Fréttir

true

Welcome Apartments kaupir Hraunið í Ólafsvík

Fyrirtækið Welcome Apartments hefur fest kaup á fasteigninni að Grundarbraut 2 í Ólafsvík, þar sem nú er rekinn veitingastaðurinn Hraunið. Þetta staðfestir Stefán Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Welcome Apartments, í samtali við Skessuhorn. „Þetta er fasteign sem hafði verið lengi á sölu og við sáum þarna tækifæri til að fjárfesta. Við keyptum húsnæðið en erum búnir að…Lesa meira

true

Þrír bítast um tvö efstu sæti á lista Samfylkingarinnar

Frestur til að sækjast eftir forystusætum í flokksvali Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi rann út 19. ágúst síðastliðinn. Einungis þrír frambjóðendur gáfu kost á sér en flokksvalið fer fram dagana 8.-10. september næstkomandi. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir alþingismaður og Guðjón Brjánsson forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vesturlands gefa bæði kost á sér í fyrsta sæti listans, en Inga Björk Bjarnadóttir meistaranemi…Lesa meira

true

Eru á rafbíl á leið frá Reykjavík til Ísafjarðar

Á vegum Samgöngufélagsins stendur yfir í dag og til morguns ferð á rafbíl frá Reykjavík til Ísafjarðar. Ekki er vitað annað en þetta sé fyrsta ferðin milli þessara staða á slíku farartæki. Það eru félagarnir Jónas Guðmundsson, formaður Samgöngufélagsins, og Jón Jóhann Jóhannsson eigandi rafbílsins með einkanúmerið „Fyrsti,“ sem lögðu í hann frá bílastæði við…Lesa meira

true

Smölun félagsmanna í aðdraganda forvals VG

Búið er að póstleggja kjörseðla í forvali Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Norðvesturkjördæmi. Fjöldi skráðra flokksmanna í kjördæminu hefur meira en tvöfaldast á síðustu dögum. Samkvæmt heimildum Skessuhorns eru nú 1.102 íbúar 16 ára og eldri skráðir í flokkinn í NV kjördæmi og geta þeir allir tekið þátt í forvalinu. Hefur þeim fjölgað um 650 á síðustu…Lesa meira

true

Segir að gera þurfi landið að einu strandveiðisvæði

Guðbrandur Björgvinsson frá Stykkishólmi hefur róið á báti sínum Arnari II SH á strandveiðum í sumar og gert út frá Ólafsvík. Hann segir í samtali viði Skessuhorn að þetta hafi verið skemmtilegur veiðiskapur. „Ég vil byrja á því að þakka sjávarútvegsráherra fyrir þá aukningu sem hann setti inn í kerfið í ár. Ég er sáttur…Lesa meira

true

Leitað að týndum hermönnum í Hrafnagili

Þann 28. nóvember árið 1941 fórst bresk tveggja hreyfla Vickers Wellington sprengjuflugvél er hún flaug á hamrabelti Svartahnjúks í Kolgrafafirði á Snæfellsnesi. Með vélinni fórust sex breskir hermenn og er þessum atburði gerð góð skil í kvikmyndinni Svartihnjúkur – Stríðssaga úr Eyrarsveit, eftir Hjálmtý Heiðdal. Í hermannagrafreit Fossvogskirkjugarðs eru sex legsteinar en sagan segir að…Lesa meira

true

Samið um skólahjúkrunarfræðing í FVA

Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi (FVA) og Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi (HVE) hafa gert með sér samkomulag um fyrirkomulag heilbrigðisþjónustu sem veitt verður nemendum fjölbrautaskólans skólaárið 2016 – 2017. Íris Björg Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur á heilsugæslustöð HVE á Akranesi, mun sinna starfi skólahjúkrunarfræðings. „Verkefni skólahjúkrunar eru m.a. að aðstoða nemendur vegna veikinda á skólatíma, veita ráðgjöf, bjóða…Lesa meira

true

Skallagrímur fær fyrrum landsliðsmann Bandaríkjanna

Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur samið við Tavelyn Tillman og mun hún leika með liði félagsins í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik næsta vetur. Tavelyn er fyrrum liðsmaður bandaríska landsliðsins og leikmaður WNBA deildarinnar. Tavelyn útskrifaðist úr háskóla 2010 og hóf undirbúningstímabil það ár með Minnesota Lynx í WNBA deildinni. Hún ákvað hins vegar að söðla um og…Lesa meira

true

Björt framtíð kynnir efstu frambjóðendur á listum

Stjórn Bjartrar framtíðar hefur samþykkt sex efstu á framboðslistum í öllum kjördæmum fyrir alþingiskosningarnar í haust. „Á listunum er fjölbreytt flóra frambjóðenda með víðtæka menntun og reynslu. Fjórðungur frambjóðenda starfar innan menntakerfisins, 14% þeirra eru í háskólanámi og því ljóst að menntamál munu leika stórt hlutverk,“ segir m.a. í tilkynningu frá flokknum. Í Norðvesturkjördæmi skipar…Lesa meira

true

Heiðra minningu Sturlu Þórðarsonar

Tillögur Svavars Gestssonar varðandi minningu Sturlu Þórðarsonar sagnaritara voru teknar fyrir á fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar þriðjudaginn 16. ágúst síðastliðinn. Lagt er til að komið verði upp upplýsingaskilti um Sturlu að Staðarhóli í Saurbæ og að sótt verði um fé til verksins í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða. Sveitarstjórn samþykkti með sex atkvæðum að koma að undirbúningi við uppsetningu…Lesa meira