Fréttir

true

Jákvæð umskipti hafa orðið í aðbúnaði svína

Úttekt Matvælastofnunar á gyltubúum í landinu nú vor leiddi í ljós að básahald gyltna og geldingar grísa er á undanhaldi og bógsárum á gyltum hefur fækkað og eru nú vægari en áður. Stofnunin hefur unnið úr niðurstöðum eftirlits sem fram fór í apríl og maí 2016 og gefið út samantekt. Farið var í eftirlit á…Lesa meira

true

Engar stórvægilegar breytingar á starfi Tónlistarskóla Borgarfjarðar

Starfsemi Tónlistarskóli Borgarfjarðar er nú byrjuð að nýju eftir sumarleyfi. Fín aðsókn hefur verið í skólann og munu um 160 nemendur stunda nám við skólann í vetur. Átta kennarar munu kenna nemendunum og er kjarninn í starfsliðinu er sá sami og í fyrra. Breytingin sem verður er að einn kennari fer í ársleyfi og inn…Lesa meira

true

Nemendurnir duglegir að koma fram á viðburðum

Í Auðarskóla í Dalabyggð er starfrækt tónlistardeild. Deildin hefur starfsemi samhliða skólanum og hefur aðsóknin verið góð undanfarin ár en um helmingur nemenda hafa stundað tónlistarnám. „Við eigum ekki von á öðru en að sambærilegt hlutfall nemenda skrái sig til náms í tónlistardeildinni í ár eins og undanfarin ár,“ segir Ólafur Rúnarsson, tónlistarkennari við tónlistardeild…Lesa meira

true

Öflugt tónlistarlíf á Akranesi

Í byrjun sumars var Guðmundur Óli Gunnarsson ráðinn skólastjóri Tónlistarskólans á Akranesi og tók þá við af Lárusi Sighvatssyni sem gegnt hafði starfinu í þrjá áratugi. Guðmundur Óli er því að taka sín fyrstu skref í starfinu en hann hefur þó reynslu af slíku starfi því fyrir allnokkru síðan starfað hann sem skólastjóri Tónlistarskólans á…Lesa meira

true

Hæfir og metnaðarfullir kennarar helsti styrkleiki skólans

Tónlistarskólinn í Stykkishólmi hefur göngu sína í lok vikunnar og er nemendafjöldinn svipaður og í fyrra, tæplega hundrað. „Tónlistarskóli Stykkishólms er nú að hefja sitt 53. starfsár. Að jafnaði hafa nemendur verið um 10% bæjarbúa undanfarna áratugi. Námsárangur hefur verið jafn og góður og stenst samanburð við aðra tónlistarskóla sem við viljum bera okkur saman…Lesa meira

true

Skagakonur töpuðu í mikilvægum fallbaráttuslag

Í kvöld kláraðist þrettánda umferð Pepsi deildar kvenna í knattspyrnu. Skagakonur léku gegn Fylki á Akranesvelli í mikilvægum fallbaráttuslag. Aðeins tveimur stigum munaði á liðunum fyrir leikinn; Fylkir var í sjöunda sæti með tíu stig og ÍA í því níunda með átta stig. Það var því mikið undir hjá Skagakonum sem hefðu með sigri getað…Lesa meira

true

Skipuleggur alþjóðlega tækniráðstefnu í Hörpu

Nú í þessari viku, dagana 25. og 26. ágúst, fer fram tækniráðstefna í Hörpu í Reykjavík. Einn af skipuleggjendum ráðstefnunnar er Borgfirðingurinn Axel Máni Gíslason. Axel útskrifaðist úr Menntaskóla Borgarfjarðar árið 2012 og hélt eftir útskrift í tölvunarfræði í Háskólann í Reykjavík. „Ég valdi tölvunarfræðina af forvitni. Ég hafði lítið sem ekkert forritað þegar ég…Lesa meira

true

Aron Ingi Kristinsson og Birta Guðlaugsdóttir valin í U-19 ára landslið

Framundan eru landsliðsverkefni hjá bæði U-19 ára landsliði karla og kvenna í knattspyrnu. Landsliðshóparnir sem taka þátt í þeim verkefnum hafa verið tilkynntir og er þar að finna tvo Vestlendinga. Skagamaðurinn Aron Ingi Kristinsson var valinn í U-19 ára landsliðshópinn sem heldur út til Wales og keppir þar æfingaleiki við heimamenn dagana 4. og 6.…Lesa meira

true

Hvalfjarðardagar verða um næstu helgi

Hvalfjarðardagar verða haldnir um komandi helgi, dagana 26.-28. ágúst. Er þetta í þriðja sinn sem hátíðin er haldin yfir helgi en áður höfðu ferðaþjónustuaðilar í Hvalfjarðarsveit tekið sig saman og haldið Hvalfjarðardag. Að sögn Guðnýjar Kristínar Guðnadóttur umsjónaraðila Hvalfjarðardaga er dagskráin í ár stútfull af flottum og fjölbreyttum viðburðum um alla sveit. „Hátíðin hefst á…Lesa meira

true

Hafna uppsetningu skiltis við Hvalfjarðargöng

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur hafnað beiðni Akraneskaupstaðar um að sett verði upplýsingaskilti við norðurenda Hvalfjarðarganga. Til stóð að Knattspyrnufélag ÍA myndi setja upp auglýsingaskilti sem myndi blasa við vegfarendum þegar komið væri upp úr Hvalfjarðargöngum að norðanverðu. Í erindi Akraneskaupstaðar var einnig beiðni um breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar svo síðar verði unnt að setja upp auglýsingar…Lesa meira