
Dr. Sigrún Lilja Einarsdóttir, forseti félagsvísindadeildar við Háskólann á Bifröst, hlaut nýverið styrk til eins árs rannsóknastarfa við Oxford-háskóla og verður því búsett þar í borg skólaárið 2016-2017. Um er að ræða styrk (individual fellowship) úr Marie Sklodowska-Curie áætlun Evrópusambandsins og mun Sigrún Lilja starfa við tónlistardeild háskólans. Rannsóknarverkefni hennar snýr að tónlistarhefð og tónlistarstarfi…Lesa meira








