Fréttir

true

Samfylkingin í NV ákveður lista á laugardaginn

Samfylkingin í Norðvesturkjördæmi heldur kjördæmisþing laugardaginn 24. september kl. 10-12 á Grand Hótel í Reykjavík, salnum Háteig B. „Þar verður gengið frá framboðslista fyrir alþingiskosningar. Þar verður einnig farið yfir hagnýt mál í aðdraganda komandi alþingiskosninga. Félagsmenn eru hvattir til að mæta á kjördæmisþingið og taka virkan þátt í starfi Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi í kosningabaráttunni…Lesa meira

true

Hófu nám í lögreglufræði við HA

Í byrjun síðustu viku hófst kennsla í lögreglufræði í fyrsta skipti við Háskólann á Akureyri. Nám þetta bar brátt að því einungis fyrir tæpum þremur vikum ákvað Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra að fela HA að taka að sér lögreglufræði á háskólastigi. Fjórir háskólar hér á landi kepptust um hituna. Nú hefja liðlega 150 nemendur nám og koma…Lesa meira

true

Áttu bestu myndirnar á Unglingalandsmóti UMFÍ

Ástríður Helga Magnúsdóttir á Skagaströnd fékk í síðustu viku afhentan glæsilegan iPhone 6S Plus síma fyrir bestu myndina í myndakeppni UMFÍ sem fram fór á Unglingalandsmótinu í Borgarnesi um verslunarmannahelgina. Ástríður tók myndina á á síðasta degi mótsins og sýnir hún tvær vinkonur horfa saman á flugeldasýninguna að lokinni síðustu kvöldvökunni á Unglingalandsmótinu. Myndin endurspeglaði…Lesa meira

true

Dröfn við kolarannsóknir

Það vakti athygli fréttaritara Skessuhorns í síðustu viku að sjá Dröfn RE 65 við hafnarkantinn í Grundarfirði með forláta plóg hangandi aftan úr skipinu. Skipið var við rannsóknir á kola í Grundarfirði og notaði þennan plóg til þeirra. Eitthvað voru skipverjar í vandræðum því ekki náðust veiðarfærin um borð í skipið. Þá var kallaður til…Lesa meira

true

Andlát – séra Árni Pálsson sóknarprestur

Séra Árni Pálsson lést 16. september síðastliðinn, 89 ára að aldri. Hann var fæddur á Stóra-Hrauni í Kolbeinsstaðahreppi 9. júní 1927, sonur Önnu Árnadóttur frá Stóra-Hrauni og Páls Geirs Þorbergssonar verkstjóra frá Syðri-Hraundal. Árni lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1948 og guðfræðiprófi árið 1954. Hann sinnti ýmsum störfum, meðal annars kennslu við Gagnfræðaskólann við…Lesa meira

true

Blóðskimun til bjargar

Næstu daga munu íbúar á Akranesi fá í pósti fjólublátt umslag sem inniheldur kynningu á þjóðarátaki í blóðskimun sem ber yfirskriftina „Blóðskimun til bjargar“. Um er að ræða stóra vísindarannsókn á vegum rannsóknarhóps undir forystu Sigurðar Yngva Kristinssonar, prófessors í blóðsjúkdómum. Markmið þess er að safna blóðsýnum 140 þúsund Íslendinga til að rannsaka hvort skimun fyrir…Lesa meira

true

Banaslys á Útnesvegi

Banaslys varð á Útnesvegi austan við Arnarstapa á Snæfellsnesi í nótt. Tilkynning barst lögreglunni klukkan 00:23 um að bíll hefði oltið. Einn maður lést. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð til og var kona sem einnig var í bílnum flutt með þyrlunni alvarlega slösuð á sjúkrahús í Reykjavík. Lögreglan á Vesturlandi fer með rannsókn slyssins. Í tilkynningu…Lesa meira

true

Björgunarsveitir og áhöfn Bjarna Ólafssonar á æfingu

Um 70 félagar úr sjóbjörgunarhópum Slysavarnafélagsins Landsbjargar víðs vegar af landinu eru við umfangsmiklar æfingar í Norðfjarðarflóa. Alls taka tólf hópar þátt í æfingunni á þremur björgunarskipum, sex harðbotnabátum og þremur slöngubátum. Alls taka 50 björgunarsveitarmenn þátt í æfingunni en 20 sjá um skipulag og framkvæmd hennar. Þátttakendur í æfingunni glíma við margþætt verkefni í dag, en æfingunni…Lesa meira

true

Sigmundur Davíð hlaut afgerandi kosningu

Kjördæmisþing Framsóknarflokks í Norðausturkjördæmi stendur nú yfir í Skjólbrekku í Mývatnssveit. Nú er lokið kosningu um efstu sæti á lista flokksins í kjördæminu fyrir komandi alþingiskosningar. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, hlaut afgerandi kosningu í oddvitasæti listans, með 72% greiddra atkvæða. Í framhaldinu lýsti Höskuldur Þórhallsson þingmaður því yfir að hann sæktist ekki eftir sæti…Lesa meira

true

“Smölun þóknanleg félagsmönnum að sunnan”

Ágúst Smári Beaumont ritari Pírata á Vesturlandi hefur sent fjölmiðlum tilkynningu þar sem sem hann harmar það sem hann kallar tvöfalt siðferði flokksins. „Píratar í Norðvesturkjördæmi sitja uppi með lista til alþingiskosninga frá stórhöfuðborgarsvæðinu. Smölun er liðin, svo lengi sem að sá smali sé þóknanlegur félagsmönnum að sunnan,“ segir Ágúst. “Það er ólíðandi að við…Lesa meira