Fréttir

true

Lögreglan æfir skotfimi á Ölduhrygg

Lögreglan á Vesturlandi hefur fengið bráðabirgðaleyfi frá sveitarfélaginu Borgarbyggð til að stunda skotæfingar og skotpróf á Ölduhrygg við Snæfellsnesveg. Samkvæmt viðbúnaðarskipulagi lögreglu gerir ríkislögreglustjóri kröfu um að lögreglumenn fái reglulega þjálfun í skotfimi og standist árleg skotvopnapróf. Aðstaða til æfinga lögreglu hefur á liðnum árum farið fram í sal Skotfélags Vesturlands í Brákarey í Borgarnesi.…Lesa meira

true

Niðurstaða úr prófkjöri Framsóknar kunngerð annað kvöld

Póstkosningu Framsóknarflokks í Norðvesturkjördæmi, vegna myndunar framboðslista fyrir komandi alþingiskosningar, lauk síðastliðinn föstudag. Atkvæði eru enn að berast í pósti, en talið verður á Reykjum í Hrútafirði á morgun og niðurstaða ætti að liggja fyrir annað kvöld, að sögn Valgarðs Hilmarssonar formanns kjörstjórnar. 1.995 voru á kjörskrá í prófkjörinu. Valgarður segir að nákvæm kjörsókn liggi…Lesa meira

true

Gagnvirkri hraðahindrun komið fyrir í Ólafsvík

Snemma næsta sumar er gert ráð fyrir að komin verði svokölluð gagnvirk hraðahindrun við Ennisbraut í Ólafsvík. Frá þessu er greint á heimasíðu Snæfellsbæjar. Sveitarfélagið ætlar í samvinnu við Vegagerðina að setja hraðahindranir sem eru þannig að hleri er settur í veginn og ef bíl er ekið yfir leyfilegum hámkarkshraða fellur hlerinn niður um nokkra…Lesa meira

true

Borgarbyggð auglýsir menningarstyrki

Menningarsjóður Borgarbyggðar auglýsir eftir umsóknum í sjóðinn. Tilgangur hans er að efla menningu í sveitarfélaginu og er sérstök rækt lögð á grasrót í menningarlífi; einstaklinga og félagasamtök. „Umsókninni þarf að fylgja sundurliðuð kostnaðaráætlun fyrir verkefnið ásamt greinargerð. Styrkþegar síðasta árs eru minntir á að skila inn skýrslu um framgang og lok verkefnis fyrir næstu styrkveitingu.…Lesa meira

true

Stjörnum prýddur Reykjanesskagi

Heldur hefur dregið úr jarðskjálftavirkni á Reykjanesi eftir því sem liðið hefur á vikuna. Eins og kunnugt er hófst þessi langa hrina miðvikudaginn 24. febrúar með skjálfta upp á 5,7 stig. Næststærsti skjálftinn á þessu tímabili varð síðastliðinn sunnudag klukkan 14:15 og mældist hann 5,4 stig og átti upptök sín rúma tvo kílómetra vestur af…Lesa meira

true

Voru sannarlega tilbúin í líf með barni með auka litning

Næstkomandi sunnudag er alþjóðlegur dagur einstaklinga með Downs-heilkenni „Hann er mikil félagsvera, glaðlyndur, glettinn, jákvæður og mjög harður af sér,“ segir Inga Guðrún Kristjánsdóttir um Styrkár Gauta Hallgrímsson son sinn. Styrkár er fæddur haustið 2017 og vissu þau Inga Guðrún og Hallgrímur Halldórsson, foreldrar Styrkárs, ekki að hann væri með Downs-heilkenni fyrir fæðingu. Næstkomandi sunnudag,…Lesa meira

true

Grásleppuveiðar heimilar frá 23. mars

Heimilt verður að hirða grásleppuhrognin og henda hveljunni Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað og gefið út reglugerð um hrognkelsaveiðar árið 2021. Reglugerðin er að mestu óbreytt frá fyrri reglugerð að undaskildum ákvæðum um svæðalokanir. Leyfi er gefið út veiða í 25 samfellda daga. Leyfi eru bundin við ákveðið veiðisvæði og veiðitímabil. Veiðisvæði…Lesa meira

true

Skipulags- og matslýsing vegna vindmyllugarðs á Grjóthálsi

Á fundi sínum 11. febrúar síðastliðinn samþykkti sveitarstjórn Borgarbyggðar skipulags- og matslýsingu fyrir aðalskipulagsbreytingu í landi jarðanna Hafþórsstaða í Norðurárdal og Sigmundarstaða í Þverárhlíð. Í breytingunni er gert ráð fyrir að skilgreina iðnaðarsvæði í stað landbúnaðarnota á Grjóthálsi, milli fyrrgreindra jarða, þar sem landeigendur hafa uppi áform um að reisa allt að sex vindmyllur sem…Lesa meira

true

Vilja að hafist verði handa við að endurskoða þarfir og forsendur ferjusiglinga

Fulltrúar frá Vestfjarðastofu, Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) og sveitarfélögum við Breiðafjörð hafa undanfarna daga átt fundi með samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Vegamálastjóra og þingmönnum Norðvesturkjördæmis um stöðuna sem upp er komin vegna bilunar sem varð í Breiðafjarðaferjunni Baldri í síðustu viku. Eins og mörgum er kunnugt varð bilun í aðalvél Baldurs sem varð til þess…Lesa meira

true

Skallagrímskonur töpuðu naumlega í Hafnarfirði

Skallagrímur varð að sætta sig við tap gegn Haukum, 73-69, þegar liðin mættust á Ásvöllum í Hafnarfirði í Domino‘s deild kvenna í gærkvöldi. Haukakonur komu sterkari til leiks í upphafsfjórðungnum en Borgnesingar tóku fljótlega við sér og komust yfir í smá stund eftir nærri sjö mínútur en misstu svo heimakonur fram úr sér aftur og…Lesa meira