Fréttir

true

Halldór hættir sem formaður Landssambands smábátaeigenda

Á fundi stjórnar Landssambands smábátaeigenda, sem haldinn var 19. ágúst síðastliðinn, tilkynnti Halldór Ármannsson formaður að hann myndi ekki gefa kost á sér til endurkjörs. Frá þessu er greint á vef sambandsins. Halldór hefur verið formaður Landsambands smábátaeigenda undanfarin þrjú ár. Hann sagði á fundinum að sér hefði verið heiður sýndur að fá að starfa…Lesa meira

true

Landskeppni smalahunda fór fram í Miðdölum

Landskeppni Smalahundafélags Íslands 2016 var haldin að Bæ í Miðdölum í Dalasýslu um liðna helgi. Keppnin var samstarfsverkefni Smalahundafélags Snæfellsness- og Hnappadalssýslu og Félags sauðfjárbænda í Dalasýslu. Að Bæ er frábær aðstaða fyrir keppnina bæði fyrir áhorfendur og þátttakendur. Ekki spillti ánægju gesta að mikil veðursæld var í sveitinni þennan dag. Ekki hefur áður verið…Lesa meira

true

Pæjumót Skotfélags Snæfellsness á miðvikudaginn

Skotgrund – Skotfélag Snæfellsness ætlar að halda svokallað pæjumót í skotfimi en mótið er eingöngu ætlað konum. Keppt verður með 22. cal rifflum og verða skotmörkin á 25m, 50m, 75m og 100m brautum. Allar konur eru boðnar velkomnar hvort sem að þær eru vanar eða óvanar. Félagið verður með riffla á svæðinu sem og leiðbeinendur…Lesa meira

true

Víkingur tapaði fyrir toppliði FH

Víkingur Ólafsvík mætti FH í 17. umferð úrvalsdeildar karla í knattspyrnu á Ólafsvíkurvelli í gær. Víkingur hefur átt erfitt uppdráttar upp á síðkastið eftir frábæra byrjun í mótinu en FH trónir sem kunnugt er á toppi deildarinnar og stefnir hraðbyri að Íslandsmeistaratitlinum. Leikurinn fór fremur hægt af stað. FH-ingar voru meira með boltann og létu…Lesa meira

true

Öruggur sigur Skagamanna

ÍA tók á móti Víkingi R. í 17. umferð úrvalsdeildar karla í knattspyrnu í gær. Skagamenn voru betra lið vallarins allan leikinn og unnu að lokum sigur með tveimur mörkum gegn engu. Fyrsta mark leiksins kom strax á fjórðu mínútu leiksins. Skagamenn pressuðu Víkinga hátt og unnu boltann ofarlega á vellinum. Þórður Þorsteinn Þórðarson sendi…Lesa meira

true

SamVest tók þátt í Bikarkeppni FRÍ

Sunnudaginn 21. ágúst fór fram Bikarkeppni Frjálsíþróttasambands Íslands í frjálsum íþróttum utanhúss í aldursflokknum fimmtán ára og yngri. Um er að ræða liðakeppni og sendi Vesturlandsliðið SamVest öflugt lið til keppni sem náði að manna allar keppnisgreinarnar en hver keppandi má aðeins taka þátt í tveimur greinum. SamVest stóð sig með stakri prýði og endaði…Lesa meira

true

Kaupfélagið stækkar verslunarhúsið við Egilsholt

Samþykkt var á síðasta fundi stjórnar Kaupfélags Borgfirðinga að ráðast í 240 fermetra stækkun verslunarhúss félagsins við Egilsholt 1 í Borgarnesi. Að sögn Guðsteins Einarssonar kaupfélagsstjóra er ástæðan sú að félagið hefur aukið innflutning á síðustu árum og þarf stærra lagerhúsnæði. Viðbyggingin verður því að stórum hluta fyrir lager og grófvöru en verslunin verður þó…Lesa meira

true

Útibú Matarbúrs Kaju senn opnað í Reykjavík

Karen Jónsdóttir sem á og rekur lífrænu verslunina Matarbúr Kaju á Akranesi hyggst á næstunni opna útibú verslunarinnar í Reykjavík. „Ég fæ húsnæðið afhent 1. september og stefni að því að opna laugardaginn 10. september,“ segir Karen í samtali við Skessuhorn. Matarbúr Kaju í Reykjavík verður til húsa við Óðinsgötu 8b. Segir Karen að verslunin…Lesa meira

true

Myndir af keppendum á púttmóti

Síðasta púttkeppni eldri borgara á Akranesi og úr Borgarbyggð fór fram fyrr í mánuðinum að Nesi í Reykholtsdal. Við sögðum frá úrslitum mótsins í Skessuhorni fyrir hálfum mánuði, en birtum þá án mynda. Þær hafa nú borist og fylgja hér með. Á mótinu öttu 37 púttarar kappi í ágætis veðri. Var þetta þriðja viðureign þeirra…Lesa meira

true

Fékk póstkort frá Moskvu

Í vor greindi Skessuhorn frá frumlegri áritun sendibréfs sem barst Rebeccu Cathrine Kaad Ostenfeld bónda á Hólum í Hvammssveit í Dölum. Póstáletrunin hefur vakið athygli víða utan landssteinanna en um var að ræða teikningu af Hvammsfirði og merkt inn á hvar móttakandi bréfsins ætti heima, án þess þó að gefa upp sjálft bæjarnafnið. Rebecca segir…Lesa meira