Fréttir

true

Borgarbyggð auglýsir menningarstyrki

Menningarsjóður Borgarbyggðar auglýsir eftir umsóknum í sjóðinn. Tilgangur hans er að efla menningu í sveitarfélaginu og er sérstök rækt lögð á grasrót í menningarlífi; einstaklinga og félagasamtök. „Umsókninni þarf að fylgja sundurliðuð kostnaðaráætlun fyrir verkefnið ásamt greinargerð. Styrkþegar síðasta árs eru minntir á að skila inn skýrslu um framgang og lok verkefnis fyrir næstu styrkveitingu.…Lesa meira

true

Stjörnum prýddur Reykjanesskagi

Heldur hefur dregið úr jarðskjálftavirkni á Reykjanesi eftir því sem liðið hefur á vikuna. Eins og kunnugt er hófst þessi langa hrina miðvikudaginn 24. febrúar með skjálfta upp á 5,7 stig. Næststærsti skjálftinn á þessu tímabili varð síðastliðinn sunnudag klukkan 14:15 og mældist hann 5,4 stig og átti upptök sín rúma tvo kílómetra vestur af…Lesa meira

true

Voru sannarlega tilbúin í líf með barni með auka litning

Næstkomandi sunnudag er alþjóðlegur dagur einstaklinga með Downs-heilkenni „Hann er mikil félagsvera, glaðlyndur, glettinn, jákvæður og mjög harður af sér,“ segir Inga Guðrún Kristjánsdóttir um Styrkár Gauta Hallgrímsson son sinn. Styrkár er fæddur haustið 2017 og vissu þau Inga Guðrún og Hallgrímur Halldórsson, foreldrar Styrkárs, ekki að hann væri með Downs-heilkenni fyrir fæðingu. Næstkomandi sunnudag,…Lesa meira

true

Grásleppuveiðar heimilar frá 23. mars

Heimilt verður að hirða grásleppuhrognin og henda hveljunni Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað og gefið út reglugerð um hrognkelsaveiðar árið 2021. Reglugerðin er að mestu óbreytt frá fyrri reglugerð að undaskildum ákvæðum um svæðalokanir. Leyfi er gefið út veiða í 25 samfellda daga. Leyfi eru bundin við ákveðið veiðisvæði og veiðitímabil. Veiðisvæði…Lesa meira

true

Skipulags- og matslýsing vegna vindmyllugarðs á Grjóthálsi

Á fundi sínum 11. febrúar síðastliðinn samþykkti sveitarstjórn Borgarbyggðar skipulags- og matslýsingu fyrir aðalskipulagsbreytingu í landi jarðanna Hafþórsstaða í Norðurárdal og Sigmundarstaða í Þverárhlíð. Í breytingunni er gert ráð fyrir að skilgreina iðnaðarsvæði í stað landbúnaðarnota á Grjóthálsi, milli fyrrgreindra jarða, þar sem landeigendur hafa uppi áform um að reisa allt að sex vindmyllur sem…Lesa meira

true

Vilja að hafist verði handa við að endurskoða þarfir og forsendur ferjusiglinga

Fulltrúar frá Vestfjarðastofu, Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) og sveitarfélögum við Breiðafjörð hafa undanfarna daga átt fundi með samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Vegamálastjóra og þingmönnum Norðvesturkjördæmis um stöðuna sem upp er komin vegna bilunar sem varð í Breiðafjarðaferjunni Baldri í síðustu viku. Eins og mörgum er kunnugt varð bilun í aðalvél Baldurs sem varð til þess…Lesa meira

true

Skallagrímskonur töpuðu naumlega í Hafnarfirði

Skallagrímur varð að sætta sig við tap gegn Haukum, 73-69, þegar liðin mættust á Ásvöllum í Hafnarfirði í Domino‘s deild kvenna í gærkvöldi. Haukakonur komu sterkari til leiks í upphafsfjórðungnum en Borgnesingar tóku fljótlega við sér og komust yfir í smá stund eftir nærri sjö mínútur en misstu svo heimakonur fram úr sér aftur og…Lesa meira

true

Snæfell tapaði fyrir Fjölni

Snæfellskonur máttu játa sig sigraðar gegn Fjölni, 79-71, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var í Grafarvoginum. Bæði lið mættu sterk til leiks og skiptust á að leiða í fyrsta fjórðungnum en Fjölniskonur voru þremur stigum yfir, 16-13, þegar leikhlutinn kláraðist. Fjölnir hélt forystunni í öðrum leikhluta en Hólmarar…Lesa meira

true

Rakaskemmdir og mygla fundust við úttekt – viðamiklar umbætur framundan

Í gær, miðvikudag, var haldin kynningarfundur í streymi um skýrslu Verkís um nýja úttekt á húsnæði Grundaskóla á Akranesi. Skýrslan var unnin vegna grunsemda um ónóg loftgæði í skólanum. Helstu niðurstöður úttektarinnar eru að rakaskemmdir hafa fundist víða í húsnæði skólans og sumsstaðar hafa þær leitt til myglu. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri hélt framsögu og…Lesa meira

true

Miðstjórn ASÍ varar við áformum um opnari landamæri

Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum á þriðjudaginn tillögu dómsmálaráðherra þess efnis að gerð verði breyting á ákvæðum reglugerðar um för fólks yfir landamæri. Eftir breytingu mun almennt bólusetningarvottorð nægja til að heimila ferðir yfir ytri landamærin og inn í landið, óháð því hvort það séu þegnar innan Schengen svæðisins eða utan. Fulltrúar ferðaþjónustufyrirtækja fögnuðu…Lesa meira