Fréttir

true

Skotfélag Akraness með konukvöld

Skotfélag Akraness gengst síðdegis í dag, klukkan 17:30 til 20:30, fyrir konukvöldi á skotsvæði félagsins upp við rætur Akrafjalls.  „Tilgangurinn er að hvetja konur sem hafa áhuga á skotfimi til að mæta. Hefurðu áhuga á skotfimi og langar að fara að stunda skotfimi þá er þetta tækifærið, hægt verður að fá að prófa og hitta…Lesa meira

true

VG í Norðvesturkjördæmi frestar forvali og sendir út nýja kjörseðla

Samkvæmt staðfestum heimildum Skessuhorns hefur kjörstjórn Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í Norðvesturkjördæmi ákveðið að send verði út ný kjörgögn til allra félagsmanna vegna forvals í kjördæminu. Áður sendir kjörseðlar eru því ógildir. Ástæðan er samkvæmt sömu heimildum skortur á upplýsingum í kjörgögnum til félagsmanna um frambjóðendur auk þess sem reglur um fjölda sem átti að…Lesa meira

true

Buðu fornbílafjelögum í skúrinn

Ingimar Magnússon og Brynja Helgadóttir á Akranesi eru mikið bílaáhugafólk. Þau hafa komið sér upp snyrtilegri aðstöðu að Kalmansvöllum 3 á Akranesi þar sem fornbílar þeirra eru geymdir. Ingimar og Brynja eru virkir félagar í Fornbílafjelagi Borgarfjarðar og miðvikudaginn 24. ágúst síðastliðinn buðu þau félögum sínum í heimsókn í skúrinn að Kalmansvöllum. Heimboðið í skúrinn…Lesa meira

true

Hentar honum ekki að skoða hjartveika Chihuahua-hunda alla daga

Daníel Haraldsson útskrifaðist sem dýralæknir frá Kaupmannahafnarháskóla árið 2015 og sneri heim til Íslands síðasta vor eftir 15 ára dvöl erlendis, lengst af í Danmörku en einnig í Svíþjóð. Hann tók nýverið til starfa í Stykkishólmi og mun vera þar til eins árs að minnsta kosti, eða þar til Hjalti Viðarsson snýr aftur. „Hjalti vildi…Lesa meira

true

Nýtt listaverk við Byggðasafnið á Akranesi

Síðastliðinn föstudag var nýtt listaverk afhjúpað á Safnasvæðinu í Görðum á Akranesi. Listaverkið er eftir Ivar Feldmann frá Eistlandi og er skúlptúr úr járni sem smíðaður var á Eldsmíðahátíð sem haldin var fyrr í sumar á safninu. Ivar ákvað að gefa Byggðasafninu skúlptúrinn í þakklætisskyni fyrir það að Ísland var fyrsta þjóðin til þess að…Lesa meira

true

Koma slasaðri göngukonu til bjargar

Björgunarsveitir á Snæfellsnesi voru kallaðar út um klukkan 13.30 í dag til aðstoðar ferðakonu sem slasast hafði á fæti í gönguferð við Rauðfeldsgjá á Snæfellsnesi. Björgunarsveitarmenn munu koma konunni undir læknishendur.Lesa meira

true

Féll af mótorhjóli

Aðeins urðu fimm umferðaróhöpp í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku og telst það, að sögn Theódórs Þórðarsonar yfirlögregluþjóns, vera vel sloppið miðað við undanfarnar vikur. Ökumaður bifhjóls hlaut minniháttar meiðsli er hann féll af hjóli sínu á Snæfellsnesvegi við Emmuberg á Skógarströnd í gær. Var hann fluttur á sjúkrahús til nánari skoðunar. Hin…Lesa meira

true

Matfugl innkallar kjúklingastrimla

Við reglubundið innra eftirlit Matfugls ehf. greindist bakterían Listeria Monocytogenes í pakkningu af Matfugls kjúklingastrimlum. Fyrirtækið hefur því ákveðið að innkalla vöruna í varúðarskyni. Innköllunin nær eingöngu til pakkninga með lotunúmerinu 3101126331 með best fyrir dagsetninguna 03.09.2016. Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að skila henni til fyrirtækisins eða í viðkomandi verslun. „Beðist…Lesa meira

true

Aðalsteini og Sigurði dugar fimmta sæti í síðasta rallýi ársins

Rallý Reykjavík, þriggja daga alþjóðleg keppni og jafnframt fjórða umferð á Íslandsmótinu í rallý, fór fram 25. – 27. ágúst sl. Ekið var víðs vegar um Suður- og Vesturland, m.a. um Kaldadal og Tröllháls, Djúpavatn og í nágrenni Heklu. Eknir voru alls yfir þúsund kílómetrar og þar af rúmlega 300 km á sérleiðum. Tuttugu áhafnir…Lesa meira

true

Elkem Ísland hlýtur gullmerki jafnlaunaúttektar PwC

Elkem Ísland hlaut á dögunum gullmerki jafnlaunaúttektar PwC á Íslandi. Samkvæmt jafnréttislögum ber atvinnurekendum að greiða konum og körlum jöfn laun fyrir jafn verðmæt störf og til að standast jafnlaunaúttektina þurfa fyrirtæki að sýna fram á að launamunur kynjanna sé undir 3,6%. Jafnlaunaúttekt PwC byggir á línulegri fjölbreytuaðhvarfsgreiningu. Sá launamunur sem situr eftir þegar tekið…Lesa meira