Fréttir

true

Skannaðir ársreikningar eru nú gjaldfrjálsir á vef Creditinfo

Fyrirtækið Creditinfo hefur opnað fyrir gjaldfrjálsan aðgang að skönnuðum frumritum ársreikninga á vef sínum. Á þjónustuvef Creditinfo og í vefverslun á opnum vef geta almennir notendur jafnt sem áskrifendur nú sótt gjaldfrjálst skönnuð frumrit af ársreikningum. „Creditinfo hefur að geyma stærsta safn viðskiptaupplýsinga á Íslandi en á meðal þeirra eru upplýsingar úr ársreikningum íslenskra fyrirtækja…Lesa meira

true

Guðbjört Lóa og Jóhanna Vigdís bikarmeistarar í glímu

Bikarglíma Íslands fór fram í Akurskóla 13. febrúar. Níu keppendur tóku þátt á mótinu fyrir hönd Glímufélags Dalamanna og varð Jóhanna Vigdís Pálmadóttir bikarmeistari hjá 15 ára stelpum, Dagný Sara Viðarsdóttir varð í 3. sæti og Birna Rún Ingvarsdóttir í 4. sæti. Fjórir keppendur kepptu í flokki stelpna 14 ára. Embla Dís Björgvinsdóttir varð í…Lesa meira

true

Nýir Lóu nýsköpunarstyrkir

Þórdís Kobrún R Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur kynnt að sækja megi um Lóu – nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina. Tilgangur styrkjanna, sem nú verða veittir í fyrsta sinn, er að styðja við nýsköpun, eflingu atvinnulífs og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni, á forsendum svæðanna sjálfra. Lóa styður við nýsköpunarstefnu og er…Lesa meira

true

Hægt að skoða húsnæði málmiðngreina í tölvunni

Húsnæði málmiðngreina í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi er nú komið inn á Google Earth. „Nú geta áhugasamir skoðað sig um í húsnæði málmiðngreina, rölt um smíða- og vélasal, litið inn í kennslustofur og ýmislegt fleira spennandi – án þess að þurfa að standa upp frá tölvunni,“ segir á heimasíðu FVA. Þá segir að Böðvar Eggertsson,…Lesa meira

true

Reising reiðhallar framundan á Akranesi

Í gær var komið með á Æðarodda fyrstu límtréseiningarnar í væntalega reiðhöll hestamannafélagsins Dreyra. Reising hefst því í næstu viku. Það er Fasteignafélag Akraneskaupstaðar sem verður formlegur eigandi hússins en gerður hefur verið langtímasamningur um reksturinn við Dreyra. Það er sambærilegt rekstrarform og milli Akraneskaupstaðar og Golfklúbbsins Leynis um Frístundamiðstöðina við Garðavöll. Reiðhöllin verður 1.125…Lesa meira

true

Komin af neyðarstigi niður á hættustig

Ríkislögreglustjóri hefur ákveðið í samráði við sóttvarnalækni að færa almannavarnastig úr neyðarstigi í hættustig vegna Covid-19. Þetta kom fram í tilkynningu frá Almannavörnum. Neyðarstigi var lýst yfir 4. október síðastliðinn, í upphafi þriðju bylgju faraldursins og smitum tók að fjölga verulega. Breytingin hefur engin áhrif á sóttvarnarráðstafanir sem eru í gildi nú samkvæmt reglugerðum heilbrigðisráðherra.…Lesa meira

true

Fyrirliggjandi upplýsingar um afhendingu bóluefna

Ísland hefur samið við fimm lyfjaframleiðendur um bóluefni gegn COVID-19. Bóluefni þriggja þeirra eru komin með markaðsleyfi og bólusetning með þeim hafin hér á landi. Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytingu kemur fram að samningar Íslands um þessi þrjú bóluefni, þ.e. Pfizer, AstraZeneca og Moderna, kveður á um skammta sem duga til að bólusetja 304.000 einstaklinga. Samkvæmt…Lesa meira

true

Stærsta undirkælingartæki Skagans 3X flutt til Noregs

Á dögunum kom frá Noregi skip til Ísafjarðar. Flutti það laxafóður fyrir vestfirsku laxeldisfyrirtækin. Skipið fór ekki tómt þaðan og til Noregs því á Ísafirði var skipað um borð 100 rúmmetra tanka til undirkælingar (Sub chilling) á laxi með viðeigandi búnaði, pöllum og böndum frá Skaganum 3X. Það er vestfirski fréttamiðillinn bb.is sem greinir frá:…Lesa meira

true

Haraldur stefnir ótrauður á að leiða áfram lista Sjálfstæðisflokks

Haraldur Benediktsson oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi og fyrsti þingmaður kjördæmisins býður fram krafta sína áfram og stefnir ótrauður á að leiða lista flokks síns fyrir alþingiskosningarnar í haust. Í viðtali við blaðamann Skessuhorns segir hann hafa fullan vilja til að skipa efsta sætið líkt og hann hefur gert fyrir síðustu kosningar. Á næstunni mun Kjördæmisráð…Lesa meira

true

Guðmundur Franklín stofnar flokk

„Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn hefur fengið úthlutað listabókstafnum O. Flokkurinn hyggst bjóða fram lista í öllum kjördæmum í komandi alþingiskosningum,“ segir í tilkynningu frá Guðmundi Franklín Jónssyni viðskiptafræðingi og fyrrum forsetaframbjóðanda. „Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn berst fyrir fullveldi landsins, beinu lýðræði, auðlindum í eigu þjóðar og gegn spillingu. Flokkurinn verður með opinn stofnfund sem verður auglýstur síðar. Áhugasamir geta…Lesa meira