Fréttir

true

Leggja línur fyrir framtíð Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls

Undanfarið hafa fulltrúar Umhverfisstofnunar, Snæfellsbæjar, Ferðamálasamtaka Snæfellsness, Minjastofnunar Íslands og Náttúrustofu Vesturlands unnið að endurskoðun á stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Þjóðgarðinn Snæfellsjökul. Opinn rafrænn íbúafundur verður haldinn miðvikudaginn 24. febrúar kl. 17:30-19:30 í gegnum Teams. Fólk er beðið að skrá sig á fundinn á ust.is/svsnae. Á fundinum verður vinna við áætlunina kynnt og síðan munu…Lesa meira

true

Seinni úthlutun Mæðrastyrksnefndar í febrúar

Mæðrastyrksnefnd Akraness verður með seinni úthlutun sína í mánuðinum, miðvikudaginn 24. febrúar frá klukkan 13-17 í húsi HB-granda við Bárugötu á Akranesi. „Umsækjendur geta hringt í síma 859-3000 og 859-3200 miðvikudaginn 17. febrúar og fimmtudaginn 18. febrúar frá kl. 11-13 eða á netfangið maedrastyrkurakranes@gmail.com  Vinsamlegast sækið um á réttum tíma því við pöntum matinn seinnipartinn…Lesa meira

true

Aukaskammtur G-vítamíns – Frítt í sund úti um allt land á morgun

Miðvikudaginn 17. febrúar bjóða sveitarfélög úti um allt land frítt í sund sem aukaskammt af G-vítamíni dagsins sem er „Hreyfðu þig daglega“. Að fara í sund, taka 100 metrana eða bara láta þreytuna líða úr sér í pottinum, er G-vítamín í sinni tærustu mynd! Hægt er að sjá lista yfir sundlaugar sem taka þátt hér:…Lesa meira

true

Spornað gegn útbreiðslu smita með hertum aðgerðum á landamærum

Öllum sem koma til landsins frá og með 19. febrúar næstkomandi verður skylt að framvísa nýlegu vottorði um neikvæða niðurstöðu úr PCR-prófi fyrir brottför á leið til Íslands og á landamærum við komuna. Kemur sú ráðstöfun til viðbótar kröfu um tvöfalda skimun. Frá sama tíma verður þeim sem greinast með COVID-19 við skimun á landamærum…Lesa meira

true

Nýir vagnar á leið 57

Hópbílar hf. sem sjá um utanbæjarakstur fyrir Strætó BS eru um þessar mundir að taka í notkun fjóra nýja vagna á leið 57, sem ekur milli Reykjavíkur og Akureyrar með viðkomu m.a. á Akranesi og Borgarnesi. Um er að ræða VDL vagna, 15 metra langa með 63 sætum. Að auki verður einn bílanna útbúinn með…Lesa meira

true

Sigur Skagamanna í fyrsta leik í Lengjubikarnum

Skagamenn höfðu sigur gegn Selfyssingum í fyrsta leik vetrarins í Lengjubikarnum sem spilaður var á laugardaginn í Akraneshöllinni. Leikurinn endaði 3:1. Selfyssingar byrjuðu betur og náðu forystunni strax á fimmtu mínútu þegar markahrókurinn Hrovje Tokic kom gestunum yfir, en Skagamenn snéru stöðunni vð með tveimur mörkum á þriggja mínútna kafla um miðjan hálfleikinn. Það voru…Lesa meira

true

Seldu á þriðja þúsund sólarpönnukökur

Konur í Kvenfélagi Ólafsvíkur tóku daginn snemma fimmtudaginn 11. febrúar síðastliðinn. Tilefnið var að baka hinar árlegu sólarpönnukökur en þetta er ein stærsta fjáröflun félagsins. Öllum sóttvörnum var að sjálfsögðu fylgt í hvívetna og gekk það vel að sögn kvenfélagskvenna. Fyrirtæki og einstaklingar á svæðinu taka alltaf vel við sér þegar þeim eru boðnar sólarpönnukökur…Lesa meira

true

Biskup auglýsir Reykholtsprestakall laust

Biskup Íslands hefur auglýst til umsóknar starf sóknarprests í Reykholtsprestakalli en undir það heyra sex sóknir; Bæjarsókn, Fitjasókn, Hvanneyrarsókn, Lundarsókn, Síðumúlasókn auk Reykholtssóknar. Á svæðinu búa nú tæplega eitt þúsund manns. Frestur til að sækja um brauðið rennur út 25. febrúar nk. Skal væntanlegur prestur búa í Reykholti og sitja prestssetrið. Miðað er við að…Lesa meira

true

Kynning á aðgerðaáætlun til eflingar íslensks landbúnaðar

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, boðar til kynningar á aðgerðaáætlun til eflingar íslenskum landbúnaði á morgun, miðvikudaginn 17. febrúar kl. 9:45. Kynningin mun fara fram á Teams og er áhugasömum bent á að skrá sig á fundinn hér: https://bit.ly/aðgerðaáætlunLesa meira

true

Bólusetning verður langt komin í lok júní

Gera má ráð fyrir að hægt verði að bólusetja tæplega 190.000 einstaklinga hér á landi fyrir lok júní næstkomandi með bóluefnum Pfizer, AstraZeneca og Moderna sem öll eru með markaðsleyfi og komin í notkun hér á landi. Þetta er mun meira en áður var vænst. Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu kemur fram að mestu munar annars…Lesa meira