Fréttir

true

Samfylkingin heldur flokksval í september

Samfylkingin hefur unnið að undirbúningi alþingiskosninganna um nokkurra mánaða skeið, segir í tilkynningu. Flokksval verður haldið í Reykjavík, Suðvesturkjördæmi og Norðvesturkjördæmi 8.-10. september en í Norðausturkjördæmi og Suðurkjördæmi verður beitt uppstillingu við val á framboðslista. Þá kemur fram í tilkynningu frá flokksskrifstofunni að búið er að ráða Bryndísi Ísfold Hlöðversdóttir í starf kosningastjóra.Lesa meira

true

Hafdís gefur kost á sér í þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins

Hafdís Gunnarsdóttir hefur ákveðið að gefa kost á sér í prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi sem haldið verður 3. september næstkomandi. Hún mun sækjast eftir 3. sæti á listanum. „Ástæðan fyrir því að ég býð mig fram er að ég sé ótal tækifæri til að efla svæðin í þessum víðfeðma kjördæmi og vil með þessum hætti…Lesa meira

true

Borgarbyggð auglýsir eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga

Umhverfisviðurkenningar Borgarbyggðar fyrir árið 2016 verða veittar í fjórum flokkum. Þeir eru: Besti frágangur lóðar við íbúðarhúsnæði, besti frágangur lóðar við atvinnuhúsnæði, snyrtilegasta bændabýlið og að lokum verður veitt sérstök viðurkenning umhverfis-, skipulags- og landbúnaðarnefndar. Sveitarfélagið óskar eftir tilnefningum í öllum fjórum flokkum og bent er á að hver og einn getur sent inn margar…Lesa meira

true

Árétta mikilvægi forkaupsréttar sveitarfélaga að aflaheimildum

Á fundi stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga sem haldinn var 4. ágúst síðastliðinn var rætt um forkaupsrétt sveitarfélaga á aflaheimildum og sölu aflaheimilda frá Þorlákshöfn. Eftirfarandi bókun var samþykkt samhljóða: „Stjórn samtaka sjávarútvegssveitarfélaga leggur áherslu á að sveitarfélög hafi skýran forkaupsrétt þegar skip með aflaheimildum, aflaheimildir, eða hlutir í lögaðila sem á skip með aflaheimildum eru seld…Lesa meira

true

Birgir Leifur og Valdís Þóra á sterkum mótum um helgina

Birgir Leifur Hafþórsson, nýkrýndur Íslandsmeistari í golfi, og Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni kepptu bæði á næst sterkustu atvinnumótaröðum Evrópu í golfi í nýliðinni viku. Birgir Leifur keppti á áskorendamótaröðinni sem fram fór í Svíþjóð og Valdís Þóra á Let Access mótaröðinni sem fram fór í Sundsvall í Svíþjóð. Þau náðum bæði fínum árangri.…Lesa meira

true

Sækist eftir fjórða sæti á lista Sjálfstæðisflokks

Aðalsteinn Orri Arason hefur tilkynnt að hann sækist eftir fjórða sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi í komandi prófkjöri. Aðalsteinn Orri er 25 ára og er frá Varmahlíð í Skagafirði. Hann er stúdent og húsasmiður frá Fjölbrautaskóla Norðlands vestra, búfræðingur frá Landbúnaðarháskóla Íslands og starfar sem landbúnaðar- og byggingaverktaki. Hann kveðst í tilkynningu til fjölmiðla…Lesa meira

true

Skagakonur náðu í mikilvægt stig

ÍA nældi í mikilvægt stig í botnbaráttu Pepsi deildar kvenna í knattspyrnu þegar liðið gerði jafntefli við Þór/KA í gær. Leikurinn var sá ellefti í sumar og fór fram á Akranesvelli. Var þetta jafnframt fyrsti leikur Skagakvenna undir stjórn hjónanna Steindóru Steinsdóttur og Kristins H. Guðbrandssonar, en þau tóku nýverið við þjálfun liðsins af Þórði…Lesa meira

true

Víkingur Ólafsvík tapaði fyrir ÍBV

Á Ólafsvíkurvelli fór í gær fram leikur Víkings og ÍBV í fjórtándu umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu. Bæði lið hafa verið í basli í deildinni að undanförnu en bæði byrjuðu þau mótið vel. Leikurinn endaði með 1-0 sigri ÍBV. Fyrsta mark og eina mark leiksins kom eftir fimm mínútna leik. Derby Carrillo, markmaður ÍBV,…Lesa meira

true

Skagamenn steinlágu fyrir Fjölni

Á Fjölnisvelli í Grafarvogi fór fram leikur Fjölnis og ÍA í gær í fjórtándu umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu. Fjölnismenn hafa komið flestum á óvart á tímabilinu og eru í harðri baráttu um Íslandsmeistaratitilinn. Skagamenn hafa einnig komið mörgum á óvart en fyrir tímabilið spáðu margir Skagamönnum falli. Þeir hafa hins vegar spilað vel á undanförnu…Lesa meira

true

Makrílleiðangri Árna Friðrikssonar lokið

Á lokadegi júlí lauk mánaðarlöngum leiðangri rannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar. Leiðangurinn hafði það megin markmið að meta magn og útbreiðslu makríls umhverfis Ísland. Verkefnið er hluti af sameiginlegum rannsóknum Íslendinga, Norðmanna, Færeyinga og Grænlendinga á dreifingu og magni helstu uppsjávartegunda í Norðaustur-Atlantshafi ásamt athugunum á magni átu og umhverfisþáttum. Makríl var að finna úti fyrir Austurlandi,…Lesa meira