
„Vegna fjárreksturs má búast við umferðartöfum á veginum við Fornahvamm í Norðurárdal í Borgarfirði frá klukkan 10 í dag og fram eftir degi. Á meðan verður hraði tekinn niður í 50 km/klst,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.Lesa meira

„Vegna fjárreksturs má búast við umferðartöfum á veginum við Fornahvamm í Norðurárdal í Borgarfirði frá klukkan 10 í dag og fram eftir degi. Á meðan verður hraði tekinn niður í 50 km/klst,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.Lesa meira

Síðar í þessum mánuði verður frumflutt sýning í Landnámssetri Íslands um athafnamanninn og frumkvöðulinn Thor Jensen. Það er rithöfundurinn Guðmundur Andri Thorsson sem mun segja sögu Thors, en Thor Jensen var langafi Guðmundar Andra. „Ég rek sögu Thors frá því að hann er ungur piltur í Kaupmannahöfn og kemur svo hingað 14 ára gamall og allslaus.…Lesa meira

Opnuð verður ylströnd í fjörunni við Englendingavík, ef hugmyndir Einars Valdimarssonar, veitingamanns í Englendingavík og Margrétar Rósu Einarsdóttur eiganda ganga eftir. Leyfisumsókn fyrir ylströndinni liggur nú á borði byggðaráðs Borgarbyggðar en málið var tekið fyrir á fundi 1. september síðastliðinn. Ylströndin er bara ein af mörgum hugmyndum Einars og Margrétar Rósu til að laða að…Lesa meira

Greiningardeild Arion banka boðaði til fundar í Landnámssetrinu í Borgarnesi í síðustu viku. Til kynningar var skýrslan „Íslensk matvælaframleiðsla – þróun, staða og horfur með áherslu á landbúnað“. Þar er farið vítt og breitt í matvælaframleiðslu á Íslandi en sjónunum einkum beint að landbúnaði. Kynningin var í höndum Konráðs Guðjónssonar og Ernu Bjargar Sverrisdóttur hjá…Lesa meira

Leikið var í 19. umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu í dag. Á Akranesvelli tóku heimamenn í ÍA á móti erkifjendunum úr KR. Urðu Skagamenn að þessu sinni að sætta sig við tap með einu marki gegn engu í fremur tíðindalitlum leik. Völlurinn var rennandi blautur eftir rigningardag og setti það svip sinn á leikinn.…Lesa meira

Í dag átti að spila heila umferð í Pepsí deild karla í knattspyrnu. Leik ÍBV og Stjörnunnar var þó frestað vegna hvassviðris í Eyjum og erfiðs sjólags frá Þorlákshöfn. Klukkan 17:00 tekur Víkingur Ólafsvík á móti Víkingum Reykjavík á Ólafsvíkurvelli. Á sömu mínútu hefst einnig heimaleikur ÍA og KR á Akranesi. Heiðursgestir á þeim leik…Lesa meira

Tvö umferðarslys urðu í Dölum fyrir hádegi í dag með um klukkutíma millibili. Ökumaður malarflutningabíls slasaðist þegar bíll hans valt þegar hann var að sturta hlassi af palli bílsins. Vann hann við vegagerð í Laxárdal. Læknir á slysstað mat ástand mannsins þannig að kalla þyrfti til þyrlu Landhelgisgæslunnar sem sótti hann og flutti á sjúkrahús í Reykjavík.…Lesa meira

“Það er ekki að gamni okkar sem við boðum til bændafundar nú þegar annar hver bóndi er ýmist í göngum eða að búa sig undir að fara í smalamennskur. Staða okkar er hins vegar sú að við gátum ekki beðið með að boða til almenns fundar,” segir Þóra Sif Kópsdóttir formaður Félags sauðfjárbænda á Snæfellsnesi…Lesa meira

Bjarki Pétursson golfari úr Borgarnesi bar sigur úr býtum á Gopher Invitational mótinu í golfi sem haldið er í Minnesota í Bandaríkjunum. Þetta var fyrsta háskólamótið á tímabilinu en Bjarki leikur fyrir Kent State háskólann í Ohio. Hann lék hringina þrjá af öryggi, á 70, 70 og 69 höggum eða sjö höggum undir pari og…Lesa meira

Á hverju ári sækist hópur nemenda víðsvegar úr heiminum eftir því að stunda skiptinám við Háskólann á Bifröst. Skiptinemarnir nú á haustönn eru alls 31 og koma frá 13 löndum. Þar af stunda nú átta nemendur frá Asíu nám við skólann og hafa þeir aldrei verið fleiri. Skiptinemarnir taka virkan þátt í daglegu lífi á…Lesa meira