Fréttir

true

Púttarar í Borgarbyggð bruna nú á æfingar á Akranes

Pútthópur eldri borgara í Borgarbyggð, undir forystu Ingimundar Ingimundarsonar, varð skyndilega húsnæðislaus, þegar loka þurfti púttvellinum í Brákarey 13. febrúar síðastliðinn. Ingimundur segir að slíkt slái áhugasama golfara ekki út af laginu. „Við sömdum við Golfklúbbinn Leyni um að fá æfingaaðstöðu í húsi þeirra á Garðavöllum á Akranesi einu sinni í viku. Við mætum þar…Lesa meira

true

Áfangastaðaáætlun Vesturlands kom út í dag

Í dag kom út önnur útgáfa af Áfangastaðaáætlun Vesturlands sem gildir fyrir árin 2021-2023. Í henni er sett fram áætlun um áherslur, uppbyggingu og þróun ferðamála í landshlutanum næstu þrjú árin. Um er að ræða nokkurs konar stefnumótun og verkefnaáætlun sem nýtist jafnt fyrirtækjum, sveitarfélögum og öðrum sem láta sig málin varða. Skýrslan er einungis…Lesa meira

true

Fjölbreyttar aðgerðir gegn raka- og mygluskemmdum í fasteignum

Alþingi samþykkti í dag þingsályktunartillögu um fjölbreyttar aðgerðir gegn raka- og mygluskemmdum í fasteignum. Aðgerðirnar eru í sex liðum og miða að því að koma í veg fyrir slíkar skemmdir og auka réttindavernd þeirra sem verða fyrir tjóni af þeirra völdum. Í greinargerð þingsályktunarinnar kemur fram að rakaskemmdir og mygla af völdum þeirra sé nokkuð…Lesa meira

true

Vill banna lánshæfismat og upplýsingar um vanskil

Inga Sæland formaður Flokks fólksins hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um breytingu á lögum um persónuvernd, lögum um neytendalán og lögum um fasteignalán. Frumvarpið leggur til að framvegis verði vinnsla upplýsinga sem varða fjárhagsmálefni einstaklinga, í því skyni að miðla þeim til annarra, bönnuð. Verði frumvarpið að lögum verður bannað að miðla upplýsingum um…Lesa meira

true

Rýmka samkomutakmarkanir á morgun

Samkomutakmarkanir verða rýmkaðar frá og með morgundeginum, 24. febrúar. Fjöldatakmarkanir fara úr 20 manns í 50 með ákveðnum undantekningum. Heimilt verður að taka á móti 200 viðskiptavinum í einu í verslunum, á söfnum, í kirkjum og á tiltekna viðburði, að uppfylltum skilyrðum um fermetrafjölda. Áfram gildir tveggja metra reglan og grímuskylda. 200 manns mega vera…Lesa meira

true

Heimildamynd verður gerð um bikarleik Reynis á Hellissandi í vor

Bikarkeppni KSÍ hefst í byrjun apríl og eru flest lið komin á fullt að undirbúa sig fyrir keppnina sem og tímabilið. Að þessu sinni sendir Reynir Hellissandi lið til þátttöku í bikarkeppninni en Reynir dróst gegn Aftureldingu sem spilar í 1. deildinni í sumar. Heimildamynd verður gerð um þátttöku liðsins í bikarkeppninni. Það er heimamaðurinn…Lesa meira

true

Framkvæmdaáætlun vegna umhverfisvottunar á Snæfellsnesi

Framkvæmdaáætlun Snæfellsness 2021-2025 vegna umhverfisvottunar sveitarfélaganna fimm hefur verið birt. „Framkvæmdaáætlunin tekur m.a. mið af frammistöðu síðastliðinna ára og svæðisbundnum áhættuþáttum. Skjalið er eitt af því sem leggur grunninn að umhverfisvottunarverkefni Snæfellsness og er lýsing á helstu umhverfis- og samfélagstengdum verkefnum sveitarfélaganna næstu fimm ára,“ segir í tilkynningu frá verkefnisstjóra umhverfisvottunar Snæfellsness. „Íbúar og hagsmunaaðilar…Lesa meira

true

Guðmundur Franklín stofnar stjórnmálaflokk

„Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn hefur fengið úthlutað listabókstafnum O. Flokkurinn hyggst bjóða fram lista í öllum kjördæmum í komandi alþingiskosningum,“ segir í tilkynningu frá Guðmundi Franklín Jónssyni viðskiptafræðingi og fyrrum forsetaframbjóðanda. „Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn berst fyrir fullveldi landsins, beinu lýðræði, auðlindum í eigu þjóðar og gegn spillingu. Flokkurinn verður með opinn stofnfund sem verður auglýstur síðar. Áhugasamir geta…Lesa meira

true

Búið að opna golfæfingaaðstöðu á Hellissandi

Golfklúbburinn Jökull stóð nýverið fyrir opnu húsi. Tilefnið var að kynna og opna formlega innanhússaðstöðu klúbbsins á Hellissandi. Að sögn Jóns Bjarka Jónatanssonar formanns klúbbsins var áætlað að opna í október á síðasta ári en því varð að fresta sökum sóttvarnaráðstafanna. Nú þegar búið er að slaka aðeins á var hægt að gera þetta. Í…Lesa meira

true

Námsefni fyrir vinnuskólafólk

Vinnuverndarskóli Íslands, VÍS og Grundarfjarðabær hafa gert með sér samkomulag um framleiðslu á námsefni fyrir ungmenni í vinnuskólum sveitarfélagsins. Efnið er miðað að þeim aldurshópi sem að jafnaði starfar í vinnuskólunum en því til viðbótar verður sér efni fyrir flokkstjóra. Vinna er þegar hafin við gerð efnisins en stefnt er að því að það verði…Lesa meira