Fréttir

true

Vildu tvær vítaspyrnur en fengu hvoruga

Víkingur Ó. mætti Fylki í Pepsi deild karla í knattspyrnu í gær. Búast mátti við hörkuleik í Árbæ Reykjavíkur þar sem bæði lið bítast um að halda sæti sínu í deildinni. Víkingar voru í 9. sæti, tveimur stigum fyrir ofan Fylki í næstneðsta sæti. Þegar lokaflautan gall var niðurstaðan sú að heimaliðið hafði sigur með…Lesa meira

true

Sveinbjörn býður sig fram til formennsku í Framsóknarflokknum

„Ég vil að forusta Framsóknarflokksins fái umboð með afgerandi hætti á flokksþingi sem haldið verður 1. og 2. október næstkomandi í Reykjavík. Þess vegna tók ég þá ákvörðun að bjóða mig fram til formanns Framsóknarflokksins og tryggja að í það minnsta fari fram kosning um forustuna,“ segir Sveinbjörn Eyjólfsson á Hvanneyri, forstöðumaður Nautastöðvar BÍ á…Lesa meira

true

Holræsabíll á ferðinni í þessari viku

Holræsabíll frá Gámaþjónustu Vesturlands verður á ferðinni frá 12. til 16. september, á Akranesi og í nágrenni. Í auglýsingum sem birtar voru um ferðir bílsins var ranglega sagt að hann yrði á ferðinni í ágúst en hið rétta er að hægt er að fá þjónustu hans nú í þessari viku. Í auglýsingunum frá Gámaþjónustunni segir…Lesa meira

true

Slæm byrjun varð Skagakonum að falli

ÍA mætti Val í Pepsi deild kvenna í kanttspyrnu síðastliðinn föstudag. Leikið var á Hlíðarenda. ÍA var fyrir leikinn á botni deildarinnar. Með sigri hefði liðið hleypt mikilli spennu í fallbaráttuna. En það varð ekki því Valur hafði sigur með tveimur mörkum gegn engu í miklum baráttuleik. Valskonur byrjuðu af miklum krafti og komust yfir strax…Lesa meira

true

Urgur í vestfirsku Samfylkingarfólki

Í kjölfar flokksvals Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi eru vaxandi líkur á að niðurstöðunni verði ekki unað og hún jafnvel kærð. Áður en prófkjöri lauk á laugardaginn var þegar búið að koma athugasemdum til skrifstofu Samfylkingarinnar vegna framgöngu stuðningsmanna Guðjóns Brjánssonar en hann sigraði eins og kunnugt er í prófkjörinu, Inga Björk Bjarnadóttir listfræðinemi varð í öðru…Lesa meira

true

Eldur í gamla samkomuhúsinu við Faxaborg

Slökkvilið Borgarbyggðar var á níunda tímanum í morgun kallað út vegna elds í sumarhúsi við Hvítá, í landi Ferjukots í Borgarhreppi. Slökkvistarf hefur gengið vel samkvæmt heimildum Skessuhorns, en stendur enn yfir. Rjúfa þurfti gat á mæni hússins til að komast að eldinum. Ljóst er að um töluverðar skemmdir er að ræða. Húsið sem um…Lesa meira

true

Mjólkurvörur, ávextir og grænmeti hækkuðu mest í sumar

Samanburður verðkannana sem verðlagseftirlit ASÍ framkvæmdi 13. júní og nú aftur 5. september sl. sýnir að mjólkurvörur hafa hækkað síðastliðna þrjá mánuði um 3%. Litlar verðbreytingar eru á öðrum vörum á tímabilinu, nema þá á ávöxtum og grænmeti sem breytast mikið í verði eins og svo oft áður, segir í tilkynningu frá ASÍ. „Í öllum…Lesa meira

true

Vefmyndavél komið fyrir á Garðavelli

Undanfarin misseri hefur verið unnið að því að koma upp vefmyndavél við golfvöllinn Garðavöll á Akranesi. Með tilkomu hennar geta kylfingar kynnt sér aðstæður á fyrsta teig vallarins hvenær sem er, hvar sem þeir eru staddir. Aðgangur að vefmyndavélinni er á heimasíðu Golfklúbbsins Leynis, www.leynir.is. Ofarlega til hægri á síðunni er hægt að smella á…Lesa meira

true

Markpóstur væntanlegur vegna skimunar fyrir forstigi mergæxlis

Í haust fer rannsóknarhópur undir forystu Sigurðar Yngvi Kristinssonar, prófessors í blóðsjúkdómum, af stað með stóra vísindarannsókn á landsvísu þar sem fyrirhugað er að skima fyrir forstigi mergæxlis hjá öllum sem fæddir eru 1975 og fyrr. Valið var eitt sveitarfélag á landinu til að prufukeyra verkefnið og varð Akranes fyrir valinu. Að sögn Ásdísar Rósu…Lesa meira

true

Reiðhjálmur hlífði höfðinu

Gangnamaður á Arnarvatnsheiði féll af hesti sínum síðastliðið föstudagskvöld og féll á höfuðið. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð á staðinn um kvöldið og flutti manninn til læknisskoðunar í Reykjavík. Hann reyndist óbrótinn en marinn og aumur eftir fallið. Leitarmaðurinn sem í hlut á heitir Hörður Guðmundsson og býr á Grímsstöðum í Reykholtsdal. Hann segir að hesturinn…Lesa meira