Fréttir

true

Lýsa þungum áhyggjum af fjárhagsstöðu grunnskóla

Stjórn og formenn svæðafélaga Skólastjórafélags Íslands lýsa yfir þungum áhyggjum af fjárhagsstöðu margra grunnskóla í landinu nú á haustdögum. „Óraunhæfar fjárúthlutanir til grunnskóla og niðurskurður allt frá hruni leiða til skerðingar á lögbundinni þjónustu skólanna. Mörg sveitarfélög hafa forgangsraðað í þágu nemenda við gerð fjárhagsáætlana en önnur hafa á síðustu árum skorið niður fjármagn til…Lesa meira

true

Sjómenn kjósa um verkfallsboðun

Útlit er að verkfallsvopninu verði beitt í kjaradeilu sjómanna og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Sjómannasamband Íslands hefur beint því til aðildarfélaga sinna að hefja undirbúning að verkfalli á fiskiskipaflotanum. „Það liggur fyrir að ekki mun nást samkomulag við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi eftir að sjómenn felldu kjarasamninginn. Í ljósi þess að aðilar ná ekki saman…Lesa meira

true

„Þurfum að endurskoða frá grunni verðlagningu og sölu dilkakjöts“

Allir helstu sláturleyfishafar landsins hafa nú gefið út verðskrár sínar fyrir haustslátrun sauðfjár og lækka allir verð frá síðustu sláturtíð. Ástæður sem fyrirtækin gefa fyrir lækkuðu afurðaverði eru einkum sagðar óhagstæðar aðstæður í útflutningi kjöts; krónan hafi styrkst, lækkun hafi orðið á mörkuðum og hrun á hliðarafurðamörkuðum, svo sem gærum. Afar þungt hljóð er í…Lesa meira

true

Skotfimi ekki síður fyrir konur en karla

Í síðustu viku var boðið á konukvöld á æfinga- og keppnissvæði Skotfélags Akraness við rætur Akrafjalls. Þá var konum sérstaklega boðið að mæta og kynna sér skotíþróttina. Guðrún Hjaltalín skipulagði kvöldið og segir hún tilganginn hafa verið að sýna fleirum hversu skemmtileg íþrótt skotfimi er. „Þetta er í fyrsta skipti sem við hóum konum sérstaklega…Lesa meira

true

Sjónvarp keypt fyrir flöskusjóðinn

Nýverið var nýtt sjónvarp sett upp í matsalnum á Dvalarheimili í Stykkishólmi. Sjónvarpið var keypt fyrir peninga sem komu úr flöskusjóði dvalarheimilisins. Það er Árný Margrét Guðmundsdóttir, fyrrum starfsmaður á dvalarheimilinu, sem heldur utan um sjóðinn og hefur gert til margra ára eða allt frá því sjóðurinn var stofnaður árið 1991. Árný starfaði á dvalarheimilinu…Lesa meira

true

Leggja drög að samningi um rekstur hjúkrunarheimila

Samkomulag hefur tekist um forsendur sem varða þjónustu og rekstur hjúkrunarheimila sem rekin eru á daggjöldum og stefnt að samningi fyrir næstu mánaðamót. Málið hefur velkst lengi í kerfinu og hjúkrunarheimili landsins barist við rekstrarhalla um árabil. Ekki síst eru lífeyrisskuldbindingar þungar fyrir sveitarfélögin sem reka þau og daggjöld sem þeim er úthlutað hafa hvergi…Lesa meira

true

Dregið hefur úr þörf fyrir menntað vinnuafl

Tæplega fimmtungur fyrirtækja á Vesturlandi hefur þörf fyrir starfsfólk með ákveðna menntun samkvæmt niðurstöðum spurningakönnunar sem gerð var í 250 fyrirtækjum á Vesturlandi í desember 2015. Þörf fyrir menntað vinnuafl í þessum fyrirtækjum hafði dregist umtalsvert saman frá sambærilegri könnun sem gerð var árið 2014. „Þrátt fyrir að dregið hafi úr þörfinni á menntuðu vinnuafli…Lesa meira

true

Endurtekin kosning VG verður 12.-20. september

Kjörseðlar vegna endurtekins forvals Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í Norvesturkjördæmi verða póstlagðir á morgun föstudaginn 9. september. Eins og fram hefur komið í fréttum Skessuhorns ákvað kjörstjórn að láta endurtaka póstkosningu sem fór af stað um mánaðamótin þar sem upplýsingar sem fylgdu kjörgögnum voru ekki nægjanlega ljósar og gátu valdið misskilningi. Nýir seðlar með öðrum lit…Lesa meira

true

Framkvæmdir að hefjast við nýtt veiðihús við Norðurá

Síðastliðinn sunnudag voru fyrstu skóflustungurnar teknar að nýrri viðbyggingu við veiðihúsið á Rjúpnaási við Norðurá. Núverandi og fyrrverandi formenn Veiðifélags Norðurár framkvæmdu verkið, þau Birna G Konráðsdóttir og Sigurjón M Valdimarsson. Félögum í veiðifélaginu og fleiri gestum var boðið við athöfnina og að þiggja veitingar. Eins og fram kom í frétt Skessuhorns fyrr í sumar…Lesa meira

true

Alþýðufylkingin gefur út stefnuskrá

Stjórnálaflokkurinn Alþýðufylkingin hefur gefið út kosningastefnuskrá fyrir Alþingiskosningar 2016. Hún ber titilinn Fjögurra ára áætlun Alþýðufylkingarinnar. Hér er um viðamikið skjal að ræða, alls um 40 síður. Hefur hún að geyma stefnu flokksins í meginhagsmunamálum þjóðarinnar: Hvernig við vindum ofan af markaðsvæðingu og komum í staðinn á félagslegum rekstri í innviðum landsins, og þá ekki…Lesa meira