
Árgangur 1971 á Akranesi hefur oft komið við sögu í fjáröflunum innanbæjar og látið gott af sér leiða. Nú hefur árgangurinn ákveðið að standa fyrir áheitastökki í Akraneshöfn laugardaginn 1. maí næstkomandi. Safnað verður fyrir einn jafnaldra þeirra, Sveinbjörn Reyr, sem slasaðist alvarlega á síðasta ári þegar hann var við akstur í motocrossbrautinni á Akranesi.…Lesa meira








