Fréttir

true

Kraftur í púttinu hjá eldri borgurum

Um tuttugu eldri borgarar í Borgarbyggð hafa æft pútt af kappi í allan vetur í skemmtilegri aðstöðu í gamla sláturhúsinu í Brákarey sem Glolfklúbbur Borgarness og eldri borgar hafa komi sér þar upp og kalla Eyjuna. Vetraræfingarnar enduðu með þriðja forgjafarmótinu í vetur þriðjudaginn 26. apríl. Þátttakendur voru 15 talsins en leiknar voru 36 holur.…Lesa meira

true

Unesco tekur jákvætt í umsókn Saga Jarðvangs

Fulltrúar Saga Jarðvangs í Borgarfirði, þau Edda Arinbjarnar, Þórður Kristleifsson og Krisján Guðmundsson, hittu byggðarráð Borgarbyggðar á fundi í síðustu viku og kynntu fyrir sveitarstjórnarfulltrúm stefnumótun í útivist og ferðaþjónustu á jarðvangssvæðinu í uppsveitum Borgarfjarðar.  Auk þess sögðu þau frá umsókn Saga jarðvangs sem lögð var inn til Unesco fyrir síðustu jól. „Þetta eru stórar…Lesa meira

true

Guðni Th Jóhannesson í framboð til forseta

Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur lýsti í dag formlega yfir framboði sínu til embættis forseta Íslands. Það gerði hann á fjölmennum fundi sem hann boðaði til í Salnum í Kópavogi klukkan 14 í dag. Þar sagði Guðni meðal annars. „Forseti á að vera í nánum tengslum við alla landsmenn og ekki í liði með einum eða…Lesa meira

true

Ragnheiður vann brons

Hópur ungra og efnilegra sundmanna úr Sundfélagi Akraness hélt utan um liðna helgi. Keppt var á Farum Cup, sem haldið er í bænum Farum á Sjálandi í Danmörku. Krakkarnir stóðu sig allir með prýði og syntu vel. Bestum árangri náði Ragnheiður Karen Ólafsdóttir sem hafnaði í þriðja sæti í 200m bringusundi meyja á nýju Akranesmeti.Lesa meira

true

Vesturlands- og Borgarfjarðarmeistarar í bridds

Í síðustu viku lauk Opna Borgarfjarðarmótinu í bridds með þátttöku 16 para frá Akranesi, Borgarnesi og Borgarfirði. Mótið var jafnframt Vesturlandsmót í tvímenningi og því keppt um tvo titla í senn. Spilað var einu sinni í Logalandi en tvö síðari keppniskvöldin fóru fram á Akranesi. Keppni efstu liða var nokkuð jöfn og skiptust þrjú þeirra…Lesa meira

true

Dagur umhverfisins í Hvalfjarðarsveit

Degi umhverfisins voru gerð góð skil í skólum Hvalfjarðarsveitar; Skýjaborg og Heiðarskóla. Skólarnir eru grænfánaskólar og leggja mikla áherslu á umhverfismennt en á degi umhverfisins nýttu báðir skólarnir tækifærið og veðurblíðuna til útivistar og hreinsunar á umhverfinu. Eldri deild leikskólans Skýjaborgar fór í gönguferð um Melahverfið með það fyrir augum að tína rusl og gera…Lesa meira

true

Skólameistarinn sýndi fordæmi og hvatti aðra til blóðgjafar

Blóðbankabíllinn kemur reglulega á Vesturland eins og lesendur Skessuhorns hafa orðið varir við. Í þessum ferðum er safnað blóði úr landsmönnum og komið til móts við þá sem ekki hafa tök á að heimsækja höfuðstöðvar Blóðbankans í Reykjavík. Bíllinn var staddur í Grundarfirði í síðustu viku til blóðsöfnunar eins og hann gerir tvisvar á ári.…Lesa meira

true

„Það er ekki hægt að bogna undir svona stuðningi“

Snæfell vann síðastliðinn þriðjudag sinn þriðja Íslandsmeistaratitil í röð eftir frækinn sigur á Haukum. Ingi Þór Steinþórsson þjálfari segir upplifunina alltaf jafn ánægjulega. „Það er alltaf gaman að vinna og ég mun aldrei venjast því. Þegar sú tilfinning verður orðinn sjálfsagður hlutur, bara venjulegur dagur á skrifstofunni, þá hætti ég,“ segir Ingi. „Þetta er aldrei…Lesa meira

true

Stóðu sig vel í Pangea stærðfræðikeppninni

        Um liðna helgi fór fram Pangea stærðfræðikeppni fyrir 8. og 9. bekk grunnskóla í landinu. Frá Akranesi komust fjórir krakkar í úrslit keppninnar, þar sem 35 krakkar úr hvorum árgangi unnu sér inn þátttökurétt. Þetta voru þau Aron Kristjánsson frá Brekkubæjarskóla en hann hlaut 42 stig og í hafnaði í 11.…Lesa meira

true

Níu björgunarlykkjur væntanlegar á Vesturland

Eins og fram kom í Skessuhorni í síðustu viku hefur Landsbjörg í samráði við Vegagerðina og Sjóvá ákveðið að standa að uppsetningu og kynningu björgunarlykkju, svokölluðu Björgvinsbelti, við áfangastaði þar sem hætta getur verið á drukknun, svo sem við sjó, vötn og ár. Í fyrsta áfanga verða björgunarlykkjur settar upp á 100 stöðum víðsvegar um…Lesa meira