Fréttir

true

Landbúnaðarháskólinn hlýtur styrk til skógræktar og fjarkennslu

Rannís hefur úthlutað 283 milljónum króna til 14 fjölþjóðlegra samstarfsverkefna úr menntahluta Erasmus+ mennta- og æskulýðsáætlunar ESB. Hæsta styrkinn hlaut Landbúnaðarháskóli Íslands, rúmar 38 milljónir króna til verkefnisins “Safe Climbing“. Verkefnið er á sviði skógræktar og fjarkennslu. Þróa á námsefni um umhirðu skóga með áherslu á öryggisatriði og tækni við trjáfellingar. Markhópurinn eru nemendur og…Lesa meira

true

Soffía Björg frumsýndi nýtt tónlistarmyndband

Tónlistarsíðan Consequence of Sound frumsýndi fyrr í vikunni tónlistarmyndband við ‘I Lie’ með Soffíu Björg Óðinsdóttur frá Einarsnesi. Síðan er ein af fjórum áhrifamestu tónlistarsíðum heimsins í dag ásamt Billboard, Pitchfork og Rolling Stone. Myndbandið við ‘I Lie’ var tekið upp fyrir nokkrum dögum og er nokkurskonar óður til fyrstu framkomu Bítlanna í Ameríku í…Lesa meira

true

Skólahúsið á Reykhólum þarfnast viðhalds

Á fundi sveitarstjórnar Reykhólahrepps fimmtudaginn 25. ágúst var lögð fram matsskýrsla um ástand húsnæðis Reykhólaskóla. VSÓ ráðgjöf vann skýrsluna fyrir sveitarfélagið á liðnu sumri. Þar er greint frá ástandi húsnæðis Reykhólaskóla að innan og utan auk þess sem matinu fylgir framkvæmdaáætlun til fjögurra ára. Segir í fundargerð að ljóst þyki að byggingin þarfnist mikilla steypu-…Lesa meira

true

Rannsakar breska háskólakórahefð í Oxford

Dr. Sigrún Lilja Einarsdóttir, forseti félagsvísindadeildar við Háskólann á Bifröst, hlaut nýverið styrk til eins árs rannsóknastarfa við Oxford-háskóla og verður því búsett þar í borg skólaárið 2016-2017. Um er að ræða styrk (individual fellowship) úr Marie Sklodowska-Curie áætlun Evrópusambandsins og mun Sigrún Lilja starfa við tónlistardeild háskólans. Rannsóknarverkefni hennar snýr að tónlistarhefð og tónlistarstarfi…Lesa meira

true

Varðar við lög að stinga af frá ákeyrslu

Hvimleið tjón verða oft á bílastæðum, sérstaklega á stórum bílastæðum við verslanir og fyrirtæki. Theódór Þórðarson yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Vesturlandi segir að því miður komi það oft fyrir að stungið sé af frá slíkum málum. „Hægt er að fullyrða að sjaldnast er það svo að viðkomandi ökumaður, sem hlut á að máli, verði ekki…Lesa meira

true

Gylfi leiðir lista Viðeisnar

Fréttavefurinn bb.is greinir í dag frá því að uppstillingarnefnd Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi hafi ákveðið hverjir skipi efstu þrjú sæti flokksins í Norðvesturkjördæmi í alþingiskosningunum í haust. Í efsta sæti listans verður Gylfi Ólafsson hagfræðingur. Hann er frá Ísafirði en búsettur í Reykjavík. Í öðru sæti verður Lee Ann Maginnis, verkefnastjóri upplýsingamiðstöðvar ferðamála í Austur-Húnavatnssýslu. Þriðja sætið…Lesa meira

true

Funda í kvöld um almannatryggingakerfið og lífeyrissjóðina

Flokkur Fólksins boðar til fundar í Tónlistarskólanum á Akranesi í kvöld klukkan 19:30 um samspil tryggingakerfisins við lífeyrissjóði og þær bætur sem stjórnarflokkarnir hafa lofað að hrinda fram með því að samþykkja breytingar á lögum um almannatryggingar nr. 100/2007. Vakin er athygli á að í auglýsingu í Skessuhorni í dag er sagt að fundurinn verði…Lesa meira

true

Valin í landslið yngri spilara

Framundan eru landsliðsverkefni hjá bæði U-19 ára landsliði karla og kvenna í knattspyrnu. Landsliðshóparnir sem taka þátt í þeim verkefnum hafa verið tilkynntir og er þar að finna tvo Vestlendinga. Skagamaðurinn Aron Ingi Kristinsson var valinn í U-19 ára landsliðshópinn sem heldur út til Wales og keppir þar æfingaleiki við heimamenn dagana 4. og 6.…Lesa meira

true

Kennir bæði kundalini- og krakkajóga

Mjöll Barkardóttir er jógakennari á Akranesi. Hún starfar auk þess sem leikskólakennari á leikskólanum Akraseli og er ein þriggja útskrifaðra jógakennara í starfshópnum en á Akraseli er jóga notað í daglegu starfi með börnunum. Mjöll lauk nýverið jógakennaranámi frá Andartaki, þar sem hún lærði kundalini jóga og er hún eini þess konar jógakennarinn á Akranesi.…Lesa meira