Fréttir

true

Varðar við lög að stinga af frá ákeyrslu

Hvimleið tjón verða oft á bílastæðum, sérstaklega á stórum bílastæðum við verslanir og fyrirtæki. Theódór Þórðarson yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Vesturlandi segir að því miður komi það oft fyrir að stungið sé af frá slíkum málum. „Hægt er að fullyrða að sjaldnast er það svo að viðkomandi ökumaður, sem hlut á að máli, verði ekki…Lesa meira

true

Gylfi leiðir lista Viðeisnar

Fréttavefurinn bb.is greinir í dag frá því að uppstillingarnefnd Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi hafi ákveðið hverjir skipi efstu þrjú sæti flokksins í Norðvesturkjördæmi í alþingiskosningunum í haust. Í efsta sæti listans verður Gylfi Ólafsson hagfræðingur. Hann er frá Ísafirði en búsettur í Reykjavík. Í öðru sæti verður Lee Ann Maginnis, verkefnastjóri upplýsingamiðstöðvar ferðamála í Austur-Húnavatnssýslu. Þriðja sætið…Lesa meira

true

Funda í kvöld um almannatryggingakerfið og lífeyrissjóðina

Flokkur Fólksins boðar til fundar í Tónlistarskólanum á Akranesi í kvöld klukkan 19:30 um samspil tryggingakerfisins við lífeyrissjóði og þær bætur sem stjórnarflokkarnir hafa lofað að hrinda fram með því að samþykkja breytingar á lögum um almannatryggingar nr. 100/2007. Vakin er athygli á að í auglýsingu í Skessuhorni í dag er sagt að fundurinn verði…Lesa meira

true

Valin í landslið yngri spilara

Framundan eru landsliðsverkefni hjá bæði U-19 ára landsliði karla og kvenna í knattspyrnu. Landsliðshóparnir sem taka þátt í þeim verkefnum hafa verið tilkynntir og er þar að finna tvo Vestlendinga. Skagamaðurinn Aron Ingi Kristinsson var valinn í U-19 ára landsliðshópinn sem heldur út til Wales og keppir þar æfingaleiki við heimamenn dagana 4. og 6.…Lesa meira

true

Kennir bæði kundalini- og krakkajóga

Mjöll Barkardóttir er jógakennari á Akranesi. Hún starfar auk þess sem leikskólakennari á leikskólanum Akraseli og er ein þriggja útskrifaðra jógakennara í starfshópnum en á Akraseli er jóga notað í daglegu starfi með börnunum. Mjöll lauk nýverið jógakennaranámi frá Andartaki, þar sem hún lærði kundalini jóga og er hún eini þess konar jógakennarinn á Akranesi.…Lesa meira

true

Formaður flokksins fær mótframboð í oddvitasætið

Höskuldur Þórhallsson þingmaður Framsóknarflokks í Norðausturkjördæmi ætlar að bjóða sig fram í oddvitasæti í kjördæminu og freistar þess að fella af stalli formann flokksins, Sigmund Davíð Gunnlaugsson. Héraðsfréttablaðið Vikudagur greinir frá bréfi sem Höskuldur ritaði flokksmönnum í kjördæminu. Þar segist hann jafnframt styðja að Framsóknarflokkurinn kjósi Sigurð Inga Jóhannsson í stöðu formanns á flokksþingi sem…Lesa meira

true

Framkvæmt við Svöðufoss

Framkvæmdir eru hafnar til uppbyggingar við Svöðufoss á Snæfellsnesi. Þar á að lagfæra veginn og steypa bílaplan. Eru framkvæmdirnar fyrsti áfangi uppbyggingar á áningarstað fyrir ferðamenn á þessu svæði. Í mars á þessu ári hlaut Snæfellsbær úthlutað 26,9 milljónum króna til framkvæmdanna, sem var hæsti styrkurinn af þeim ellefu sem beint var til uppbyggingar ferðamannastaða…Lesa meira

true

Norræna skólahlaupið hefst á föstudaginn

Norræna skólahlaupið hefst á föstudaginn og verður sett með formlegum hætti í Sandgerði klukkan 10. Þetta er árlegt verkefni sem grunnskólum á Norðurlöndunum býðst að taka þátt í. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands sér um framkvæmd verkefnisins á Íslandi. Markmiðið með Norræna skólahlaupinu er að hvetja nemendur til að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að…Lesa meira

true

Skotfélag Akraness með konukvöld

Skotfélag Akraness gengst síðdegis í dag, klukkan 17:30 til 20:30, fyrir konukvöldi á skotsvæði félagsins upp við rætur Akrafjalls.  „Tilgangurinn er að hvetja konur sem hafa áhuga á skotfimi til að mæta. Hefurðu áhuga á skotfimi og langar að fara að stunda skotfimi þá er þetta tækifærið, hægt verður að fá að prófa og hitta…Lesa meira