Fréttir

true

Lagt til að keyptur verði björgunarstigabíll á Akranes

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar síðastliðinn mánudag var lagt fram minnisblað slökkviliðsstjóra Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar, Jens Heiðars Ragnarssonar, um kaup á körfubíl til slökkviliðsins en liðið hefur verið án körfubíls frá því vorið 2019 eða í um tvö ár. Á svæði slökkviliðsins eru fjölmörg háreist fjölbýlishús og háreist atvinnuhúsnæði að auki. Því er…Lesa meira

true

Endurskoða menningarstefnu fyrir Vesturland

Hafin er vinna við endurskoðun menningarstefnu fyrir Vesturland. Slík sameiginleg stefna sveitarfélaga í landshlutanum var fyrst samþykkt árið 2016 og gilti til 2019. Því var endurskoðun hennar fyrir nokkru orðin tímanbær. Sigursteinn Sigurðsson menningarfulltrúi hjá SSV segir að sá hátturinn sé nú hafður á að sveitarfélögin á Vesturlandi tilnefndu einn fulltrúa hvert til að sitja…Lesa meira

true

Guðjón hyggst hætta í stjórnmálum eftir kjörtímabilið

Guðjón S Brjánsson alþingismaður Samfylkingar í Norðvesturkjördæmi hyggst yfirgefa stjórnmálin að þessu kjörtímabili loknu. Í yfirlýsingu sem hann var að senda frá sér segir Guðjón: „Ég hef ákveðið að gefa ekki kost á mér í flokksvali Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi sem haldið verður seinna í mars. Stjórnmálin eru búin að eiga hug minn allan undanfarin ár…Lesa meira

true

Elskar að elda góðan mat og baka allskyns góðgæti

„Ég hef haldið úti samfélagsmiðlinum Matarlyst á Facebook, Instagram og Snapchat frá því árið 2018. Ég og Elísabet systir mín höfum verið í þessu saman en Elísabet hefur reyndar verið í öðru að snúast að undanförnu en vonandi kemur hún aftur með í þetta með mér sem fyrst,” segir Ragnheiður Stefánsdóttir á Akranesi í samtali…Lesa meira

true

Ráðherra staðfesti nýja framtíðarsýn um að styrkja til lengri tíma siglingar yfir fjörðinn

Í hádeginu í gær var haldinn fjarfundur með Sigurði Inga Jóhannssyni samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Bergþóru Þorkelsdóttur vegamálastjóra, ásamt starfsfólki ráðuneytisins. Fyrir hönd sveitarfélaga á Vesturlandi og Vestfjörðum sátu fundinn fulltrúar samtaka Sveitarfélaga á Vesturlandi og Vestfjarðarstofu, ásamt bæjar- og sveitarstjórum þeirra sveitarfélaga sem þjónusta Breiðafjarðarferjuna Baldur, þ.e. Stykkishólmsbæjar, Reykhólahrepps og Vesturbyggðar. Á fundinum var…Lesa meira

true

Vonast til að Baldur geti siglt á morgun

Breiðafjarðarferjan Baldur mun ekki fara áætlunarferð sína í dag yfir fjörðinn eins og vonast hafði verið til. Unnið er við að setja nýja túrbínu við aðalvél skipsins og gert ráð fyrir að hægt verði að prufusigla skipinu í dag. Þá er veðurspá slæm fyrir Breiðafjörð síðdegis í dag og ekkert ferðaveður. Samkvæmt upplýsingum Skessuhorns er…Lesa meira

true

Styrkir til menningarfyrirtækja og einyrkja

Nú hefur ríkissjóður greitt út 357 milljónir króna í tekjufallsstyrki til rekstraraðila í menningargeiranum og skapandi menningargreinum. Heildarfjárhæð tekjufallsstyrkja er hins vegar níu milljarðar króna. Greiðsla styrkja til menningarfyrirtækja hófst í janúar og en markmið þeirra er að styðja við einyrkja og fyrirtæki sem orðið hafa fyrir meira en 40% tekjufalli vegna sóttvarnaráðstafana eða takmarkana…Lesa meira

true

Skagamenn fá framherja úr Fylki

Knattspyrnumaðurinn Hákon Ingi Jónsson, framherji úr Fylki, hefur gengið til liðs við Skagamenn. Hákon Ingi gerði þriggja ára samning við ÍA. Hann hefur leikið allan sinn knattspyrnuferil með Fylki utan eitt ár, sem var árið 2016 en þá lék hann með HK sem þá var undir stjórn Jóhannesar Karls Guðjónssonar. Hákon Ingi skoraði þá 13…Lesa meira

true

Lögbýlaskrá hér aðgengileg á rafrænu formi

Lögbýlaskrá fyrir árið 2020 er komin út en hún er gefin út árlega fyrir allt landið á grundvelli upplýsinga úr þinglýsingarbók og fasteignaskrá. Útgáfan er á vegum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins en samkvæmt jarðalögum er ráðuneytinu heimilt að fela öðrum aðila að annast gerð lögbýlaskrárinnar. Frá árinu 2010 hefur Þjóðskrá Íslands haft það hlutverk að gefa…Lesa meira

true

Snorrastaðir afurðahæsta búið og Sól í Ásgarði nythæsta kýrin

Aðalfundur Kúabændafélagsins Baulu, sem hefur starfssvæði á sunnanverðu Snæfellsnesi, Mýrum og Borgarfirði norðan Skarðsheiðar, var haldinn mánudaginn 15. mars í félagsheimilinu Lyngbrekku. Á dagsskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf, en að auki fékk félagið nokkra gesti á fundinn. Félögum voru veittar viðurkenningar fyrir afurðahæstu kýr, afurðahæstu bú og hæst dæmdu kýr fyrir árið 2020.   Afurðahæstu kúabúin…Lesa meira