnar. Þá voru…Lesa meira

true

Tafir á umferð í Borgarnesi vegna vegaframkvæmda

Í dag, fimmtudaginn 29. september, verður unnið að viðgerðum á Borgarbraut í Borgarnesi. Vinnusvæðið nær frá hringtorginu við Snæfellsveg og að gatnamótum við Vesturlandsveg. Þrengt verður að umferð við vinnusvæðin og umferð stýrt framhjá ef þarf á meðan framkvæmdum stendur. Vinnan fer fram frá kl. 10:30 og stendur fram eftir degi. Vegfarendur eru beðnir um…Lesa meira

true

Þórður Þorsteinn valinn í U21 árs landsliðið

Þórður Þorsteinn Þórðarson, leikmaður ÍA, hefur verið valinn í lokahóp U21 árs landsliðs karla sem tekur á móti Skotum miðvikudaginn 5. október og Úkraínumönnum þriðjudaginn 11. október næstkomandi. Frá þessu er greint á heimasíðu knattspyrnufélagsins. Eru það tveir síðustu leikir liðsins í undankeppni fyrir Evrópukeppnina 2017 sem fram fer í Póllandi. Fyrir leikina er Ísland í…Lesa meira

true

Gray Line setur áætlunarferðir á ís

Síðasta beina áætlunarferðin á vegum Gray Line milli Keflavíkurflugvallar og Aureyrar verður farin á morgun, föstudaginn 30. september. Ekki verður boðið upp á ferðirnar í vetur. Næstu mánuði verður metið hvort grundvöllur telst fyrir áframhaldandi ferðum næsta sumar. „Það verður að segjast eins og er að nýtingin í þessum ferðum, sem hófust í apríl, hefur…Lesa meira

true

Thors saga Jensen frumsýnd á Söguloftinu

Gestir streymdu að Landnámssetri Íslands í Borgarnesi rétt fyrir átta síðastliðið föstudagskvöld til að njóta nýrrar sýningar á Söguloftinu. Þar sagði Guðmundur Andri Thorsson frá langafa sínum og langömmu, Thor Jensen og Margréti Þorbjörgu Kristjánsdóttur. Þau hjón voru búsett í Borgarnesi í nærfellt áratug frá árinu 1886 og starfaði Thor sem faktor þann tíma. Í…Lesa meira

true

Ferðaþjónusta skipulögð með náttúrvernd að leiðarljósi

Straumur ferðamanna í Snæfellsbæ hefur aukist verulega á undanförnum árum og má búast við að þeir verði um hálf milljón á þessu ári. Til að taka á móti þessum fjölda hefur Snæfellsbær reynt að skipuleggja hvernig dreifa megi ferðamönnum um sveitarfélagið, til að tryggja vernd náttúruperla og koma í veg fyrir of mikinn ágang ferðamanna.…Lesa meira

true

Samtökin Birta halda fund á Akranesi

Samtökin Birta munu halda fund í Safnaðarheimilinu Vinaminni á Akranesi mánudaginn 10. október næstkomandi klukkan 20. Birta eru landssamtök foreldra og/eða forráðamanna sem misst hafa börn eða ungmenni skyndilega. Samtökin voru stofnuð 7. desember 2012. Tilgangur og markmið samtakanna er að standa fyrir fræðslu og ýmsum viðburðum á landsvísu, til sjálfsstyrkingar fyrir syrgjandi foreldra og…Lesa meira

true

Oftar en flestir aðrir í fjárleitir

Jóhann Oddsson er bóndi á Steinum II í Stafholtstungum. Hann er kvæntur Valgerði Björnsdóttur og saman áttu þau fjögur börn. Jóhann er fæddur á Steinum en þau hjón hafa alla sína búskapartíð búið þar, en hún er frá Deildartungu í Reykholtsdal. Á Steinum II er sauðfjárbú með rúmlega 500 fjár. Auk þess hafa þau nokkuð…Lesa meira

true

Færðu Kríubóli Kastalann Kára

Foreldrafélagið Leikur afhenti leikskólanum Kríubóli á Hellissandi Kastalann Kára síðastliðinn föstudag og hefur hann verið settur upp á lóð skólans. Við sama tækifæri var Lilja Ólafardóttir kvödd en hún hefur setið í stjórn foreldrafélagsins óslitið síðustu 12 ár. Kastalinn er höfðingleg gjöf sem tók tíma að safna fyrir. Hann kostaði tæpar þrjár milljónir króna og…Lesa meira