Fréttir

true

Honda Classic mótið fór fram á Garðavelli

Honda Classic mót Eimskipsmótaraðarinnar í golfi var leikið á Garðavelli um síðustu helgi. Vallaraðstæður voru nokkuð breytilegar á fyrsta hring mótsins þar sem gekk á með miklum vindi og rigningu. Aðstæður voru síðan mun betri á öðrum keppnisdegi og lokahringnum en á fyrsta degi mótsins. Úrslit mótsins urðu þau að Kristján Þór Einarsson úr Golfklúbbi…Lesa meira

true

Skagamenn töpuðu þrátt fyrir óskabyrjun

Í gær mættust ÍA og Stjarnan í 20. umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu. Leikið var í Garðabænum og máttu Skagamenn sætta sig við 3-1 tap. Skagamenn fengu óskabyrjun því þeir komust yfir strax á 3. mínútu leiksins. Darren Lough átti fyrirgjöf frá vinstri. Boltinn fór af varnarmanni, þaðan í stöngina og í þann mund…Lesa meira

true

Víkingur Ó. enn í fallbaráttu eftir jafntefli við Þrótt

Í gærkvöldi mættust Víkingur Ó. og botnlið Þróttar í 20. umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu. Niðurstaða leiksins var jafntefli þar sem hvort lið skoraði eitt mark. Leikmenn Víkings voru frískari á upphafsmínútum leiksins en Þróttarar voru smá tíma að taka við sér. Eftir það var jafnræði með liðunum en heimamenn sköpuðu sér þó hættulegri…Lesa meira

true

Stykkishólmsbær hefur tekið nýja heimasíðu í notkun

Um nokkurt skeið hefur verið unnið að uppsetningu nýrrar heimasíðu fyrir sveitarfélagið Stykkishólmsbæ. Hefur það verkefni verið í höndum Hermanns Hermannssonar, ritara bæjarstjóra, með faglegri ráðgjöf Önnu Melsteð hjá Anok margmiðlun ehf. Endurgerð hýsing vefsins www.stykkisholmur.is var unnin af hugbúnaðarfyrirtækinu Advania, sem átti hagstæðasta tilboðið í þann hluta verkefnisins. Þetta kemur fram í tilkynningu Sturlu…Lesa meira

true

119 þúsund tonn veidd í ágúst

Fiskafli íslenska flotans var rúmlega 119 þúsund tonn í ágústmánuði síðastliðnum skv. tölum á vef Hagstofunnar. Er það fjórum prósentum meiri afli en í sama mánuði í fyrra. Botnfiskaflinn var rúm 33 þúsund tonn, sem er 28% aukning frá ágúst 2015 og þorskaflinn var 17 þúsund tonn, jókst um 41% miðað við sama mánuð í…Lesa meira

true

Haustmót eldri púttara í Bogarbyggð

Pútthópur eldri borgara í Borgarbyggð endaði sumarið á Haustmóti að Hamri 13. september.  Um 20 eldri púttar hafa æft að kappi í sumar og framfarir hafa verið góðar hjá mörgum einstaklingum. Haustmótið var þriggja daga keppni og gilti samanlagður árangur. Leikið var 6., 8., og 13. september. Í kvennaflokki varð Lilja Ólafsdóttir hlutskörpust með 203…Lesa meira

true

Kynningarfundir um gerð stefnumarkandi stjórnunaráætlana

Stjórnstöð ferðamanna og Ferðamálastofa hafa boðað til kynningarfunda um gerð um gerð stefnumarkandi stjórnunaráætlana, eða DMP (Destinational Management Plans). Á fundunum mun Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir frá Ferðamálastofu, ásamt Önnu Katrínu Einarsdóttur og Óskari Jósefssyni frá Stjörnstöð ferðamála, kynna verkþætti og tímalínu verkefnisins. Auk þess mun breski ráðgjafinn Tom Buncle fara ítarlega yfir eðli, markmið og…Lesa meira

true

Samfylkingin í NV ákveður lista á laugardaginn

Samfylkingin í Norðvesturkjördæmi heldur kjördæmisþing laugardaginn 24. september kl. 10-12 á Grand Hótel í Reykjavík, salnum Háteig B. „Þar verður gengið frá framboðslista fyrir alþingiskosningar. Þar verður einnig farið yfir hagnýt mál í aðdraganda komandi alþingiskosninga. Félagsmenn eru hvattir til að mæta á kjördæmisþingið og taka virkan þátt í starfi Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi í kosningabaráttunni…Lesa meira

true

Hófu nám í lögreglufræði við HA

Í byrjun síðustu viku hófst kennsla í lögreglufræði í fyrsta skipti við Háskólann á Akureyri. Nám þetta bar brátt að því einungis fyrir tæpum þremur vikum ákvað Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra að fela HA að taka að sér lögreglufræði á háskólastigi. Fjórir háskólar hér á landi kepptust um hituna. Nú hefja liðlega 150 nemendur nám og koma…Lesa meira

true

Áttu bestu myndirnar á Unglingalandsmóti UMFÍ

Ástríður Helga Magnúsdóttir á Skagaströnd fékk í síðustu viku afhentan glæsilegan iPhone 6S Plus síma fyrir bestu myndina í myndakeppni UMFÍ sem fram fór á Unglingalandsmótinu í Borgarnesi um verslunarmannahelgina. Ástríður tók myndina á á síðasta degi mótsins og sýnir hún tvær vinkonur horfa saman á flugeldasýninguna að lokinni síðustu kvöldvökunni á Unglingalandsmótinu. Myndin endurspeglaði…Lesa meira