Fréttir

true

Fjársýslan með misvísandi upplýsingar til sveitarfélaga

Í því skyni að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónaveirunnar var gerð breyting á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda á síðasta ári. Breytingin færði launagreiðendum, sem orðið hafa fyrir tekjufalli vegna faraldursins, heimild til að fresta allt að þremur gjalddögum skatta, þ.m.t. útsvari, á tímabilinu apríl til desember 2020. Vísbendingar eru um að þessa kerfisbreytingu hafi…Lesa meira

true

Sögumiðstöðin verður ný gerð af samkomuhúsi

„Það er nú gaman að hafa eitthvað svona skemmtilegt að brasa við,“ segir Ingi Hans Jónsson kátur þegar blaðamaður Skessuhorns heyrði í honum. Í árslok 2020 samdi Grundarfjarðarbær við fyrirtækið ILDI ehf., sem er í eigu Inga Hans, um umsjón með hönnun á uppbyggingu í Sögumiðstöðinni í Grundarfirði. Þar á að breyta húsnæði Sögumiðstöðvarinnar í…Lesa meira

true

Rafmagnslaust í dag

Vegna lagfæringar á dreifikerfi verður rafmagnslaust í Eyja- og Miklaholtshreppi, Kolbeinsstaðahreppi, Hnappadal og á Mýrum í dag frá kl. 13:00-13:15 og aftur frá kl: 15:00-15:25. Þá verður rafmagnslaust í Laugagerðisskóla og Kornhlöðu frá kl 13:00-15:15 í dag af sömu sökum. Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá Svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528-9390.Lesa meira

true

Keflvíkingar höfðu betur gegn Snæfelli

Snæfell tapaði fyrir Keflvíkingum þegar liðin mættust í Hólminum í Domino‘s deild kvenna í körfubolta í gær. Liðin fylgdust að í jöfnum fyrsta leikhluta og staðan 31-28 í lok leikhlutans. Í öðrum leikhluta fóru gestirnir að skilja sig hægt og örugglega frá heimakonum og leiddu með 13 stigum þegar gengið var til klefa í hálfleiks,…Lesa meira

true

Forval verður hjá VG í Norðvesturkjördæmi

Vinstrihreyfingin grænt framboð í Norðvesturkjördæmi verður með forval til að ákveða framboðslista fyrir komandi alþingiskosningar. Flokkurinn á nú einn þingmann í kjördæminu; Lilju Rafney Magnúsdóttur á Suðureyri, en varaþingmaður er Bjarni Jónsson á Sauðárkróki. Samkvæmt heimildum Skessuhorns stefna þau bæði á forystu áfram. Kjörstjórn hefur nú auglýst eftir frambjóðendum. Forvalið fer fram með rafrænum hætti…Lesa meira

true

Íslenska körfuboltalandslið karla mætir Slóvenum í dag

Í dag klukkan 16 er komið að fyrri leik Íslands í febrúar-glugganum í forkeppninni að undankeppni HM 2023 í körfu. Leikurinn verður sýndur beint í Ríkissjónvarpinu. Leikið er í Pristhina höfuðborg Kosovó þar sem liðin fjögur í riðlinum; Ísland, Slóvakía, Kosovó og Lúxemborg eru öll saman komin og leika tvo leiki hvert gegn hvert öðru.…Lesa meira

true

Listkennsla fyrir fólk á öllum aldri

Listakonan Michelle Bird í Borgarnesi býður nú upp á listkennslu fyrir fólk á öllum aldri. Sex til tíu ára nemendur í Borgarnesi fá nú námskið í frístund þriðjudaga og miðvikudaga. „Þetta er mjög vinsælt námskeið. Það eru margir sem hafa þörf fyrir að tjá sig á skapandi hátt og þarna geta þeir gert það,“ segir…Lesa meira

true

Undir áhrifum og gaf upp kennitölu annars

Lögreglan á Vesturlandi stöðvaði för ökumanns á Vesturlandsvegi á móts við Grundartanga síðastliðinn mánudag. Við athugun reyndist ökumaður undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Ökumaður gat ekki framvísað ökuskírteini en gaf upp kennitölu. Kennitalan reyndist hins vegar tilheyra öðrum aðila. Þá reyndist ökumaður sviptur ökuréttindum.Lesa meira

true

ÞÞÞ gefur endurskinsmerki á alla skólana

Bifreiðastöð ÞÞÞ gaf nýlega öllum leikskóla- og grunnskólabörnum á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit endurskinsmerki. Í samtali við blaðamann Skessuhorns sagði Anna María Þórðardóttir að ÞÞÞ vildi gæta að sýnileika vegfarenda og að það væri hagsmunamál fyrir fyrirtækið að ökumenn þess og allir aðrir ökumenn sjái gangandi vegfarendur og því vill fyrirtækið hvetja alla til þess…Lesa meira

true

Ekið undir áhrifum amfetamíns

Á þriðjudag í síðustu viku stöðvaði lögregla ökumann á Vesturlandsvegi. Við athugun reyndist ökumaður undir áhrifum amfetamíns. Ökumaður var handtekinn og fluttur á lögreglustöðina í Borgarnes þar sem mál hans fór í hefðbundið ferli.Lesa meira