Fréttir

true

Skallagrímur fær fyrrum landsliðsmann Bandaríkjanna

Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur samið við Tavelyn Tillman og mun hún leika með liði félagsins í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik næsta vetur. Tavelyn er fyrrum liðsmaður bandaríska landsliðsins og leikmaður WNBA deildarinnar. Tavelyn útskrifaðist úr háskóla 2010 og hóf undirbúningstímabil það ár með Minnesota Lynx í WNBA deildinni. Hún ákvað hins vegar að söðla um og…Lesa meira

true

Björt framtíð kynnir efstu frambjóðendur á listum

Stjórn Bjartrar framtíðar hefur samþykkt sex efstu á framboðslistum í öllum kjördæmum fyrir alþingiskosningarnar í haust. „Á listunum er fjölbreytt flóra frambjóðenda með víðtæka menntun og reynslu. Fjórðungur frambjóðenda starfar innan menntakerfisins, 14% þeirra eru í háskólanámi og því ljóst að menntamál munu leika stórt hlutverk,“ segir m.a. í tilkynningu frá flokknum. Í Norðvesturkjördæmi skipar…Lesa meira

true

Heiðra minningu Sturlu Þórðarsonar

Tillögur Svavars Gestssonar varðandi minningu Sturlu Þórðarsonar sagnaritara voru teknar fyrir á fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar þriðjudaginn 16. ágúst síðastliðinn. Lagt er til að komið verði upp upplýsingaskilti um Sturlu að Staðarhóli í Saurbæ og að sótt verði um fé til verksins í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða. Sveitarstjórn samþykkti með sex atkvæðum að koma að undirbúningi við uppsetningu…Lesa meira

true

Gatnaframkvæmdir hafnar í Melahverfi

Í vor var boðið út verk við gatna- og lagnaframkvæmdir í Melahverfinu í Hvalfjarðarsveit og var það Þróttur ehf. á Akranesi sem fékk verkið eftir að hafa gert tilboð upp á 47 milljónir, sem var tæplega 70% af kostnaðaráætlun. Verkið felur í sér að leggja götuna Háamel og hluta Brekkumels, lagningu fráveitu-, vatns-, hitaveitu- og…Lesa meira

true

Sementsverksmiðjan aftur gerð að kvikmyndaveri

Það vakti mikla athygli fyrr á þessu ári þegar Sementsverksmiðjan fékk nýtt hlutverk þegar hún breyttist á svipstundu í kvikmyndaver fyrir bandarísku stórmyndina Fast 8. Nú fyrir síðustu helgi hafði verksmiðjan aftur breyst í kvikmyndaver en að þessu sinni töluvert smærra í sniðum. Þegar blaðamanni bar að garði var verið að taka upp stuttmyndina „Engir…Lesa meira

true

Bygging reiðskemmu í Stykkishólmi gengur vel

Eins og Skessuhorn greindi frá í sumar var í byrjun júnímánaðar tekin fyrsta skóflustungan að nýrri reiðskemmu í Stykkishólmi. Reiðskemman verður 18×38 metrar að flatarmáli og er það Hesteigendafélag Stykkishólms sem stendur að byggingu hennar. Til framkvæmdarinnar söfnuðu félagsmenn nálægt sex milljónum króna. Auk þess fékk félagið beinan styrk frá sveitarfélaginu að verðmæti 12 milljóna…Lesa meira

true

„Þetta er alltaf rekið á sömu gömlu góðu kennitölunni“

Skipavík í Stykkishólmi er alhliða verktakafyrirtæki og þar starfa rúmlega 60 manns. Skessuhorn ræddi við Sævar Harðarson í síðustu viku, en hann hefur verið framkvæmdastjóri Skipavíkur síðan 1998, en sama ár keypti Sigurjón Jónsson meirihluta í félaginu. Eru þeir tveir eigendur fyrirtækisins í dag. Eins og nafnið gefur til kynna eru að sjálfsögðu smíðuð skip…Lesa meira

true

Þórður G. Pétursson braut ekki reglur flokksins

Fyrr í mánuðinum lauk prófkjöri Pírata í Norðvesturkjördæmi. Þórður G. Pétursson lenti í efsta sæti prófkjörsins og mun því leiða flokkinn í kjördæminu. Ekki voru allir á eitt sáttir um úrslit kosninganna og krafðist kafteinn Pírata á Vestfjörðum, Halldóra Sigrún Ásgeirsdóttir, þess að listi flokksins skyldi felldur úr gildi þar sem hún sakaði Þórð um…Lesa meira

true

Stýrivextir Seðlabankans lækkaðir um hálft prósentustig

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti um 0,5 prósentustig, úr 5,75% niður í 5,25%. Þetta kemur fram í yfirlýsingu peningastefnunefndar sem birt var í gær. Þar er einnig greint frá því að nefndin telur að hagvöxtur verði nokkru meiri en spáð var í maí, eða 4,9% og gert er ráð fyrir áframhaldandi örum…Lesa meira

true

Réttir á Vesturlandi haustið 2016

Bændasamtök Íslands taka sem fyrr saman upplýsingar um réttir á landinu í haust. Í Bændablaðinu sem kom út í dag er listi yfir réttir landsins. Skessuhorn birtir hér með góðfúslegu leyfi Bændablaðsins upplýsingar um réttir á Vesturlandi. Fyrstu réttir haustsins að þessu sinni verða laugardaginn 10. september í Hvítársíðu í Borgarfirði og Fellsströnd í Dölum.  …Lesa meira