Fréttir

true

Kornið aldrei verið þreskt jafn snemma

Það var sautján stiga hiti, logn og varla skýhnoðri á himni. Dæmigerðar aðstæður fyrir sumarið eins og það hefur verið í Borgarfirði. Magnús Eggertsson bóndi í Ásgarði var að taka þreskivélina til kostanna föstudaginn 2. september, hluti kornakranna orðnir hæfir til þreskingar og því um að gera að nýta veðurblíðuna. Allur gróður hefur vaxið vel…Lesa meira

true

Fall pundsins og skortur á ýsukvóta helstu áhyggjur útgerðarmanna

Nýtt fiskveiðiár hófst 1. september síðastliðinn. Fiskistofa úthlutar í aflamark 369.925 þorskígildistonnum, nánast sama magni og á nýliðnu fiskveiðiári. Aukning á milli ára samsvarar einungis 1.530 þorskígildistonnum. Skip á Vesturlandi fengu úthlutað rétt rúmlega 53.161 tonni í þorskígildum eða 14,4% af heildarkvótanum. Úthlutun í þorski er rúmlega 194 þúsund tonn og hækkar um tæp fjögur þúsund…Lesa meira

true

Flokksval Samfylkingar hefst á morgun

Á morgun, fimmtudaginn 8. september hefst flokksval Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi vegna alþingiskosninganna 29. október nk. Kosið verður um tvö efstu sæti listans. Þrír eru í kjöri og gefa allir kost á sér í efsta sæti. Guðjón S Brjánsson forstjóri HVE og Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir alþingismaður gefa einungis kost á sér í 1. sæti listans, en…Lesa meira

true

Allar uppáhalds kökurnar hennar Evu Laufeyjar í einni bók

Skagakonan Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir hefur verið einn af vinsælustu matarbloggurum landsins um árabil. Fyrir þremur árum gaf hún út matreiðslubókina Matargleði Evu og fylgdi bókinni eftir með sjónvarpsþáttum á Stöð 2. Hún vinnur nú að útgáfu annarrar bókar og mun stýra nýjum þætti á Stöð 2 í vetur, í samstarfi við Guðmund Benediktsson sjónvarpsmann…Lesa meira

true

Nýr verkefnisstjóri umhverfisvottunar

Náttúrustofa Vesturlands hefur ráðið nýjan starfsmann til að sinna EarthCheck umhverfisvottunarverkefni sveitarfélaganna fimm á Snæfellsnesi. Það er líffræðingurinn Birna Heide Reynisdóttir, sem undanfarið hefur unnið sem sérfræðingur í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli og er í meistaranámi í umhverfisstjórnun meðfram starfi. Hún flyst til Stykkishólms og mun hefja störf á Náttúrustofunni 1. október nk. Valið stóð á milli…Lesa meira

true

Biðla til bænda að finna bilaðan dróna

Erlendur ferðamaður tapaði „Phantom 4“ dróna á Bröttubrekku um síðustu helgi. Hafði maðurinn verið að fljúga drónanum þegar tækið gaf merki um að rafhlaðan væri að verða tóm. Voru honum þá send boð um að „koma heim“ en hann skilaði sér ekki þrátt fyrir það. Ferðamaðurinn leitaði árangurslaust í um fimm klukkustundir og fór síðan…Lesa meira

true

Bændur mótmæla verðskrá

Á stjórnarfundi Búnaðarsamtaka Vesturlands 29. ágúst síðastliðinn var samþykkt ályktun til að mótmæla verðskrá sláturleyfishafa: „Stjórn Búnaðarsamtaka Vesturlands lýsir yfir vonbrigðum með framkomnar verðskrár frá sláturleyfishöfum fyrir sauðfjárafurðir nú í haust, þar sem boðaðar eru umtalsverðar verðlækkanir. Búnaðarsamtök Vesturlands styður sauðfjárbændur og samtök þeirra í baráttu þeirra við að fá þessum verðlækkunum hnekkt og skorar…Lesa meira

true

Söfnuðu nítján þúsund dósum og flöskum

Eitt af verkefnum björgunarsveitarinnar Lífsbjargar og unglingadeildarinnar Drekans í Snæfellsbæ er dósasöfnun. Farið er reglulega í dósasöfnun á Hellissandi og í Rifi og safnast alltaf vel. Einnig hafa staðið gámar við verslanir á svæðinu og tjaldsvæðin sem vel hefur safnast í. Um mikilvæga fjáröflun sveitarinnar er að ræða og er ágóðinn af dósasöfnunum nýttur í…Lesa meira

true

FVA hlýtur veglegan styrk vegna umhverfisverkefnis

Fjölbrautaskóli Vesturlands fékk nýverið úthlutað 15 milljóna króna styrk til umhverfisverkefnis sem nefnist ,,Think, Act, Work Sustainable.“ Kemur styrkurinn úr menntahluta Erasmus+ mennta- og æskulýðsáætlun ESB. Samstarfsskólar FVA í verkefninu eru frá Ítalíu, Spáni, Þýskalandi og Frakklandi. „Markmiðið með verkefninu er að auka umhverfisvitund nemenda og hvetja til betri nýtingar hráefna og sjálfbærni á sem…Lesa meira

true

Kynningarfundir í dag um íslenska matvælaframleiðslu

Kynningarfundir um íslenska matvælaframleiðslu, þróun stöðu og horfur með áherslu á landbúnað, verða haldnir í dag í Borgarnesi og í Búðardal á vegum Arion banka. Á fundunum verður fjallað um nýútgefna úttekt greiningardeildar Arion banka um íslenska matvælaframleiðslu. Konráð S. Guðjónsson og Erna Björg Sverrisdóttir sérfræðingar hjá greiningardeild kynna úttektina. „Í úttektinni eru dregnar fram…Lesa meira