
Á þriðjudag í síðustu viku stöðvaði lögregla ökumann á Vesturlandsvegi. Við athugun reyndist ökumaður undir áhrifum amfetamíns. Ökumaður var handtekinn og fluttur á lögreglustöðina í Borgarnes þar sem mál hans fór í hefðbundið ferli.Lesa meira

Á þriðjudag í síðustu viku stöðvaði lögregla ökumann á Vesturlandsvegi. Við athugun reyndist ökumaður undir áhrifum amfetamíns. Ökumaður var handtekinn og fluttur á lögreglustöðina í Borgarnes þar sem mál hans fór í hefðbundið ferli.Lesa meira

Aðalfundur Knattspyrnufélags ÍA verður haldinn í kvöld kl. 20, í fundarsalnum í Íþróttamiðstöðinni að Jaðarsbökkum. Í tilkynningur frá félaginu segir: „Stjórn félagsins hefur ákveðið að halda fundinn miðað við þær samkomutakmarkanir sem í gildi eru, en þær heimila 20 manna fund en það er einmitt sá lágmarksfjöldi sem krafist er til þess að fundurinn teljist…Lesa meira

Hjónin Hafdís Brynja Guðmundsdóttir og Ólafur Pálsson keyptu síðastliðið haust fyrirtækið Tinsmíði og fluttu starfsemina í Borgarnes. Um er að ræða einu tinsmiðju landsins. „Við erum að framleiða minjagripi, lyklakippur, skartgripi, skraut og getum í raun framleitt hvað sem er, innan stærðarmarka,“ segir Hafdís þegar blaðamaður Skessuhorns kíkti á verkstæðið til þeirra hjóna. Hafdís hefur…Lesa meira

Í hinu sögufræga Grímshúsi í Brákarey í Borgarnesi hefur listakonan Sigþóra Óðinsdóttir frá Einarsnesi komið upp vinnustofu undir nafninu Hydration Space. Þangað býður hún fólki að koma og fylgjast með vinnslu á verkum sem hún er að vinna að fyrir einkasýningu sem hún hyggst setja upp á vordögum. „Mig langar að gefa fólki svona smá…Lesa meira

Að sögn Lögreglunnar á Vesturlandi hefur hraðakstur verið mjög áberandi í umdæmi hennar undanfarna daga og vikur. Mjög algengt er að ökumenn mælist á milli 110 og 120 kílómetra hraða auk þess sem allt of algengt er að um leið séu ökumenn að tala í símann án handfrjáls búnaðar. Sá sem hraðast ók mældist á…Lesa meira

Öskudagurinn er genginn í garð með tilheyrandi hátíð barna. Reyndar er dálítið misjafnt eftir bæjarfélögum hvernig heimsóknum barna í fyrirtæki er háttað að þessu sinni. Sumsstaðar falla heimsóknir einfaldlega niður í ár en á öðrum stöðum er aðgerðum stýrt. Á Akranesi var gefinn út listi yfir fyrirtækja sem ætla að hafa opið í dag og…Lesa meira

Í gær voru hjá Vegagerðinni opnuð tilboð í þverun Þorskafjarðar í Gufudalssveit, en um er að ræða 2,7 km vegarkafla Vestfjarðavegar frá Kinnarstöðum til Þórisstaða. Í verkinu felst nýbygging vegar og 260 metra steinsteypt brú yfir Þorskafjörð. Verkinu skal að fullu lokið 30. júní 2024. Kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar hljóðaði upp á 2.078 milljónir króna. Suðurverk hf.…Lesa meira

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kynnti í morgun aðgerðaáætlun til eflingar íslenskum landbúnaði. Kynntar voru alls tólf aðgerðir sem ætlað er að skapa öfluga viðspyrnu fyrir íslenskan landbúnað eftir Covid-19 faraldurinn og auðvelda honum að nýta tækifæri framtíðarinnar. Aðgerðirnar sem kynntar voru snerta m.a. aukinn stuðning við bændur, heimaframleiðslu á lambakjöti beint frá bónda,…Lesa meira

Körfuknattleikskonan Anna Soffía Lárusdóttir hefur verið valin Íþróttamaður Umf. Snæfells árið 2020. Á síðustu leiktíð tók hún stórt stökk á sínum ferli en hún spilaði stórt hlutverk í úrvalsdeildarliði Snæfells. „Anna Soffía fór úr því að verða efnileg í það að vera fullmótaður leikmaður með mikinn metnað fyrir sínum leik. Hún var máttarstólpi liðsins í…Lesa meira

-segir Halldór Hallgrímsson sem ræðir um sjúkraflutninga, tónlist, íþróttir og sitthvað fleira Halldór Benjamín Hallgrímsson, Dóri Hallgríms, hefur ýmislegt fyrir stafni. Hann var fyrst ráðinn inn sem smiður á Sjúkrahús Akraness en er nú deildarstjóri húsnæðis og tækja hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands, auk þess að starfa sem sjúkraflutningamaður. Ekki má gleyma húsbandi HVE, Handymen, en þar…Lesa meira