Fréttir

true

Ráslisti fyrir keppni í Vesturlandsdeildinni sem hefst í kvöld

Vesturlandsdeildin í hestaíþróttum hefst í kvöld klukkan 19 með keppni í fjórgangi. Keppt verður í Faxaborg í Borgarnesi. Mótið varð endasleppt í fyrra vegna Covid-19, en þá var einmitt keppt í fjórgangi, áður en stöðva varð mótið vegna sóttvarnareglna. Áhorfendum gefst ekki kostur á að fylgjast með mótinu á staðnum í kvöld, en því verður…Lesa meira

true

Endurbætur til að auka öryggi við Reykhólahöfn

Nýverið var kveikt á nýjum stefnuvita á sjóvarnagarðinum við höfnina á Reykhólum. Stefnuvitinn er til leiðbeiningar um staðsetningu skipa í innsiglingarrennu að höfninni. „Hann virkar í stuttu máli þannig að þrjú ljós eru á vitanum; rautt, hvítt og grænt, ef eingöngu hvíta ljósið er sýnilegt, eru sjófarendur á réttum stað í rennunni. Einnig var sett…Lesa meira

true

Leggja til að Einar Þór verði ráðinn slökkviliðsstjóri

Á fundi bæjarráðs Stykkishólmsbæjar þriðjudaginn 16. febrúar var afstaða til ráðingar slökkviliðsstjóra Stykkishólms og nágrannis, en staðan var auglýst í byrjun febrúar. Bæjarráð lagði til að bæjarstjórn myndi fela Jakobi Björgvini Jakobssyni bæjarstjóra að ganga til samninga við Einar Þór Strand í starf slökkviliðsstjóra.Lesa meira

true

Ný reglugerð um vinnustaðanám iðnnema

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur gefið út nýja reglugerð um vinnustaðanám nemenda í iðngreinum, sem felur í sér grundvallarbreytingu í þjónustu við þá. Fram til þessa hafa nemar í iðngreinum verið sjálfir ábyrgir fyrir því að komast á námssamning, en með nýju reglugerðinni færist ábyrgðin á þessum námsþætti frá nemanum og yfir á skólana sjálfa. Skólarnir…Lesa meira

true

Gamla ÞÞÞ húsið hverfur brátt af stalli sínum

Í dag var byrjað að rífa ÞÞÞ hússins við Dalbraut 6 á Akranesi. Þakið er farið og einungis útveggir standa eftir. Akraneskaupstaður keypti húsið árið 2014 af Bifreiðastöð Þórðar Þ Þórðarsonar sem byggði í framhaldi sölunnar yfir starfsemi sína með myndarlegum hætti við Smiðjuvelli 15. Með í þeirri sölu var 12.000 fermetra samliggjandi lóð, sem…Lesa meira

true

SSV hleypir af stokkunum hlaðvarpi

Nú hefur hafið göngu sína hlaðvarp á vegum Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi sem ber heitið „Vesturland í sókn“. Hlaðvarpið er framtak starfsmanna SSV og hefur þann tilgang að fræða fólk um störf SSV og verkefnin sem eru í brennidepli hverju sinni. Þá er stefnt að því að kynnast nánar þeirri atvinnuþróun og menningarstarfsemi sem á…Lesa meira

true

Frystihúsið slegið í gegn

Nýr veitingastaður, Frystihúsið, við Akratorg á Akranesi hefur alveg slegið í gegn og hefur aðsóknin farið fram úr björtustu vonum eigendanna. Að sögn Evu Marenar Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra Frystihússins hefur sala á ís verið slík frá opnun staðarins fyrir tveimur vikum að verksmiðja MS íss í Reykjavík hefur þurft að bæta við fólki til að anna…Lesa meira

true

Líðan og árangur framhaldsskólanema á tímum kóvid

Niðurstöður könnunar á líðan, námi og aðstæðum framhaldsskólanema sem lögð var fyrir fyrr í vetur bendir til þess að meirihluti nemenda sé ánægður með viðbrögð framhaldsskólanna við Covid-19 og upplifi sig örugg í skólanum. Um 61% nemenda tilgreindu að faraldurinn og sóttvarnareglur hefðu haft slæm áhrif á félagslíf og talið er að 4% nemenda eigi…Lesa meira

true

Kanna möguleika á að Svæðisgarðurinn verði lífhvolfssvæði

Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra Björg Ágústsdóttir formaður stjórnar Svæðisgarðsins á Snæfellsnesi undirrituðu í gær samkomulag í gestastofu Snæfellsness á Breiðabliki um forathugun þess að landssvæði svæðisgarðsins verði í framtíðinni tilnefnt til UNESCO sem svonefnt Maður og lífhvolfssvæði (e. Man and Biosphere). Verkefni þetta hefur verið í undirbúningi undanfarið ár og er ráðgert að…Lesa meira

true

Leggja til sameiningu búgreinafélaga og Bændasamtaka

Stjórn Bændasamtaka Íslands leggur það til að sameina þau búgreinafélög sem eiga aðild að Bændasamtök Íslands og heildarsamtökin í eitt félag. Nýtt skipulag byggist á þeirri sýn að Bændasamtök Íslands verði öflug samtök bænda sem verði í virkum tengslum við neytendur og stjórnvöld á hverjum tíma. Tillaga þessi er afrakstur vinnu við endurskipulagningu félagskerfis landbúnaðarins.…Lesa meira